Blatter sakaður um að hafa mútað Platini

Sepp Blatter, fráfar­andi forseti Alþjóða­knattspyrnu­sambandsins FIFA, er sagður hafa greitt helsta keppinauti sínum í kosningum til embættisins, Michael Platini, um 1,3 milljónir punda nokkrum vikum áður en Platini dró framboð sitt til baka í forseta­kosningum FIFA árið 2011. Saksóknari sem rannsakar meint brot Blatter í starfi, eins og greint var frá í síðustu viku, telur að Blatter hafi persónu­lega veitt heimild fyrir milli­færslunni af reikningum FIFA til Platini, forseta Evrópska knattspyrnu­sambandsins UEFA. Upphæðin jafn­gildir rúmlega 250 milljónum króna. Frá þessu greinir dagblaðið The Telegraph.

Árið 2011 bauð Platini sig fram gegn Blatter í kosningum til forseta FIFA en hætti óvænt við, nokkrum mánuðum fyrir kosningar.

Fram kemur í umfjöllun The Telegraph að engin sönnunar­gögn sýni fram á að greiðslan til Platini hafi verið óeðlileg, að öðru leyti en að tíma­setning hennar þykir tortryggileg. Platini og Blatter neita því báðir að nokkuð óeðlilegt hafi átt sér stað. Í tilkynningu sagði Platini að greiðslan hafi komið til vegna ráðgjafa­starfa hans fyrir FIFA á árunum 1999 til 2002. Óljóst er hvers vegna greiðslan barst níu árum síðar, árið 2011.

Fyrir helgi var Sepp Blatter yfir­heyrður af fulltrúum saksóknara í Sviss eftir fund stjórnar FIFA. Í yfir­lýsingu frá saksóknara­embættinu kom fram að búið sé að hefja rannsókn á því hvort hann hafi gerst sekur um lögbrot. Rann­sóknin á Blatter er hluti af viða­mikilli rannsókn á FIFA og spillingu innan sambandsins. Meðal þess sem er til rann­sóknar er greiðslan til Platini. Platini er ekki til rann­sóknar í spillingar­málum er tengjast FIFA en hefur verið kallaður til yfirheyrslu í „upplýsinga­skyni“, eins og það er orðað af saksóknara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár