Telja að Alliance-húsið og byggingarréttur séu öllu meira en 650 milljóna virði

Við Granda­garð 2 stendur Alliance-húsið, sem Reykja­víkurborg keypti fyrir 10 árum og gerði upp að utan. Frá 2018 hafa verið gerðar tvær tilraunir til að selja það, en það hefur ekki enn gengið. Nú á að reyna í þriðja sinn.

Í Alliance-húsinu er í dag Sögusafnið og veitingastaðurinn Matur og drykkur. Á lóðinni má byggja 4.193 nýja fermetra ofanjarðar, undir verslun, þjónustu, íbúðir og hótelstarfsemi, samkvæmt skipulagi.
Í Alliance-hús­inu er í dag Sögu­safnið og veit­inga­stað­ur­inn Matur og drykkur. Á lóð­inni má byggja 4.193 nýja fer­metra ofanjarðar, undir verslun, þjón­ustu, íbúðir og hót­el­starf­semi, sam­kvæmt skipu­lagi. Mynd: Úr fasteignaauglýsingu frá Reykjavíkurborg.

Reykja­víkurborg bárust þrjú tilboð í Alliance-húsið við Granda­garð 2 eftir að húsið og meðfylgjandi byggingar­réttur á lóðinni voru auglýst til sölu í febrúar á þessu ári. Öllum tilboðunum var hafnað, en það hæsta hljóðaði upp á 650 milljónir króna. Borgarráð samþykkti að hefja nýtt söluferli á fundi sínum í síðustu viku.

Það verður þriðja sölu­ferlið sem ráðist hefur verið í á eigninni, sem Reykja­víkurborg keypti árið 2012 á um 340 milljónir króna. Borgin hefur svo varið yfir 100 milljónir í lagfæringar á ytra byrði hússins, sem er friðað.

Höfnun kauptilboð­anna byggði meðal annars á því að tilboðin væru lág í ljósi verðmats, en KPMG verðmetur húsið og uppbyggingar­réttindin á lóðinni á 870 til 1.260 milljónir króna.

Í greinar­gerð frá borginni segir að óvissa um verðmatið sé umtals­verð þar sem ekki liggi fyrir kostnaðarmat við endur­bætur hússins, auk þess sem verðmæti lóða geti breyst hratt. Hins vegar var það niður­staðan að „sterkar vísbendingar“ væru til að staðar um að tilboðið væri of lágt og „talsvert undir því sem eðlilegt matsvirði eignarinnar gæti verið miðað við gildandi deili­skipulag.“

Heimilt að byggja 4.193 nýja fermetra ofanjarðar

Uppruna­legur hluti Alliance-hússins er skráður 2.007 fermetrar, en nýrri hluti þess, sem á að rífa samkvæmt skipulagi reitsins, er 470 fermetrar. Samkvæmt deili­skipulagi er heimilt byggingar­magn á lóðinni alls 7.600 fermetrar, þar af 6.200 ofanjarðar og 1.400 fermetra bíla­kjallari.

Það má því byggja alls 4.193 nýja fermetra ofanjarðar og heimilt er að auka byggingar­magn enn frekar með milli­loftum, samkvæmt skilmálum í skipulagi reitsins, sem er frá árinu 2018.

Gert er ráð fyrir því að á efri hæðum nýbyggingar skuli vera gististarfsemi eða önnur skrif­stofu- og atvinnu­starfsemi, auk íbúða í efri hæðum nýbyggingar sem snýr að Mýrargötu. Á neðri hæðum er svo gert fyrir verslunum, veitinga­starfsemi og léttri atvinnu­starfsemi í að lágmarki fimm aðskildum rýmum.

Vildu ekki byggja hótelrými heldur íbúðir

Í 650 milljóna tilboðinu, frá félaginu E&S 119 ehf., sem tekið var til skoðunar af hálfu borgarinnar, var gengið út frá því að ekki yrði hótel­starfsemi á efri hæðum, heldur yrðu þar íbúðir.

Skipulags­fulltrúi borgarinnar taldi að kaup­tilboðið væri því ekki í samræmi við þá skilmála sem væru í gildi á svæðinu og gengið hefði verið út frá í auglýsingum á reitnum. Það var því ekki nóg með að tilboðið þætti í lægra lagi, heldur þyrfti einnig að gera skipulags­breytingar til þess að leyfa íbúðir, meðal annars með tilliti til bílastæða­mála, dvalar­svæða og birtu­magns í nýbyggingum. Sagði í umsögn skipulags­fulltrúa að ef gera þyrfti slíkar breytingar á skipulagi kæmi upp sú spurning hvort allir bjóðendur hefðu setið við sama borð.

Borgin mun því að gera þriðju tilraunina til þess að reyna að selja Alliance-húsið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár