Minni framlög á vinnumarkaði næstu árin

Rík­is­stjórnin gerir ráð fyrir að greiða 36 pró­sentum minna á vinnu­mark­aði og í atvinnu­leys­is­bætur í ár en í fyrra, þrátt fyrir að búist sé við meira atvinnu­leysi í ár.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra Mynd: Bára Huld Beck

Búist er við því að útgjöld rík­is­sjóðs á vinnu­mark­aði og í atvinnu­leys­is­bætur drag­ist saman um rúman þriðj­ung í ár, þrátt fyrir að meira atvinnu­leysi sé spáð heldur en í fyrra. Einnig er gert ráð fyrir sam­drætti í mála­flokknum árin 2022 og 2023, en talið er við að hann verði um 100 millj­örðum krónum minni árið 2023 en hann var í fyrra. Þetta kemur fram í nýrri fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar fyrir árin 2021-2024

Mikil aukning frá 2017

Samkvæmt áætl­un­inni hefur mikil aukn­ing átt sér stað í útgjöldum hins opin­bera í félags- hús­næðis- og trygg­ing­ar­málum frá árinu 2017, meðal ann­ars vegna hækkun frí­tekju­marks atvinnu­tekna aldr­aðra, leng­ingu fæð­ing­ar­or­lofs, auk­inna stofn­fram­laga til bygg­ingar leigu­hús­næðis fyrir tekju­lága, auk nýsam­þykktra laga um hlut­deild­ar­lán.

Einnig skrifar rík­is­stjórnin að fram­lög til mál­efna aldr­aðra og öryrkja hafi auk­ist um 27 millj­arða króna á tíma­bil­inu, meðal ann­ars vegna hækk­unar á bótum almanna­trygg­inga, fjölg­unar á líf­eyr­is­þegum og breyt­inga sem hafa falist í að draga úr krónu á móti krónu skerð­ingum.

Samdráttur næstu árin

Samkvæmt fjár­mála­á­ætl­un­inni fyrir næstu fjögur árin er hins vegar búist við 11 pró­senta sam­drætti í mála­flokknum í ár, úr 373 millj­örðum króna í 333 millj­arða króna. Þyngst vega þar útgjöld hins opin­bera á vinnu­mark­að­inn og í atvinnu­leys­is­bætur, en gert er ráð fyrir að sá liður minnki um tæpa 53 millj­arða króna í ár, úr 148 millj­örðum í 95 millj­arða.

Samkvæmt nýj­ustu þjóð­hags­spá Hagstofu er þó búist við að árs­með­al­tal atvinnu­leysis verði meira í ár heldur en í fyrra. Í ár er gert ráð fyrir að atvinnu­leysið nái 7,8 pró­sentum, en að með­al­tali náði það 6,4 pró­sentum.

[links]Á næstu árum er svo búist við að útgjöld hins opin­bera á vinnu­mark­aðnum drag­ist enn frekar saman, en sam­kvæmt fjár­mála­á­ætl­un­inni munu þau minnka um rúman þriðj­ung árið 2022. Árið 2023 er svo gert ráð fyrir enn frek­ari sam­drætti í mála­flokknum, en þar er búist við útgjöldin nemi um 50 millj­arða króna, sem er tæpur þriðj­ungur af útgjöld­unum árið 2020.

23 milljarðar í hlutabætur

Rík­is­stjórnin hefur ráð­ist í fjölda aðgerða á vinnu­mark­aði til að sporna gegn áhrifum yfir­stand­andi kreppu. Einna stærst er hin svo­kall­aða hluta­bóta­leið, sem vinnu­veit­endur geta að öllu óbreyttu sótt um til 31. maí í ár. Á síð­asta ári voru 23,5 millj­arðar króna greiddir út í hluta­bætur, en gert var ráð fyrir að þær myndu nema 34 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár