Dagur hafnar því að borgin standi í vegi fyrir nýjum þjóðarleikvangi í knattspyrnu

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra sagði nýverið að Reykja­vík­ur­borg væri ekki til­búin að borga fyrir sinn hluta af stofn­kostn­aði við und­ir­bún­ing að bygg­ingu á nýjum þjóð­ar­leik­vangi í knatt­spyrnu. Borg­ar­stjóri segir þetta ekki rétt.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Mynd: Birgir Þór

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur, tekur ekki undir þá fram­setn­ingu Bjarni Bene­dikts­sonar, fjármála- og efna­hagsráðherra, um að borgin standi í vegi fyrir frek­ari und­ir­bún­ingi nýs þjóð­ar­leik­vangs í knatt­spyrnu. Bjarni hélt því fram í við­tali við Morg­un­blaðið í vik­unni að Reykja­vík­ur­borg væri ekki til­búin að taka á sig þann stofn­kostnað sem leiddi af hlut­deild hennar í félagi sem ríki og borg stofn­uðu utan um verk­efnið. Hann segir fram­hald máls­ins velta á íslenska rík­inu og Knatt­spyrnu­sam­bandi Íslands (KSÍ).

Þann 12. júní 2019 und­ir­rit­uðu full­trúar KSÍ, Reykja­vík­ur­borgar og rík­is­ins stofn­samn­ing félags sem mun starfa að und­ir­bún­ingi að mögu­legri upp­bygg­ingu þjóð­ar­leik­vangs í Laug­ar­dal. Dagur segir að Reykja­vík­ur­borg hafi borið allan kostnað af rekstri félags­ins und­an­farna mán­uði og lánað rík­inu fyrir hlut þess í rekstri félags­ins þar sem ráðuneytin hafa ekki getað útvegað þær millj­ónir sem þurft hefur til þess. Honum skilst þó ​að þetta standi til bóta og að fyrir liggi heit um fjármögnun und­irbúningsfélags­ins til næstu áramóta

Dagur segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið að borgin vinni með rík­inu að und­irbúningi þriggja þjóðar­leik­vanga í Laug­ar­dal. Þjóðar­leik­vangi í knatt­spyrnu, þjóðar­leik­vangi í inn­anhúsíþróttum (hand­knatt­leik og körfuknatt­leik) og þjóðar­leik­vangi í frjálsum íþróttum. Allir leik­vang­arnir eiga það allir sam­eig­in­legt að vera ófjármagn­aðir. „Reykjavíkur­borg mark­aði sér hins vegar skýra stefnu í málefnum þeirra í tengslum við for­gangsröðun fjárfest­inga í íþróttamálum síðast liðið haust og lýsti sig tilbúna til að kom að fjármögnun þess­ara þjóðar­leik­vanga að því marki sem nýtist börnum og ung­lingum til æfinga og keppni, en barna og ung­linga­starf er lyk­il­for­gangur í íþróttamálum borg­ar­innar. Íþróttafélögin í Reykjavík og Íþrótta­banda­lag Reykjavíkur hafa talað fyrir sömu stefnu.“

[adspot]Hann segir að afstaða borg­ar­innar hafi legið fyrir frá því að borg­ar­ráð sam­þykkti sam­eig­in­lega bókun sem allir sem þar sitja sam­þykktu, auk áheyrna­full­trúa Flokks fólks­ins og Mið­flokks­ins. Bókunina má lesa hér.

Þar er hug­myndum um þjóðar­leik­vang í knatt­spyrnu fagnað og borgin lýsti sig tilbúin að leggja núver­andi völl og mann­virki inn í félag sem gera myndi hann að veru­leika. Jafn­framt væri borgin tilbúin að leggja jafn­gildi núver­andi fjárveit­inga borg­ar­sjóðs til Laug­ar­dalsvallar til verk­efn­is­ins. „Borgin er hins vegar ekki tilbúin að bera ábyrgð á áhættu í sjálfri fram­kvæmd­inni eða rekstri vall­ar­ins. Þar þyrfti ríkið eða KSÍ eða aðrir aðilar að koma til.“

Ekki gert ráð fyrir fjármagni á fjármálaætlun ríkisins

Þann 10. nóv­em­ber 2020 sendi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið frá sér til­kynn­ingu þar sem greint var frá því að rík­is­stjórnin hefði sam­þykkt á fundi sínum þann dag að hefja við­ræður við Reykja­vík­ur­borg um næstu skref vegna bygg­ingu nýs þjóð­ar­leik­vangs, að til­lögu mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

[links]Í til­kynn­ing­unni var meðal ann­ars haft eftir Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, að það væri löngu tíma­bært að ráð­ast í bygg­ingu nýs þjóð­ar­leik­vangs og að hún væri „von­góð um að hann muni rísa á næstu fimm árum.“

Haft var eftir fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra í sömu til­kynn­ingu að nú þyrfti að meta hvernig haga skyldi útboði á helstu verk­þátt­um, t.d. verk­efn­is­stjórn, hönnun og bygg­inga­verk­töku, en jafn­framt þurfa máls­að­ilar að semja um mik­il­væga þætti eins og eign­ar­hald og fjár­mögn­un. „Ég er er fullur bjart­sýni um að lend­ing náist í því og að nýr þjóð­ar­leik­vangur rísi sem allra fyrst,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son.

Þegar fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar fyrir árin 2022-2026 var birt í mars, rúmum fjórum mán­uðum síðar, kom í ljós að ekki var gert ráð fyrir því í áformum stjórn­valda að fjár­magni verði veitt í verk­efnið út árið 2026.

Dagur segir að hann hafi von­ast til þess að ein­hverjir fjár­munir yrðu settir í þjóð­ar­leik­vanga á fjár­mála­á­ætl­un­inni. „Það var þó ekki. Ég held að lyk­il­at­riði varð­andi fjárframlög og ábyrgð á rekstri í hverjum leik­vangi fyrir sig þurfi að liggja fyrir þannig að hægt sé að kanna áhuga alþjóðlegra rekstr­ar­að­ilar að mann­virkj­unum, þar sem við á, áður en hægt sé að gefa upp tímaáætlun sem stenst. Ég vona að þessi mál fari að skýrast. Borgin er alltaf tilbúin að setj­ast yfir málin og þoka þeim áfram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár