Segja leyniþjónustuna hafa eytt skilaboðum frá 6. janúar

Þegar óskað var eftir að fá afhent texta­skilaboð úr farsímum leyni­þjónustu­manna daginn sem árás var gerð á bandaríska þinghúsið gripu rann­sakendur í tómt.

Árásarmennirnir komu sér þægilega fyrir í þinghúsinu.
Árás­ar­menn­irnir komu sér þægi­lega fyrir í þing­hús­inu. Mynd: EPA

Er yfirmaður rannsókna- og eftirlits­deildar bandaríska innan­ríkis­ráðuneytisins óskaði eftir afriti af skila­boðum starfs­manna leyni­þjónustunnar dagana í kringum árásina á þinghúsið í Washington, fékk hann þau svör að þeim hefði verið eytt. Skýringin: Uppfærsla og endurnýjun á farsíma­búnaði. Frá þessu greindi yfir­maðurinn, Joseph V. Cuffari, í bréfi til formanna öryggis­nefnda öldunga­deildar og fulltrúa­deildar þingsins nú í vikunni.

Rannsókn stendur yfir á aðdrag­anda árásarinnar á þinghúsið. Sérstök þingnefnd fer fyrir rann­sókninni, skipuð bæði fulltrúum repúblikana og demókrata.

Cuffari sagði í bréfi sínu að eyðing skilaboða til og milli starfs­manna leyni­þjónustunnar, bæði 5. og 6. janúar, hafi átt sér stað eftir að hann óskaði eftir að fá þessi gögn afhent. Því væri verið að hindra framgang rétt­vísinnar. Frá þessu greinir í frétta­skýringu Washington Post.

Cuffari og deild hans innan innan­ríkis­ráðuneytisins bað um að fá afhent skilaboð starfs­mannanna er hann var að vinna að eigin rannsókn á árásinni. Samkvæmt lögum eiga starfs­menn leyni­þjónustunnar að afhenda deild Cuffari gögn sem beðið er um. En í þessari tilteknu rannsókn rakst hann á veggi. Honum var ítrekað neitað um að fá gögnin og vildi leyni­þjónustan að lögfræðingar færu fyrst yfir þau. „Þetta leiddi til margra vikna tafa á því að við fengjum gögnin og olli runglingi um hvort þau hefðu öll verið afhent,“ skrifar Cuffari í bréfi sínu til þingsins.

Í grein Washington Post segir að texta­skilaboðin hefðu getað varpað ljósi á aðdrag­anda árásarinnar og jafnvel meintan þátt Donalds Trump í henni. Starfs­menn Hvíta hússins hafa þegar upplýst í skýrslu­tökum hjá rann­sóknar­nefndinni að Trump hafi vitað hvað var í uppsiglingu er vopnaður skari stuðnings­manna hans kom til höfuð­borgarinnar og streymdi svo eftir útifund með honum að þing­húsinu og braust þar inn. Þá hefur einn fyrr­verandi starfs­maður Hvíta hússins sagt að Trump hafi ráðist á starfs­mann leyni­þjónustunnar í forseta­bílnum á leið frá útifundinum. Trump vildi að sér yrði ekið að þing­húsinu með skrílnum en bílstjórinn og lífvörður Trumps voru á öðru máli.

Hafnar ásökunum

Talsmaður leyni­þjónustunnar segir stofnuna ekki hafa eytt texta­skilaboðum frá þessum dögum vísvitandi. Hann segir alla hafa lagt sig fram við að aðstoða við rannsókn málsins, hvort sem það varðar afhendingu gagna eða skýrslu­tökur.

Hann segir að í janúar í fyrra hafi hafist innleiðing á uppfærslu farsíma leyni­þjónustu­manna. Það hefði lengi staðið til og ekki tengst árásinni á þinghúsið á nokkurn hátt. Þetta hafi hins vegar leitt til þess að gögn úr „einhverjum farsímum“ hafi glatast.

Cuffari og hans rannsóknar­teymi hafi ekki óskað eftir þessum farsíma­gögnum fyrr en 26. febrúar í fyrra og þá hafi þessi uppfærsla símanna verið komin vel á veg.

Það var Trump sem tilnefndi Cuffari í stöðu yfir­rannsakanda hjá innan­ríkis­ráðuneytinu, sem svipar nokkuð til starfs ríkis­endur­skoðanda hér á landi. Hann hefur verið harðlega gagn­rýndur fyrir að fara í sögulega fáar rann­sóknir og skoðanir á stofnunum ríkisins síðan hann tók við og fyrir að hindra rann­sóknir annarra stofnanna í ýmsum málum. Eitt þeirra er morðið á George Floyd sem lögreglu­maður hefur nú verið dæmdur í fangelsi fyrir.

Er Cuffari óskaði loks eftir farsíma­gögnum leyni­þjónustunnar vegna árásarinnar á þinghúsið hafði meira en þriðjungur allra starfs­manna hennar fengið nýja farsíma samkvæmt hinni fyrirfram ákveðnu uppfærslu. Allir starfs­menn stofnunarinnar eiga að taka afrit af gömlum símtækjum sínum, gæta þess að engin gögn glatist, m.a. texta­skilaboð. Það gera þeir hins vegar fæstir, segir heimildar­maður Washington Post.

Gögn um Kennedy-morðið

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem leyni­þjónustan hefur ekki þau gögn á reiðu sem þarf til rannsókna. Það gerðist t.d. við endur­upptöku á rannsókn á skot­árásinni á John F. Kennedy, áratugum eftir að hún átti sér stað. Spurningar vöknuðu um hvort leyni­þjónustan hefði fengið upplýsingar um yfir­vofandi hættu, um að hópur manna ætlaði sér að ráða forsetann af dögum. Er sú rann­sóknarnefnd bað um gögn fékk hún þau svör að öllum gögnum í tengslum við morðið á Kennedy hefði verið eytt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár