Rannsókn á Sepp Blatter hafin og verið að yfirheyra hann vegna spillingar

Forseti Alþjóða­knatt­spyrnu­sam­bands­ins FIFA, Sepp Blatter, var yfir­heyrður af full­trúum sak­sókn­ara í Sviss eftir fund stjórnar FIFA í dag. Í yfir­lýs­ingu frá sak­sókn­ara­emb­ætt­inu kemur fram að búið sé að hefja rann­sókn á því hvort hann hafi gerst sekur um lög­brot. Rann­sóknin á Blatter er hluti af viða­mik­illi rann­sókn á FIFA og spill­ingu innan sam­bands­ins.

Gerð var hús­leit í höf­uð­stöðvum FIFA í Zurich í Sviss og gögn voru tekin af skrif­stofu Blatter.

Annars vegar er Blatter grun­aður um að hafa skrifað undir samn­ing við knatt­spyrnu­sam­bandið í kar­ab­íska haf­inu, þar sem Jack Warner var þá for­seti, en samn­ing­ur­inn er sagður hafa verið FIFA í óhag. Þá sé líka grunur um að við inn­leið­ingu þessa samn­ings hafi Blatter brotið gegn skyldum sínum og tekið ákvarð­anir sem sköð­uðu hags­muni FIFA.

Þetta er talið tengj­ast sjón­varps­rétt­inda­samn­ingum sem sýndu fram á að Blatter sam­þykkti að selja rétt­indi til Warner, sem var einnig áhrifa­mik­ill innan FIFA og hefur verið til rann­sóknar vegna spill­ingar, undir mark­aðsvirði.

Til við­bótar við þetta er Blatter sak­aður um að hafa greitt „óheið­ar­lega“ greiðslu upp á tvær millj­ónir sviss­neskra franka til Michel Platini, sem er for­seti Evrópska knatt­spyrnu­sam­band­ins UEFA, og einn þeirra sem vill taka við af Blatter hjá FIFA. Þessi greiðsla er sögð skráð sem greiðsla fyrir vinnu sem hafi átt sér stað frá 1999 til 2002, en greiðslan átti sér stað árið 2011.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár