Landsliðsþjálfarar: „Við erum mótfallnir öllu ofbeldi“

Landsliðs­þjálfarar íslenska karla­lands­liðsins í fótbolta tóku afstöðu gegn ofbeldi. Lands­fyr­ir­lið­inn Aron Ein­ar Gunn­ars­son var ekki val­inn í hóp­inn þrátt fyrir að hann hefði gefið kost á sér vegna „ut­an­að­kom­andi að­stæðna“, sem voru ekki skýrð­ar nán­ar. Þar sem Kolbeinn Sigþórsson var meiddur var ekki talin þörf á að taka afstöðu til stöðu hans innan lands­liðsins.

Arnar Þór Viðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen tóku afstöðu gegn ofbeldi á blaðamanna­fundi í dag þar sem nýr landsliðs­hópur var kynntur fyrir næstu tvo leiki íslenska karla­lands­liðsins í fótbolta í undan­keppni HM. 

Kolbeinn Sigþórsson og Rúnar Már Sigurjónsson eru ekki í hópnum, en það er landsliðs­fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson ekki heldur. 

Utanakomandi aðstæður 

Utan­aðkomandi ástæður réðu því að Aron Einar var ekki valinn í lands­liðið fyrir næstu tvo leiki karla­lands­liðsins í undan­keppni HM. „Ég ætla ekki að fara nánar út í það. Ég bið ykkur um að virða það,“ segir Arnar Þór Viðarsson landsliðs­þjálfari sem kynnti hópinn rétt í þessu. Sú ákvörðun hefði verið tekin í samráði við Aron. „Þetta er landsliðs­fyrirliðinn okkar. Við erum að vinna okkur saman gegnum þessar utan­komandi aðstæður. Þegar tíminn er réttur munum við koma til baka og útskýra það.“ 

Þá kom fram á fundinum að Aron Einar hefði gefið kost á sér í verkefnið. „Eins og ég sagði áðan var það mín ákvörðun að velja hann ekki,“ sagði Arnar Þór. „Hvað framtíðin ber í skauti sér get ég ekkert spáð fyrir  um.“ 

Vefmiðillinn 433.is birti hins vegar frétt skömmu áður en blaðamanna­fundur lands­liðsins hófst þar sem fullyrt var að stjórn KSÍ, sem tekur við til bráða­birgða um komandi helgi, hefði bannað Arnari Þór að velja Aron í landsliðs­hópinn.

Þurftu ekki að taka afstöðu til Kolbeins

Kolbeinn Sigþórsson var tekinn úr lands­liðinu fyrir síðasta leik samkvæmt ákvörðun stjórnar KSÍ, í kjölfar ábendinga um meðferð knattspyrnu­sambandsins á máli er varðaði kærur á hendur Kolbeini vegna kynferðislegrar áreitni og líkams­árása. Kærunum lauk með sátt á milli Kolbeins og þeirra kvenna sem sökuðu hann um ofbeldi, og greiddi hann þeim bæði bætur og lagði fé inn á Stígamót til að bæta fyrir framkomu sína.

Kolbeinn er meiddur og því kom ekki til þess að taka þyrfti ákvörðun um aðkomu hans að lands­liðinu. Sagði Arnar óþarft að velta því frekar fyrir sér hvort hann hefði verið valinn í hópinn, ef og hefði. 

Einfaldlega ekki valinn 

Rúnar Már Sigurjónsson var einnig tekinn úr hópnum fyrir síðasta leik, samkvæmt ákvörðun stjórnar, og er heldur ekki í hópnum núna. Þjálf­arinn útskýrði það ekki nánar, sagði að hann hefði einfald­lega ekki verið valinn.

Í milli­tíðinni hefur stjórnin ákveðið að hætta störfum, en á fundinum kom fram að þjálfurunum hefði ekki verið bannað að velja „einn né neinn“. Ákvarðanir um leikmenn hafi því verið þeirra. 

Miklar áskoranir framundan

Áður en hópurinn var kynntur ávarpaði Arnar Þór umræðuna um meðferð ofbeldis­mála innan KSÍ og ásakanir á hendur lands­liðsmönnum. „Eins og þið vitið þá stendur íþrótta­hreyfingin frammi fyrir miklum áskorunum næstu vikum og í náinni framtíð. Það er margt sem við höfum gert mjög vel lengi en það eru að sjálfsögðu hlutir sem við viljum laga og munum laga og það er sem betur fer komið í ákveðið ferli.“

Vinna væri hafin við að laga ákveðna verkferla. Landsliðs­þjálfarar hefðu kallað eftir ramma til að vinna eftir, en nú væru þeir staddir í millibils­ástandi, þar til ný stjórn og nýr formaður taka við störfum næst­komandi laugardag. Þá verða verk­ferlar kláraðir sem ættu að auðvelda þeim að takast á við þá mikilvægu vinnu sem er fyrir höndum. 

„Við erum að sjálfsögðu mótfallnir öllu ofbeldi og erum stoltir af því að geta tekið þátt í íþrótta­hreyfingu sem er tilbúin til að laga sitt starf og vinna þá vinnu sem þarf að vinna til að geta stigið vel inn í fram­tíðina.“

Gagnrýndir fyrir afstöðuleysi

Áður hafa forsvars­menn KSÍ verið gagn­rýndir fyrir að taka ekki afgerandi afstöðu gegn ofbeldi á meðan þessi umræða stendur yfir.

Kristín S. Bjarna­dóttir skrifaði meðal annars færslu fyrr í september, þar sem sagði: „Á meðan engri auðmýkt er enn andað frá KSÍ fólki, þrátt fyrir fyrirheit um annað; á meðan enginn knattspyrnu­maður treystir sér á heilum mánuði til að taka skýra afstöðu gegn ofbeldi; á meðan fólk eys skömmum yfir Þórhildi og aðra þolendur í athugasemda­kerfum fjölmiðla, í boði þöggunar fólksins sem áður var talið upp hér að ofan; þá, á meðan, eru þó nokkuð margar ungar konur, þolendur, sem líða vítiskvalir vegna viðbragða og viðbragða­leysis samfélagsins.“

Þórhildur Gyða Arnar­dóttir steig fram til að greina frá samskiptum sínum og fjöl­skyldu sinnar við KSÍ vegna kæru á hendur Kolbeini. 

Ekkert heyrt í Gylfa

Annar lands­liðsmaður, Gylfi Þór Sigurðsson, var hand­tekinn í Bretlandi vegna gruns um kynferðis­brot gagnvart ólögráða stúlku. Honum var sleppt gegn tryggingu en rannsókn málsins stendur enn yfir. Aðspurður hvort hann hefði verið í samskiptum við Gylfa Þór, sagði Arnar einfald­lega: „Nei.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár