Andstæðingar Maduro í felum eftir fall hans

Leiðtogar stjórnar­andstöðunnar í Venesúela biðu lengi eftir falli Maduros. En nú þora þeir ekki að stíga fram. Á meðan ráðstafa Banda­ríkin olíu­auðlindum í landinu.

Stuðningsmenn Maduros
Stuðn­ings­menn Maduros Stjórnar­and­staðan í Venes­ú­ela situr eftir í óvissu þrátt fyrir að ein­ræð­is­herr­anum Maduro hafi verið steypt af stóli. Mynd: AFP

Leiðtogar hennar eru í útlegð, henni hefur verið ýtt til hliðar af Banda­ríkjunum og stuðnings­menn hennar eru of hræddir til að fylla göturnar: Stjórnar­andstaðan í Venesúela situr eftir í óvissu þrátt fyrir að einræðis­herranum Nicolás Maduro hafi verið steypt af stóli. 

Stjórnar­andstaðan, sem almennt er talin hafa sigrað í forseta­kosningunum 2024, sem Maduro var sakaður um að hafa stolið, hafði lengi vonast eftir slíkri aðgerð og þeirri sem leiddi til þess að Maduro var handsamaður af bandarískum hermönnum og fluttur til New York þar sem hann á að sæta réttar­höldum vegna meintra fíkniefna­brota.

En í stað þess að taka við völdum var stjórnar­andstaðan snið­gengin af hálfu Donalds Trump, á meðan „chavista“-hreyfing Maduros hélt völdum sínum og náinn banda­maður hans varð starfandi forseti.

Sérfræðingar og heimildar­menn segja að stjórnar­andstaða Venesúela, undir forystu Maríu Corinu Machado, skorti skipulagt stjórn­kerfi og þá sérþekkingu sem þarf til að stjórna – og umfram allt stuðning hersins.

„Ég vil ekki ljúga og segja að við höfum ekki búist við einhverju öðru,“ sagði Freddy Guevara Cortez, úr Voluntad Popular-flokknum sem er í bandalagi með hreyfingu Machado, í samtali við AFP um stöðuna eftir fall Maduros. „En ég held að við skiljum aðstæður og það sem við þurfum að gera er að laga okkur að raun­veru­leikanum,“ bætti Guevara við, sem starfar fyrir hreyfinguna í útlegð í Banda­ríkjunum.

Að svo stöddu þýðir það að bíða af sér stjórnartíð staðgengils­forsetans Delcy Rodríguez, dyggs stuðnings­manns Maduros sem Trump hefur sagt að hann geti unnið með, svo lengi sem hún fylgi línu Washington og veiti Banda­ríkjunum frjálsar hendur yfir olíu­auðlindum Venesúela.

„Ef Delcy Rodríguez gerir allt sem Trump vill, mun hún missa þann (innri) stuðning sem hún þarf til að halda völdum,“ spáði Guevara, fyrr­verandi pólitískur fangi sem nú starfar sem fræði­maður.

„Og ef hún hlýðir ekki Trump, munu þeir (í Washington) líklega steypa henni af stóli eða gera eitthvað enn verra,“ bætti hann við.

Krefjast fulls aðgangs að olíuauðlindum

Rodríguez nýtur yfirlýsts stuðnings hersins og ríkis­stofnana Venesúela. Bróðir hennar er forseti þingsins.

Machado hefur hins vegar enn ekki snúið aftur til Venesúela eftir að hún hvarf á brott, eftir margra mánaða feluleik, til að taka við friðar­verðlaunum Nóbels í Osló í desember. Trump, sem sjálfur hafði augastað á Nóbels­verð­laununum, hefur síðan sagt að Machado „njóti ekki stuðnings“ í Venesúela sem leiðtogi þjóðarinnar.

Edmundo González Urrutia, sem varð forseta­fram­bjóðandi stjórnar­andstöðunnar eftir að stjórn­kerfi Maduros útilokaði Machado, er enn í útlegð. „Stjórnar­andstöðuna skortir stofnanalegt skipulag eða áhrif innan stjórn­kerfisins sem gera henni kleift að stýra pólitískum valda­tilfærslum,“ sagði venesúelski grein­andinn Ricardo Ríos við AFP.

Í mörg ár reyndu Banda­ríkin að losna við Maduro með refsiaðgerðum og olíu­viðskipta­banni, þrátt fyrir að Venesúela búi yfir meiri sannaðri olíu­auðlind en nokkurt annað land í heiminum. Banda­ríkin studdu ítrekað kröfur stjórnar­andstöðunnar um kosninga­sigur, annars vegar Juan Guaidó árið 2018 og hins vegar González Urrutia árið 2024. En þegar Maduro var loks farinn, sneri Trump sér ekki að Machado eða González Urrutia, heldur að nánustu samverka­mönnum hins steypta leiðtoga. „Trump er að brjótast inn í það sem eftir er af stjórn­kerfi Maduros og láta það vinna fyrir sig,“ sagði Ríos. Trump hefur sjálfur sagt að það sem hann vilji frá Rodríguez sé „algjör aðgangur“ að olíu Venesúela.

Machado, sem ítrekað lofaði Trump og mikla heruppbyggingu hans í Karíbahafinu, sem að lokum leiddi til falls Maduros, sagðist á mánudag ekki hafa átt í samskiptum við hann frá 10. október. 

Stjórnar­andstaðan „getur ekki haldið áfram að binda allar vonir sínar við lausnir sem eru ákveðnar í Washington,“ sagði Mariano de Alba, sérfræðingur í landfræði og stjórn­málum Venesúela.

„Höggormurinn og liðsforingjar hans“ urðu eftir

Stuðnings­menn stjórnar­andstöðunnar, sem langflestir greiddu González Urrutia atkvæði sitt, hafa að mestu verið í felum á meðan daglegar mótmæla­göngur stuðnings­manna Maduros hafa átt sér stað í Caracas frá því honum var steypt af stóli. 

„Við skulum vera á varðbergi, virk og skipulögð þar til lýðræðisleg valda­tilfærsla hefur átt sér stað,“ hvatti Machado á samfélags­miðlum. En víðtækur ótti hefur gripið um sig eftir að þúsundir manna voru hand­teknir fyrir að mótmæla umdeildum sigri Maduros í kosningunum 2024. Tugir, mögulega hundruð, leiðtoga stjórnar­andstöðunnar og gagn­rýnenda eru enn í útlegð eða í fangelsi. 

Önnur stór hindrun er söguleg hollusta hersins við Maduro og pólitíska hreyfingu hans. Varnarmála­ráðherrann Vladimir Padrino og innan­ríkis­ráðherrann Diosdado Cabello, sem eru víða taldir raun­verulegir valdhafar í landinu, voru viðstaddir embættis­töku Rodríguez á mánudag. Nema þeir verði einnig fjar­lægðir frá völdum eru litlar líkur á að stjórnar­andstaðan geti stýrt stofnunum Venesúela með raun­verulegum hætti. „Til þess að valda­tilfærsla geti átt sér stað í Venesúela má Diosdado Cabello ekki eiga þátt í henni. Hann er sá sem hefur raun­verulegt vald innanlands,“ sagði José Antonio Colina, fyrr­verandi herforingi Venesúela og stofnandi Veppex, samtaka stjórnar­andstæðinga í útlegð í Miami.

„Banda­ríkin tóku höfuðið, tóku leið­togann – en innanlands skildu þau eftir högg­orminn og liðs­foringja hans.“

Bandaríkjaforseti kynnti fyrirætlanir sínar

Banda­ríkin hafa nú kynnt það sem þau kalla „orku­samkomulag“ við Venesúela og segja að muni draga úr refsiaðgerðum varðandi sölu á olíuvörum frá suður-ameríska ríkinu.

Upplýsingarnar komu frá bandaríska orkumála­ráðuneytinu, nokkrum dögum eftir handtöku leiðtoga Venesúela, Nicolás Maduro. Donald Trump hefur síðan lýst því yfir að bráðabirgða­yfirvöld í Venesúela hafi samþykkt að Banda­ríkin stýri markaðs­setningu á 30 til 50 milljónum tunna af hráolíu, og hefur ítrekað bætt því við að Banda­ríkin muni „reka“ Venesúela þrátt fyrir að engar bandarískar hersveitir séu á vettvangi.

Trump sagði jafnframt á samfélags­miðlum á miðvikudag að Venesúela muni einungis kaupa vörur fram­leiddar í Banda­ríkjunum fyrir það fé sem það fær úr „nýja olíu­samningnum“, en þar á meðal eru möguleg kaup á landbúnaðar­afurðum, lyfjum og orku­tækjum. 

Ríkis­olíu­fyrirtæki Venesúela sagði jafnframt að viðræður um sölu hráolíu til Banda­ríkjanna væru hafnar, í kjölfar kröfu Washington um aðgang að olíu­birgðum landsins eftir brott­rekstur Maduros. „Viðræður standa yfir við Banda­ríkin um sölu á magni olíu innan ramma núverandi viðskipta­sambands ríkjanna tveggja,“ sagði fyrir­tækið PDVSA í yfir­lýsingu.

Bandaríski orkumála­ráðherrann Chris Wright benti þó á að Washington muni hafa „ótíma­bundna“ stjórn á sölu venesúelskrar olíu. Hann sagði á viðburði í Miami á miðvikudag að slíkt vald og yfirráð væru nauðsynleg til að knýja fram nauðsynlegar breytingar í Venesúela. 

Venesúela segist búa yfir um fimmtungi þekktra olíu­birgða heimsins.

Allur ágóði inn á bandaríska reikninga

Bandarísk stjórn­völd eru þegar farin að markaðs­setja venesúelska hráolíu á alþjóða­vísu, að sögn orkumála­ráðuneytisins.

Þar sagði einnig að allur ágóði af sölu hráolíu og olíuvöru muni fyrst renna inn á reikninga undir stjórn Banda­ríkjanna hjá alþjóð­lega viðurkenndum bönkum.

„Þessum fjármunum verður ráðstafað í þágu bandarísku þjóðarinnar og venesúelsku þjóðarinnar að mati bandarískra stjórn­valda,“ sagði ráðuneytið, án þess að veita frekari skýringar.

Salan muni einnig „halda áfram um óákveðinn tíma“, samkvæmt upplýsingum frá orkumála­ráðuneytinu.

Wright sagði í viðtali við CNBC að Banda­ríkin væru einungis að stýra markaðs­setningu og fjármagns­flæði inn í Venesúela og hélt því fram að fjár­munirnir yrðu að mestu notaðir til hagsbóta fyrir venesúelsku þjóðina. „Við erum ekki að stela olíu neins,“ bætti hann við.

Á sama tíma munu bandarísk þynningar­efni vera flutt til Venesúela eftir þörfum til að „blanda, uppfæra og hámarka“ fram­leiðslu landsins á mjög þungri hráolíu.

Wright, sem áður starfaði í olíu- og gasgeiranum, sagði að það myndi krefjast „tuga milljarða dollara og verulegs tíma“ að koma fram­leiðslu Venesúela aftur upp í fyrri hæðir, yfir þrjár milljónir tunna á dag. Sérfræðingar hafa einnig bent á að hraðvirk aukning fram­leiðslu myndi mæta hindrunum á borð við hnignandi innviði, lágt olíuverð og pólitíska óvissu.

Aflétting fyrri refsiaðgerða

Að svo stöddu eru Banda­ríkin að „aflétta refsiaðgerðum með mark­vissum hætti til að gera flutning og sölu venesúelskrar hráolíu og olíuvöru á heims­markaði mögulega,“ að sögn orkumála­ráðuneytisins.

Meðal annarra aðgerða hyggjast Banda­ríkin heimila innflutning ákveðins olíuvinnslu­búnaðar, varahluta og þjónustu til Venesúela, auk þess sem þau segjast ætla að vinna að endur­bótum á raforku­kerfi landsins til að styðja við olíu­framleiðslu.

Að öðru leyti sagði Hvíta húsið frétta­mönnum á miðvikudag að Banda­ríkin hefðu „hámarks­áhrif“ á bráðabirgða­yfirvöld Venesúela.

Trump er væntanlegur til fundar með bandarískum olíu­fram­leiðendum til að ræða áætlanir varðandi olíuiðnað Venesúela, að sögn Karoline Leavitt, fjölmiðla­fulltrúa Hvíta hússins.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár