Akstur í kosningabaráttu er endurgreiddur sem hluti af störfum þingmanns

Ekki er gerður grein­ar­munur á akstri þing­manns vegna kosn­inga­bar­áttu og ann­ars akst­urs þegar kemur að end­ur­greiðslum akst­urs­kostn­aðar, sam­kvæmt svari Stein­gríms J. Sig­fús­sonar, for­seta Alþingis. End­ur­greiddur kostn­aður virð­ist hærri í kringum kosn­ingar. Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, segir að svar for­seta sé „steypa“.

End­ur­greiðslur vegna akst­urs­kostn­aðar þing­manna voru hærri á þeim tíma­bilum sem kosn­inga­bar­átta stóð yfir árin 2013, 2016 og 2017. Ferðir „vegna kosn­inga“ geta talist „í tengslum við störf“ alþing­is­manna.

Þetta kemur fram í svari Stein­gríms J. Sig­fús­sonar, for­seta Alþingis, við fyr­ir­spurn Björns Levís Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata. Fram kemur að frá jan­úar til júní 2013 hafi end­ur­greiðslur verið 11 millj­ónum krónum hærri en seinni hluta sama árs. Kosn­ingar fóru fram í apríl það ár.

Þá sést að seinni hluta árs bæði 2016 og 2017 voru end­ur­greiðslur hærri en á fyrri hlut­anum. Bæði árin fóru þing­kosn­ingar fram í lok októ­ber.

„Almennt verður að líta svo á að ferðir „vegna kosn­inga“ geti verið „í tengslum við störf“ alþing­is­manna,“ segir í svari for­seta Alþingis. „Tilefni slíkra fund­ar­ferða, oft­ast í aðdrag­anda kosn­inga, getur verið mjög mis­mun­andi, t.d. að hitta kjós­endur að eigin frum­kvæði eða að ósk ein­stak­linga eða hags­muna­að­ila til að fara yfir þau störf sem þing­maður hefur unnið á kjör­tíma­bil­inu og hvað standi honum næst á kom­andi þingi. Litið hefur verið svo á að í slíkum til­vikum sé þing­maður að sinna starfi sínu gagn­vart kjós­endum sínum.“

Þá segir að ekki sé hægt að álykta að allar ferðir þing­manns í aðdrag­anda kosn­inga séu vegna kosn­inga. Ekki sæk­ist allir þing­menn eftir end­ur­kjöri þó svo að þeir eigi fundi með kjós­endum sínum í kjör­dæmum undir lok kjör­tíma­bils.

„Forseti hefur eigi að síður íhugað, og það all­lengi, hvort gera þurfi breyt­ingar á reglum um ferða­kostnað sem tækju til þing­manna sem leita end­ur­kjörs í þeim til­gangi að girða fyrir mögu­legan aðstöðumun á milli þeirra og fram­bjóð­enda sem ekki sitja á þingi á til­teknu tíma­bili í aðdrag­anda kosn­inga,“ segir í svar­inu. „Forseti hefur rætt það mál við vara­for­seta, for­menn þing­flokka og fleiri og hyggst taka málið upp í for­sætis­nefnd á þessu kjör­tíma­bili. Ljóst er þó að setn­ing reglna um ferðir þing­manna í aðdrag­anda kosn­inga getur verið vanda­söm.“

Í færslu á Facebook segir Björn Leví að svar for­seta sé „steypa“. Hann gagn­rýnir fram­setn­ingu gagna í svar­inu og þá nið­ur­stöðu for­seta að það „geti verið“ að ferðir þing­manna teng­ist störfum þeirra í þing­inu en ekki kosn­inga­bar­áttu.

„Já, “geti verið“,“ skrifar Björn Leví. „Það þýðir ekki að þær séu það. Það er á ábyrgð for­seta að sjá til þess að nægum gögnum sé skilað til þess að hægt sé að sýna fram á að fund­ar­gerð sé end­ur­greið­an­leg. Þetta svar er steypa. Forseti þarf að svara þessu aftur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Aksturskostnaður þingmanna

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár