Aron Einar vill ræða við lögreglu og gagnrýnir útilokunarmenningu

Landsliðs­fyrirliðinn í knatt­spyrnu karla sendir frá sér yfir­lýsingu eftir að hann var ekki valinn í landsliðs­hópinn af „utan­aðkomandi ástæðum“. Hann fer fram á að fara í skýrslu­töku hjá lögreglu vegna kvölds fyrir ellefu árum.

Aron Einar Gunnarsson
Aron Einar Gunn­ars­son Vill ræða við lög­regl­una um kvöld eitt fyrir ell­efu árum. Mynd: afp

„Það sem nú viðgengst er slaufunarmenning eða útilokunar­menning og hana ætti ekki að líða,“ segir Aron Einar Gunnarsson, landsliðs­fyrirliði í knatt­spyrnu karla, um ákvörðun landsliðs­þjálfarans, Arnars Þórs Viðars­sonar, um að velja hann ekki í landsliðs­hópinn vegna „utan­aðkomandi aðstæðna“.

Aron segist í yfir­lýsingu ekki hafa fengið að skýra mál sitt vegna ásakana dómstóls götunnar. Hann segist ekki ætla að vera meðvirkur dómstóli götunnar.

Segist ekki hafa fengið tækifæri til að ræða málið

„Á samfélags­miðlum hefur verið til umræðu atburður sem sagt er að hafi átt sér stað í Kaupmanna­höfn 2010. Ég hef ekki fengið tækifæri til að ræða málið formlega við KSÍ, eða verið gefinn kostur á standa á rétti mínum gagnvart ávirðingunum, og því sárnar mér þessi fyrirvara­lausa ákvörðun um að verða settur út úr liðinu. Í ofanálag hefur lögregla aldrei haft samband við mig vegna nokkurs máls. Ég hef engar tilkynningar fengið um að ég hafi á einhverjum tíma­punkti verið undir grun og aldrei verið boðaður í yfirheyrslu,“ segir Aron Einar, sem vill nú vera boðaður til skýrslu­töku hjá lögreglu.

„Vegna þessa alls hef því ákveðið að óska eftir því við lögreglu­yfirvöld að fá að gefa skýrslu um þetta kvöld fyrir ellefu árum.“

Aron Einar segist vilja opna umræðuna og kveðst ekki hafa farið fram á neinn trúnað. 

„Fyrir mig, og fjöl­skyldu mína og vini sem þekkja til mín, er mjög sárt að KSÍ, sem ég hef í 97 lands­leikjum gefið alla mína krafta skuli setja mig til hliðar vegna krafna sem byggjast á óljósum orðrómi um lands­liðsmenn. Þetta er óverjandi staða.“

Landsliðsþjálfarinn segir ákvörðunina sína

Arnar Þór Viðarsson landsliðs­þjálfari sagði á blaðamanna­fundi í dag að hann hefði ákveðið að velja hann ekki í hópinn. „Eins og ég sagði áðan var það mín ákvörðun að velja hann ekki,“ sagði Arnar Þór. „Hvað framtíðin ber í skauti sér get ég ekkert spáð fyrir  um.“ 

Hann vildi ekki skýra nánar ástæðu þess að Aron var ekki valinn, en sagði hana tekna í samráði við Aron Einar. „Ég ætla ekki að fara nánar út í það. Ég bið ykkur um að virða það. Þetta er landsliðs­fyrirliðinn okkar. Við erum að vinna okkur saman gegnum þessar utan­komandi aðstæður. Þegar tíminn er réttur munum við koma til baka og útskýra það.“ 

Lands­liðs­maðurinn Gylfi Sigurðsson er sem stendur í farbanni í Bretlandi vegna rann­sóknar á meintu broti gegn ólögráða stúlku. Hann er ekki heldur í landsliðs­hópnum sem mætir Armeníu og Liechtenstein í október.

Kona sagði sögu sína á instagram

Það sem Aron Einar vísar til með „kvöldi fyrir ellefu árum“ virðist vera umræða á samfélags­miðlum, sem hófst á því að ung kona sagði frá því að tveir menn hefðu brotið alvarlega gegn henni árið 2010. Konan sagði sögu sína í maí síðastliðnum. „Ég ætlaði að kæra, fékk lögfræðing, fór í skýrslu­töku hjá lögreglu en hvar sem ég kom var mér sagt að þetta væri erfitt mál, annað land og þeir tveir gegn mér. Ítrekað var ég spurð hvort ég vildi leggja þetta á mig. Eftir margra mánaða bið ákvað ég svo að leggja málið niður, var ekki nógu sterk, gat ekki lagt meira á mig andlega. Þessir menn voru þekktir, annar þeirra þjóð­þekktur í dag.“ Þá sagði hún að hún mætti ekki nafn­greina mennina. „Ég má segja frá, ég má bara ekki nafn­greina. Mig langar ekki að burðast með þetta ein í hjartanu, mig langar ekki að hugsa í hvert skipti sem ég fer á meðal fólks: „Ætli þau viti þetta, ætli þau trúi mér.“ Því það er ógeðslega íþyngjandi og heftandi félags­lega. Ég er alltaf á varðbergi.

Yfirlýsing Arons Einars í heild

Settur saklaus til hliðar í nýrri útilokunarmenningu KSÍ

„Eins og kom fram í fréttum í dag var ég ekki í hópi leikmanna sem Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska lands­liðsins, valdi fyrir komandi lands­leiki. Sú ákvörðun kemur í kjölfar þess að ég lýsti því yfir gagnvart KSÍ að ég gæfi kost á mér, væri í góðu formi og búinn að jafna mig að fullu af nýlegum veikindum. Að auki lýsti ég því yfir að ég hefði ekkert gert af mér og var þá að vísa í nýlega umræðu um meintan ofbeldis­kúltúr innan KSÍ. 

Á blaðamanna­fundi var hins vegar spurningum um ástæður valsins lítið svarað. Ég get aðeins dregið þá ályktun að komandi sjálf­kjörin stjórn KSÍ hafi umboðs­laus beitt sér fyrir því að mér yrði slaufað eins og fram hefur komið í fréttum á DV.is. Árangur lands­liðsins hefur ekki verið þannig að skynsamlegt sé að setja reyndustu mennina til hliðar og því er það ekki ástæðan. Ég hef heldur ekki beðið Arnar Þór um trúnað um þær ástæður að hann velji mig ekki.

Fyrir mig, og fjöl­skyldu mína og vini sem þekkja til mín, er mjög sárt að KSÍ, sem ég hef í 97 lands­leikjum gefið alla mína krafta skuli setja mig til hliðar vegna krafna sem byggjast á óljósum orðrómi um lands­liðsmenn. Þetta er óverjandi staða. 

„Því sárnar mér þessi fyr­ir­vara­lausa ákvörðun um að verða settur út úr lið­inu“

Á samfélags­miðlum hefur verið til umræðu atburður sem sagt er að hafi átt sér stað í Kaupmanna­höfn 2010. Ég hef ekki fengið tækifæri til að ræða málið formlega við KSÍ, eða verið gefinn kostur á standa á rétti mínum gagnvart ávirðingunum, og því sárnar mér þessi fyrirvara­lausa ákvörðun um að verða settur út úr liðinu. Í ofanálag hefur lögregla aldrei haft samband við mig vegna nokkurs máls. Ég hef engar tilkynningar fengið um að ég hafi á einhverjum tíma­punkti verið undir grun og aldrei verið boðaður í yfirheyrslu.

Sem fyrirliði hef ég fyrir löngu lært að axla ábyrgð og það sem nú viðgengst er slaufunarmenning eða útilokunar­menning og hana ætti ekki að líða. Um leið og ég hafna öllu ofbeldi þá lýsi ég því yfir að ég hef aldrei gerst brotlegur gagnvart neinum eða neinni. Ég ætla mér ekki að vera meðvirkur gagnvart dómstól götunnar varðandi atvik sem á að hafa átt sér stað fyrir ellefu árum síðan. Hafi einhver eitthvað út á mig að setja þá bið ég viðkomandi vinsamlegast að hlífa mér ekki, ásaka mig frekar og nafn­greina og gefa mér kost á að verja mig. Það er heiðarlegt.

Vegna þessa alls hef því ákveðið að óska eftir því við lögreglu­yfirvöld að fá að gefa skýrslu um þetta kvöld fyrir ellefu árum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár