Coca-Cola og McDonalds, Visa og Budweiser krefjast afsagnar Blatter vegna spillingarmála

Stærstu styrktar­aðilar Alþjóða­knattspyrnu­sambandsins (FIFA) lýstu því yfir í gær að þau krefjist tafar­lausrar afsagnar Sepp Blatter, forseta sambandsins, vegna þeirra spillingar­mála sem hann er talinn tengjast. Um er að ræða alþjóð­legu risa­fyrirtækin Coca-Cola, McDonalds, Visa og Anheuser-Busch, eiganda Budweisier-vöru­merkisins. Reuters-frétta­stofan greinir frá.

Yfir­lýsingar fyrir­tækjanna, sem innihalda allar sambærilegt orðalag, voru sendar út viku eftir að yfirvöld í Sviss tilkynntu að þau hafi byrjað formlega sakamála­rannsókn á Blatter. Í yfir­lýsingu Coca-Cola sagði meðal annars: "Á hverjum degi sem líður þá heldur ímynd og orðspor FIFA áfram að skaðast[...]FIFA þarf á alhliða umbótum að halda". Í yfir­lýsingu McDonalds sagði að atburðir liðinna vikna hefðu grafið frekar undan orðspori FIFA og trausti almennings á leiðtoga­sambandsins.

Blatter, sem er orðinn 79 ára gamall og hefur stýrt FIFA í 17 ár, brást við með því að segja að hann muni ekki segja af sér. Það væri ekki í þágu FIFA að gera það.

Ætlar ekki að hætta fyrr en í febrúar


Blatter var fyrr á þessu ári end­ur­kjör­inn for­seti FIFA þrátt fyrir að hreyf­ingin hafi orðið fyrir miklum þrýst­ingi um að gera það ekki í ljósi ara­grúa spill­ing­ar­mála sem upp hafa komið innan þess á und­an­förnum miss­erum. Spill­ing­ar­mál­unum fjölg­aði enn frekar í kjöl­far kosn­ing­anna og á end­anum til­kynnti Blatter að hann myndi hætta, en ekki fyrr en í febr­úar á næsta ári. Hann telur sig enn geta unnið aftur tapað orð­spor á þeim tíma og segir engan betri til að end­ur­vekja til­trú almenn­ings og styrkt­ar­að­ila á FIFA.

Blatter hefur falið sig á bakvið það að hann hafi sjálfur ekki verið til rann­sóknar, þótt flestir nánustu samstarfs­menn hans hafi verið það og hin meinta spilling sem þrífst innan FIFA hafi gerst á hans vakt.

Talinn hafa mútað Platini


Þetta breytt­ist allt í síð­ustu viku þegar yfir­völd í Sviss, þar sem höf­uð­stöðvar FIFA eru stað­settar, til­kynntu að þau séu búin að hefja rann­sókn á því hvort Blatter hafi gerst sekur um lög­brot.

Rann­sóknin á Blatter er hluti af viða­mikilli rannsókn á FIFA og spillingu innan sambandsins.

Gerð var húsleit í höfuð­stöðvum FIFA í Zurich í Sviss og gögn voru tekin af skrif­stofu Blatter.

Annars vegar er Blatter grunaður um að hafa skrifað undir samning við knattspyrnu­sambandið í karabíska hafinu, þar sem Jack Warner var þá forseti, en samningurinn er sagður hafa verið FIFA í óhag. Þá sé líka grunur um að við innleiðingu þessa samnings hafi Blatter brotið gegn skyldum sínum og tekið ákvarðanir sem sköðuðu hagsmuni FIFA.

Þetta er talið tengjast sjónvarps­réttinda­samningum sem sýndu fram á að Blatter samþykkti að selja réttindi til Warner, sem var einnig áhrifa­mikill innan FIFA og hefur verið til rann­sóknar vegna spillingar, undir markaðs­virði.

Til viðbótar við þetta er Blatter sakaður um að hafa greitt „óheiðarlega“ greiðslu upp á tvær milljónir svissneskra franka til Michel Platini, sem er forseti Evrópska knattspyrnusambandins UEFA, og einn þeirra sem vill taka við af Blatter hjá FIFA. Þessi greiðsla er sögð skráð sem greiðsla fyrir vinnu sem hafi átt sér stað frá 1999 til 2002, en greiðslan átti sér stað árið 2011. Líklegt er talið að þetta mál muni koma í veg fyrir að Platini geti boðið sig fram til forseta FIFA á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár