Flóð í Árneshreppi: „Við erum innilokuð"

Skriðu­föll og flóð í Árnes­hreppi. Vegurinn í sundur og tún og tjald­stæði á kafi. Nýja mal­bikið skemmt.

Allt á kafi
Allt á kafi Túnin í Steins­túni í Norð­ur­firði eru á kafi. Guð­laugur Ágústs­son bóndi ótt­ast um hey­vinnu­vélar sínar. Mynd: Guðlaugur Ágústsson

„Við erum inni­lokuð hérna. Stór skriða féll úr Urð­ar­t­indi og lokar veg­inum. Þá er veg­ur­inn í sundur á nokkrum stöðum vegna flóða,” segir Sara Jóns­dóttir, veit­inga­maður á Kaffi Norð­ur­firði. Gríð­ar­leg úrkoma hefur verið und­an­farið á Ströndum og eru tún víða komin undir vatn. Þá hafa víða orðið skriðu­föll og veg­ur­inn af þeim sökum lok­aður. Einn íbúa sem átti leið undir Urð­ar­t­ind við sunn­an­verðan Norð­ur­fjörð fékk aur­skriðu undir bíl sinn þegar hann var að færa grjót af veg­inum til að kom­ast leiðar sinnar.

Skriðan lokar
Skriðan lokar Vegurinn fyrir Urð­ar­t­ind lok­að­ist vegna stórrar skriðu. Íbúar Norð­ur­fjarðar eru þar með inni­lok­aðir.
 

Sara veit­inga­maður ætl­aði að aka suður til Reykja­víkur í dag ásamt sam­starfs­konu sinni, Lovísu Vattnes Bryn­geirs­dóttur. Þær stöllur kom­ast hvergi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár