Tíu milljónir settar í þjóðarleikvang fyrir inniíþróttir

Það kostar á bilinu 7,9 til 8,7 milljarða króna að byggja nýjan þjóðar­leikvang fyrir inni­íþróttir og allt að 18 milljarða króna að byggja nýjan Laugar­dalsvöll. Hvorugt verkefnið er fjár­magnað.

Þjoðarleikvangar Íslands eru komnir til ára sinna og uppfylla ekki alþjóðlegar kröfur.
Þjoð­ar­leik­vangar Íslands eru komnir til ára sinna og upp­fylla ekki alþjóð­legar kröfur. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Meirihluti fjár­laganefndar, sem skipaður er nefndar­mönnum stjórnar­flokkanna þriggja, leggur til að tíu milljónir króna verði settar í undir­búning fyrir þjóðar­leikvang fyrir inni­íþróttir á næsta ári. Ekkert framlag er til nýs þjóðar­leikvangs í knatt­spyrnu í Laugardal.

Í rökstuðningi fyrir fram­laginu segir að samkvæmt stjórnar­sáttmála sé þörf á 30 milljóna króna framlagi vegna undir­búnings fyrir slíkan leikvang. „Skýrsla starfs­hóps um þjóðar­leikvang fyrir inni­íþróttir liggur fyrir. Í stjórnar­sáttmála er fjallað um að halda áfram að undirbúa þau verkefni. Næstu skref hvað inni­íþrótta­leikvang varðar eru viðræður um framkvæmdina, stað­setningu, stærð og mögulega kostnaðar­skiptingu.“

Heildar­kostnaður við byggingu þjóðar­leikvangs fyrir inni­íþróttir er áætlaður, samkvæmt skýrslu starfs­hóps sem birt var í fyrra, á bilinu 7,9 til 8,7 milljarðar króna. munurinn felst í því hvort húsið eigi að taka fimm þúsund eða 8.600 áhorf­endur.

Mikið rætt en lítið gerst

Mikið hefur verið rætt um upp­­­bygg­ingu nýrra þjóð­­ar­­leik­vanga fyrir bæði inni­íþróttir og knatt­spyrnu og margir með vænt­ingar til þess að ráð­ist verði í slíka upp­­­bygg­ingu sem fyrst. Staðan er enda þannig að Laugar­dalshöllin stenst ekki alþjóðlegar kröfur og gólf­flötur hennar er ónýtur. Fyrir vikið neyddist körfubolta­landslið Íslands nýverið til að spila heimaleik við Rússland þar frekar en hér.

Þá hefur lengi staðið til að byggja nýjan þjóðar­leikvang fyrir knatt­spyrnu í Laugardal, en hann uppfyllir ekki alþjóðlegar kröfur frekar en Laugar­dalshöll. Starfs­hópur sem ríkið og Reykja­vík­ur­borg skipuðu í jan­úar 2018 um upp­bygg­ingu Laug­ar­dals­vallar hefur skilaði af sér niður­stöðum í apríl sama ár.

Hóp­ur­inn skoð­aði tvo val­kosti ann­ars vegar völl fyrir um 17.500 áhorf­endur með yfir­byggðum áhorf­enda­stæðum en opnu þaki yfir leik­vell­in­um. Hins vegar kostur B sem er fjöl­nota mann­virki fyrir um 20 þúsund áhorf­endur með þaki yfir leik­vell­inum sem hægt er að opna og loka eftir þörf­um. Kostnaður var metinn á sjö til 18 milljarða króna.

Fulltrúar KSÍ, Reykja­vík­ur­borgar og rík­is­ins undir­rituðu svo stofn­samn­ing félags sem á að starfa að und­ir­bún­ingi að mögu­legri upp­bygg­ingu hans um mitt ár 2019.

Til viðbótar er stefnt að byggingu nýs þjóðar­leikvangs í frjálsum íþróttum. Allir leik­vang­arnir eiga það allir sam­eig­in­legt að vera enn ófjármagnaðir.

Boðaði nýjan þjóðarleikvang á kjörtímabilinu

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamála­ráðherra, er með málin á sinni könnu innan ríkis­stjórnarinnar.

Hann sagði í umræðu­þættinum Pall­borðinu á Vísi þann 9. desember síðastliðinn að uppbygging þjóðar­leikvanga væru eitt af þeim verkefnum sem væru efst á hans lista á þessu kjör­tímabili. „Ég reikna með því að mitt fyrsta mál sem ég fer með inn í ríkis­stjórn varði þetta mál. Fyrsti fundurinn sem ég tók sem ráðherra var með ÍSÍ og sérsamböndunum í gær. Það er líka til að undir­strika mikilvægi þessa málefna­flokks."

Þar sagði Ásmundur Einar einnig að dregið gæti til tíðinda í málinu í desember. „Minn hugur stendur nú til þess að á þessu kjör­tímabili geti maður farið á heima­leiki á nýjum þjóðar­leikvangi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár