Næstum níu af hverjum tíu kaupendum í lokaða útboðinu eru af höfuðborgarsvæðinu

Hlutfall þeirra einka­fjárfesta sem tóku þátt í að kaupa hluti í Íslands­banka og eiga heima í Garðabæ er rúmlega þrisvar sinnum hærra en hlutfall íbúa sveitar­félagsins af heildar­íbúafjölda Íslands. Helmingur fjár­festanna býr í Reykjavík.

Borgartúnið í Reykjavík er nokkurskonar miðstöð fjármála á Íslandi.
Borg­ar­túnið í Reykja­vík er nokk­urs­konar mið­stöð fjár­mála á Íslandi. Mynd: Bára Huld Beck

Alls tóku 207 fagfjárfestar þátt í lokuðu útboði á 22,5 prósent hlut í Íslands­banka 22. mars síðastliðinn. Af þeim voru 23 lífeyris­sjóðir, 13 verðbréfa­sjóðir og 14 teljast sem „aðrir fjár­festar“. Alls 140 teljast sem einka­fjárfestar. Samantekt Kjarnans leiddi í ljós að hægt sé að greina heimilis­festi 135 þeirra með nokkuð afgerandi hætti.

Niður­staðan er sú að 68 þeirra 135 sem samantekt Kjarnans tók til eiga lögheimili í Reykjavík, eða 50,3 prósent hópsins. Það þarf ekki að koma mikið á óvart í ljósi þess að höfuð­borgin er miðstöð fjármála og stjórn­sýslu á Íslandi. Íbúar Reykja­víkur eru alls 36 prósent af heildar­íbúafjölda landsins.

Næst flestir þátt­takendur búa í Garðabæ, sem er sjöunda stærsta sveitar­félag landsins. Þar búa 4,9 prósent íbúa en 15,5 prósent einka­fjárfesta sem tóku þátt í lokaða útboðinu 22. maí síðastliðinn. Það þarf ekki að koma mikið á óvart að mikið sé um fjármagns­eigendur sem taki þátt í fjár­festingum á meðal íbúa Garða­bæjar. Meðaltal fjármagns­tekna á hvern íbúa er það hæsta á Íslandi í Garðabæ. Það var 130 prósent hærra á hvern íbúa þar en í Reykjavík og 162 prósent hærra en lands­meðaltalið árið 2020. Í grein sem birt­ist í tíma­rit­inu Stjórn­mál og stjórn­sýsla árið 2017, og fjall­aði um elítur lands­ins og inn­byrðis tengsl þeirra, kom líka fram að flestir sem til­heyra elítunni búi í Garðabæ og á Sel­tjarn­ar­nes­i. Einungis þrír þátt­takendur í útboðinu eiga þó skráð heimilis­festi á Seltjarnarnesi.

Kópavogur, næst stærsta sveitar­félag landsins þar sem 10,4 prósent íbúa þess búa, er ábyrgt fyrir 14,8 prósent einka­fjár­festanna sem tóku þátt.

Næstum tveir af hverjum þremur íbúum landsins, alls 64 prósent, búa á höfuð­borgar­svæðinu. Samkvæmt úttekt Kjarnans voru 86 prósent þeirra einka­fjárfesta sem tóku þátt í útboðinu þaðan. Til viðbótar keyptu íbúar höfuð­borgar­svæðisins að jafnaði fyrir mun hærri fjárhæðir en þeir sem búa annarsstaðar.

Það þýðir að lands­byggðin, þar sem 36 prósent lands­manna búa, myndaði 14 prósent af einka­fjárfesta­hópnum sem keypti. Flestir þaðan voru frá Akureyri, eða sjö talsins, en Íslensk Verðbréf sem er með höfuð­stöðvar á Akureyri, var á meðal söluaðila í útboðinu.

22,5 pró­­­sent hlutur í Íslands­­­­­banka sem var seldur í lok­uðu útboði með til­boðs­fyr­ir­komu­lagi þann 22. mars 2022 fór fyrir 52,65 millj­arða króna. Verðið var 4,1 pró­sent undir mark­aðsvirði á þeim tíma sem þýðir að þeir 207 aðilar sem fengu að kaupa gerðu það á verði sem var 2,25 millj­örðum krónum undir mark­aðsvirði þess tíma. Kostn­aður við útboðið var um 700 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár