Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Bæjarlistinn mynda meirihluta á Akureyri

Bæjar­listinn, Sjálfstæði­flokkur og Miðflokkur mynda minnsta mögulega meirihluta í bæjar­stjórn Akureyrar með sex fulltrúa af ellefu. Stefnt er að því að Ásthildur Sturlu­dóttir verði áfram bæjar­stjóri

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Bæjarlistans og Miðflokksins hafa náð samkomulagi um myndun meirihluta á Akureyri. Samkomulagið náðist í sumarbústað.Mynd: Aðsend
Bæj­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks, Bæj­ar­list­ans og Mið­flokks­ins hafa náð sam­komu­lagi um myndun meiri­hluta á Akureyri. Sam­komu­lagið náð­ist í sum­ar­bú­stað.Mynd: Aðsend

Bæjar­fulltrúar Sjálfstæðis­flokks, Miðflokks og Bæjar­listans á Akureyri hafa komist að samkomu­lagi um myndun meirihluta á Akureyri. Málefna­samningur flokkanna verður kynntur 1. júní, að því er kemur fram í tilkynningu frá flokkunum.

Heimir Örn Árnason, oddviti Sjálfstæðis­flokksins á Akureyri, segir í samtali við Vísi að stefnt sé að því að Ásthildur Sturlu­dóttir verði áfram bæjar­stjóri Akureyrar. Hún var ráðin bæjar­stjóri eftir kosningarnar 2018.

Sjö flokkar náðu kjöri í sveitar­stjórnar­kosningunum 14. maí síðastliðinn og fljótt varð ljóst að flóknar meirihluta­viðræður voru fram undan. Bæjar­listi Akureyrar, L-listinn, fékk 18,7 prósent atkvæða og bætti við sig einum bæjar­fulltrúa og fékk þrjá. Sjálfstæðis­flokkurinn fékk 18 prósent atkvæða og hélt sínum tveimur bæjar­fulltrúum. Framsóknar­flokkur fékk 17 prósent atkvæða og tvo fulltrúa kjörna. Samfylkingin hélt sínum bæjar­fulltrúa og Miðflokkurinn og Vinstri græn eru með einn bæjar­fulltrúa. Þá fékk Flokkur fólksins, sem var að bjóða fram í fyrsta skipti á Akureyri, einn mann kjörinn.

Bæj­ar­list­inn, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sam­fylk­ingin mynd­uðu meiri­hluta eftir kosn­ing­arnar 2018 en í sept­em­ber 2020 til­kynntu full­trúar í bæj­ar­stjórn að ákveðið hefði verið að afnema minni- og meiri­hluta í bæj­ar­stjórn það sem eftir lifir kjör­tíma­bils. Mark­miðið með því var mynda breiða sam­stöðu vegna sér­stakra aðstæðna í kjöl­far heims­far­ald­urs og í rekstri sveit­ar­fé­lags­ins. Fyrir kosningarnar í vor lá fyrir að ekki var áfram­haldandi vilji fyrir breiðu meiri­hluta­sam­starfi.

Allt er þegar þrennt er

Meirihluta­viðræðum hefur verið slitið í tvígang. Fyrst ræddu fulltrúar Bæjar­listans, Sjálfstæðis­flokks og Fram­sóknar myndun meirihluta en upp úr slitnaði þegar fulltrúar Bæjar­listans sökuðu fulltrúa Sjálfstæðis­flokks og Framsóknar­flokks um að hafa rofið heiðurs­manna­samkomulag með því að ræða við fulltrúa annarra flokka.

Við tóku viðræður milli B-,D-,S- og M-lista en Samfylkingin sleit þeim viðræðum í gær og sagði Hilda Jana Gísla­dóttir, oddviti flokksins í samtali við RÚV að óyfirstíganlegur málefna­ágreiningur væri á milli flokkanna, til að mynda í velferðar­málum, umhverfis- og loftslags­málum og skipulags­málum.

En allt er þegar þrennt er. Sjálfstæðis­flokkur, Miðflokkur og Bæjar­listinn hafa sex bæjar­fulltrúa og mynda því minnsta mögulega meirihluta í bæjar­stjórn Akureyrar sem samanstendur af ellefu fulltrúum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár