Borgin segir fjárframlög vegna NPA-samninga duga skammt

Fjármála­skrifstofa Reykja­víkurborgar gerir athuga­semdir við fjár­laga­frumvarp fráfar­andi stjórnar.

Málefnum fatlaðs fólks hefur verið haldið í fjár­svelti um árabil, bæði hvað varðar launa­kostnað og aðstöðu. Í fjármála­áætlun fráfar­andi ríkis­stjórnar er gert ráð fyrir að þjónustu­kröfur og útgjöld sveitar­félaga vegna mála­flokksins aukist, án þess að því sé svarað hvort og hvernig megi mæta kostnaðar­aukanum, meðal annars í tengslum við full­gildingu á samningi Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og lögfestingu notenda­stýrðrar persónulegrar aðstoðar. 

Þetta er álit fjármála­skrifstofu Reykja­víkurborgar og kemur fram í umsögn hennar um fjár­laga­frumvarp fráfar­andi ríkis­stjórnar. Kallar borgin eftir því að þjónusta við fatlað fólk verði full­fjármögnuð í fjárlögum í samræmi við þær þjónustu­kröfur sem ríkið hefur sett og raun­verulegan kostnað við að veita þjónustuna.

Borgin telur að ríkið ætti að koma að fjár­mögnun NPA-samninga af miklu meiri krafti en gert er ráð fyrir í fjár­laga­frumvarpinu, en þar er 70 milljón króna framlag helgað verk­efninu.

Í umsögn fjármála­skrif­stofunnar er bent á árið 2017 sé gert ráð fyrir 13 samningum og að greiðslur til NPA notenda nemi 292 mkr. „Mikill þrýstingur er af hálfu velferðar­ráðuneytisins á sveitar­félögin að fjölga þessum samningum en á hinum Norður­löndunum er staðan sú að menn eru að hverfa frá þessu þjónustu­formi vegna þess að kostnaðurinn hefur farið úr böndum. Þjónustu­formið felur í sér aukið þjónustu­stig frá því sem verið hefur,“ segir í umsögninni. 

„Framlög í fjár­laga­frumvarpi 2018 eru í takt við framlög síðustu ára, en Reykja­víkurborg hefur bent á að ríkið verði að koma að fjár­mögnun NPA samninga með miklu sterkari hætti. Sú aukning á þjónustu­stigi sem NPA samningar fela í sér kalla á aukinn kostnað fyrir sveitar­félögin og hefur lögfesting formsins þannig bein áhrif á útgjöld sveitar­félaga.“

Utangarðsfólk úr öðrum sveitarfélögum
þarf að leita ásjár Reykjavíkurborgar

Borgin gerir ýmsar athuga­semdir við fjár­laga­frumvarp fráfar­andi ríkis­stjórnar. Eitt atriðanna er það að ríkis­sjóður veiti borginni ekki meiri stuðning en raun ber vitni í þjónustu við utan­garðsfólk.

Bent er á að gjald­frjáls þjónusta Reykja­víkurborgar við heimilis­laust fólk nýtist einstaklingum úr öðrum sveitar­félögum þar sem málunum er ekki sinnt. 

„Verið er að vinna að samningum hvað varðar þjónustu neyðar­gistiskýla. Ríkið hefur mjög takmarkað komið að þeirri þjónustu sem borgin veitir þessum hópi einstaklinga en þó með tíma­bundinni aðkomu að rekstri eins heimilis. Árlegur kostnaður Reykja­víkurborgar er um 380 mkr.,“ segir í umsögninni. 

Hækkun olíugjalds bitnar á 
rekstri almenningssamgangna

Reykja­víkurborg hefur sinnt heima­hjúkrun á höfuð­borgar­svæðinu síðan 2009. Fram kemur í umsögn fjármála­skrif­stofunnar að frá 2013 til 2016 hafi útgjöld vegna heima­hjúkrunar hækkað um 25 prósent en á sama tímabili hafi greiðslur ríkisins fyrir þjónustuna aðeins hækkað um 18%. Nauðsynlegt sé að ríkið greiði fyrir þjónustu heima­hjúkrunar í samræmi við raun­kostnað.

Í umsögninni er bent sérstak­lega á að fyrir­huguð hækkun olíu­gjalds muni þyngja rekstur Strætó BS verulega á næstu árum. Fyrir­tækinu verði erfitt að standa undir þessum aukna kostnaði nema til komi sérstakur stuðningur ríkisins, svo sem með endur­greiðslu olíu­gjalds.

„Skorað er á ríki að falla frá fyrir­hugaðri hækkun olíu­gjalds þar sem hækkunin mun auka kostnað við rekstur almennings­samgangna verulega eða finna leiðir til að þessi aðgerð leiði ekki til skerðingar á þjónustu við íbúa,“ segir í umsögn fjármála­skrif­stofunnar.

250 milljóna tekjutap á ári vegna „Fyrstu fasteignar“

Þá er vikið að því tapi sem sveitar­félög verða fyrir vegna skatt­frjálsrar ráðstöfunar séreignar­sparnaðar, og er þá einkum vísað til laga um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð sem voru samþykkt í tíð ríkis­stjórnar Sjálfstæðis­flokksins og Framsóknar­flokksins og kynnt undir yfir­skriftinni „Fyrsta fasteign“.

Lögin fela í sér að fólk getur tekið út uppsafnaðan séreignar­sparnað eða nýtt séreignar­sparnað til að greiða inn á lán, sem tryggt er með veði í fyrstu íbúð, yfir tíu ára tímabili. Vegna laganna gerir Reykja­víkurborg ráð fyrir að verða af útsvars­tekjum sem nema í kringum 250 til 300 milljónum króna ári. 

Gildandi úrræði um nýtingu séreignar­sparnaðar til lækkunar höfuðstóls fasteigna­lána hefur haft umtals­verð áhrif á útsvars­tekjur Reykja­víkurborgar. „Samkvæmt mati Sambands íslenskra sveitar­félaga dags. 18.8.2016 námu tapaðar brúttó útsvars­tekjur Reykja­víkurborgar vegna ráðstöfunar iðgjalds séreignar­sparnaðar til lækkunar húsnæðis­lána u.þ.b. 638 m.kr. vegna tekju­ársins 2015,“ segir í umsögninni. „Ætla má að útsvars­tekjutap borgarinnar vegna skatt­frjálsrar greiðslu séreignar­sparnaðar inn á fasteignalán nemi þannig alls u.þ.b. 3,1 makr vegna tíma­bilsins 1. júlí 2014 til 30. júní 2019.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár