Vopnaðir sérsveitarmenn handtóku ölvaðan mann í miðbænum

Rík­is­lög­reglu­stjóri segir auk­inn sýni­leika vopna­burðar vera til kom­inn vegna hryðju­verkaógnar. Sér­sveit­ar­menn, vopn­aðir skamm­byssum, voru lög­regl­unni til taks vegna slags­mála á skemmti­stað um helg­ina.

Tveir sér­sveit­ar­menn, vopn­aðir skamm­byssum, sáust meðal gesta á skemmti­staðnum Hress­ing­ar­skál­anum við Aust­ur­stræti þegar þeir veittu lög­regl­unni lið­sinni við hand­töku. Ölvaður karl­maður var hand­tek­inn, klukkan hálf tvö aðfara­nótt síð­ast­lið­ins sunnu­dags, grun­aður um lík­ams­árás. Sér­sveit­ar­menn báru mann­innn í lög­reglu­bíl.

Gunnar Rúnar Svein­björns­son, upp­lýs­inga­full­trúi Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir mann­inn, grun­aðan um lík­ams­árás­ina, ekki hafa verið vopn­aðan. Um ofurölv­aðan ein­stak­ling var að ræða sam­kvæmt starfs­manni Hress­ing­ar­skál­ans. 

Handtaka við Aust­ur­strætiAð hand­tök­unni komu tveir vopn­aðir sér­sveit­ar­menn ásamt lög­reglu­mönnum.

Mikill erill er almennt í miðbæ Reykja­víkur um helgar vegna óláta og slags­mála og eru fanga­geymslur lög­regl­unnar oft og tíðum þétt­setnar. Stundin hefur ítrekað krafið rík­is­lög­reglu­stjóra svara um hvort stefnu­breyt­ing hafi orðið á lög­gæslu með skemmt­ana­haldi um helgar og hvort sér­sveit rík­is­lög­reglu­stjóra muni komi til með að sinna slíkri lög­gæslu meira en áður hefur verið. Engin svör hafa borist. Þá hefur rík­is­lög­reglu­stjóri ekki svarað fyr­ir­spurnum um atvikið.

Vopna­burður lög­reglu­manna hefur verið mjög sýni­legur upp á síðkastið. Í sam­tali við Stundina fyrr í þess­ari viku sagði Haraldur Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóri auk­inn fjölda erlendra borg­ara á Íslandi og mann­skæðar árásir í Evrópu að und­an­förnu á meðal þess sem hafi kallað á auk­inn vopna­burð lög­reglu. Þá segir Haraldur að gera megi ráð fyrir vopn­uðum lög­reglu­mönnum á hátíðum þar sem tug­þús­undir manna koma saman.

Vopnaðir sér­sveit­ar­mennaðstoðu lög­reglu við hand­töku á skemmti­stað við Aust­ur­stræti.

Ákveður vopnaburðinn einhliða

Haraldur Johann­esen rík­is­lög­reglu­stjóriSegir ekki verið að auka vopna­burð.

Haraldur segir sig geta ein­hliða ákveðið að auka vopna­burð lög­regl­unnar. Ekki þurfi að koma til sam­þykki hjá dóms­mála­ráð­herra eða þjóðar­ör­ygg­is­ráði, svo eitt­hvað sé nefnt.

„Sér­sveitin er á ábyrgð rík­is­lög­reglu­stjóra. Þetta er eina vopn­aða lög­reglan í land­inu og hún heyrir undir rík­is­lög­reglu­stjóra. Og það er hans að vega og meta og taka ákvarð­anir um það með hvaða hætti sér­sveitin starfar,“ segir hann. 

Að sögn Haraldar er ekki verið að auka vopna­burð. „Við erum ekki að auka vopna­burð. Það sem við erum að gera er að við erum að gera hina vopn­uðu lög­reglu í land­inu, sér­sveit rík­is­lög­reglu­stjóra, sem dags­dag­lega er undir vopnum, meira sýni­lega á stórum sam­komum. Samkomum þar sem tugir þús­unda koma saman á ein­hverri úti­há­tíð­inni.“

Breyttur veruleiki íslensks almennings

Haraldur segir íslenskan almenn­ing þurfa að búa við breyttan veru­leika, þar sem vopn­aðir sér­sveit­ar­menn verða sýni­legir á úti­há­tíðum, en í því sé „engin stefnu­breyt­ing fólgin“.

„Já. Við þurfum að átta okkur á því að sér­sveit­ar­menn eru vopn­aðir. Og þeir eru orðnir mjög sýni­legir í íslensku sam­fé­lagi. Þannig að almenn­ingur er far­inn að sjá vopn­aða lög­reglu­menn mjög mikið hér á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þannig að það er engin nýlunda, það er engin stefnu­breyt­ing hvað það varðar. En almenn­ingur á von á að sjá vopn­aða sér­sveit­ar­menn á þessum stóru úti­há­tíðum,“ segir Haraldur í sam­tali við Rúv.

Þá fund­aði nýstofnað þjóðar­ör­ygg­is­ráð Íslands á „öruggum stað“ vegna meintrar hryðju­verkaógnar á Íslandi, í kjöl­far þess að stefnu­breyt­ing hefur orðið í við­bún­aði lög­reglu án þess að umræða hafi átt sér stað. Aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra, Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, segir valið á fund­ar­staðnum hafa ráð­ist af því að „dag­skrá fund­ar­ins kall­aði á að fund­ar­stað­ur­inn upp­fyllti nauð­syn­legar örygg­is­kröfur,“ sam­kvæmt fréttum Rúv.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri GrænnaGagn­rýndi harð­lega við­veru vopn­aðra sér­sveit­ar­manna á fjöl­skyldu­há­tíð­inni Color Run.

Mikil umræða varð eftir að sér­sveit­ar­menn rík­is­lög­reglu­stjóra gengu um vopn­aðir skot­vopnum í miðbæ Reykja­víkur á meðan fjöl­skyldu­há­tíðin Color Run fór fram um í byrjun mán­að­ar­ins.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri Grænna og einn með­lima þjóðar­ör­ygg­is­ráðs­ins, gagn­rýndi harð­lega við­veru vopn­að­ara sér­sveit­ar­manna á hátíð­inni og sagði þörf á opin­berri umræðu um málið. „Mál síð­ustu viku var tví­mæla­laust umræða um vopna­burð sér­sveit­ar­manna á manna­mótum hér á landi. Alls­herjar- og mennta­mála­nefnd Alþingis fund­aði á föstu­dag­inn um mál­efni lög­regl­unnar og auk­inn vopna­burð hennar. Fund­ar­menn voru sam­mála um að þörf væri á auknu upp­lýs­inga­flæði og opin­berri umræðu um þá ákvörðun rík­is­lög­reglu­stjóra að vopn­aðir sér­sveit­ar­menn skyldu vera sýni­legir á fjöl­skyldu­há­tíðum í sumar,“ sagði Katrín í færslu á Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár