Ekki gert ráð fyrir að setja pening úr ríkissjóði í nýja þjóðarleikvanga út árið 2026

Í fyrra­haust sendu stjórn­völd frá sér til­kynn­ingar um bygg­ingu nýrra þjóð­ar­leik­vanga fyrir knatt­spyrnu, hand­bolta og körfu­bolta. Gefið var í skyn að fram­kvæmdir væru á næsta leiti. Ekkert er að finna um fjár­mögnun verk­efn­anna í nýrri fjár­mála­á­ætlun.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti fjármálaáætlun fyrir árin 2022-2026 á mánudag.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti fjár­mála­á­ætlun fyrir árin 2022-2026 á mánu­dag. Mynd: Golli

Hvorki er gert ráð fyrir því að setja fjár­magn í nýjan þjóð­ar­leik­vang í knatt­spyrnu í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar fyrir árin 2022-2026 né nýjan þjóð­ar­leik­vang fyrir inni­í­þróttir sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti í fyrra­dag.

Þar segir að áform um þjóð­ar­leik­vang í knatt­spyrnu séu enn það skammt á veg komin að ekki þótti tíma­bært að gera ráð fyrir fjár­mögnun í þess­ari áætlun. Ekkert er minnst á bygg­ingu nýs þjóð­ar­leik­vangs fyrir inni­í­þróttir á borð við hand­bolta og körfu­bolta.

Í fyrra­haust sendu stjórn­völd frá sér til­kynn­ingar þar sem sagt var að vonir stæðu til að nýr þjóð­ar­leik­vangur í knatt­spyrnu myndi rísa á næstu fimm árum og að fram undan væri að tryggja fjár­mögnun fyrir nýja höll fyrir inni­í­þróttir.

Hagkvæmast að byggja nýjan 15 þúsund manna völl

Þann 10. nóv­em­ber 2020 sendi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið frá sér til­kynn­ingu þar sem greint var frá því að rík­is­stjórnin hefði sam­þykkt á fundi sínum þann dag að hefja við­ræður við Reykja­vík­ur­borg um næstu skref vegna bygg­ingu nýs þjóð­ar­leik­vangs, að til­lögu mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Í til­kynn­ing­unni var meðal ann­ars haft eftir Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, að það væri löngu tíma­bært að ráð­ast í bygg­ingu nýs þjóð­ar­leik­vangs og að hún væri „von­góð um að hann muni rísa á næstu fimm árum.“

[adspot]Haft var eftir fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra í sömu til­kynn­ingu að nú þyrfti að meta hvernig haga skyldi útboði á helstu verk­þátt­um, t.d. verk­efn­is­stjórn, hönnun og bygg­inga­verk­töku, en jafn­framt þurfa máls­að­ilar að semja um mik­il­væga þætti eins og eign­ar­hald og fjár­mögn­un. „Ég er er fullur bjart­sýni um að lend­ing náist í því og að nýr þjóð­ar­leik­vangur rísi sem allra fyrst,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son.

Nú, rúmum fjórum mán­uðum síðar, er ekki gert ráð fyrir því í áformum stjórn­valda að fjár­magni verði veitt í verk­efnið út árið 2026.

Við­ræð­urnar við Reykja­vík­ur­borg­ áttu að byggja á val­kosta­grein­ingu breska ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­is­ins AFL, sem varð hlut­skarp­ast í útboði sem efnt var til á evr­ópska efna­hags­svæð­inu snemma árs í fyrra.

Nið­ur­staða AFL var að hag­kvæm­asti kost­ur­inn varð­andi bygg­ingu nýs þjóð­ar­leik­vangs í knatt­spyrnu væri að byggja nýjan fót­bolta­völl með sætum fyrir 15 þús­und áhorf­endur og að ekki væri fýsi­legt til langs tíma að ráð­ast í end­ur­bætur á Laug­ar­dals­velli.

Átti að „grípa skófluna“

Skömmu áður en að nið­ur­staða AFL lá fyrir, nánar til­tekið 22. sept­em­ber 2020, var birt til­kynn­ing á vef stjórn­ar­ráðs­ins um að starfs­hópur um þjóð­ar­leik­vang fyrir inni­í­þróttir hefði skilað skýrslu um helstu val­kosti er snúa að upp­bygg­ingu slíks íþrótta­mann­virkis. Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hafði skipað starfs­hóp­inn til þess að afla upp­lýs­inga um kröfur sem gerðar voru til mann­virkja sem hýsa alþjóð­lega leiki og mót auk þess að greina þarfir fyrir slíkt mann­virki hér­lendis.

Helstu nið­ur­stöður hóps­ins voru þær að engin mann­virki á Íslandi upp­fylltu þær kröfur sem gerðar eru til sér­sam­banda vegna alþjóð­legra keppna eða land­s­leikja í hand­knatt­leik og körfuknatt­leik.

[links]Til að upp­fylla alþjóð­legar kröfur yrði að byggja nýtt mann­virki. Verkís verk­fræði­stofa var fengin til þess að gera kostn­að­ar­mat á bygg­ingu mann­virkis ásamt því að leggja mat á rekstr­ar­kostnað, þar sem mið var tekið af nýreistri íþrótta­höll í Þránd­heimi í Noregi sem tekur 8.600 manns í sæti.

Í til­kynn­ing­unni var haft eftir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra að fram undan væri að tryggja fjár­mögnun og sam­vinnu við helstu sam­starfs­að­ila. Síðar þyrfti að „ráð­ast í hönnun og grípa skófl­una og byggja fram­tíð­ar­leik­vanga fyrir lands­lið Íslend­inga, íþróttaunn­endur og iðk­endur á öllum aldri.“

Ekki er gert ráð fyrir fjár­magni í bygg­ingu þjóð­ar­leik­vangs fyrir inni­í­þróttir í fjár­mála­á­ætlun fyrir árin 2022-2026.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár