Þolandi rís upp gegn Óttari: Í tvö ár hefur lífið verið undirlagt af ofbeldinu og afleiðingum þess

Júlía Birg­is­dóttir gagn­rýnir harð­lega ummæli sem Óttar Guð­munds­son geð­læknir lét falla í Síð­deg­is­út­varpi Rásar 2 í gær, um að fólk sem sendi nekt­ar­myndir af sér á net­inu bæri sjálft ábyrgð á því ef mynd­irnar færu í dreif­ingu. Júlía bendir á að eng­inn ber ábyrgð á ofbeldi nema sá sem beitir því. Um leið þakkar hún honum að færa kraft í umræð­una.

Júlía Birgisdóttir
Júlía Birg­is­dóttir Til þess að taka valdið aftur til sín steig Júlía fram sem brota­þoli staf­ræns kyn­ferð­is­of­beldis. Hún ætl­aði ekki að leyfa mynd­band­inu að ógna sér og þrátt fyrir að margt hafi áunn­ist er enn mik­il­vægt að snúa umræð­unni og færa ábyrgð­ina til þeirra sem brjóta á öðrum.

Júlía Birg­is­dóttir steig fram sem brota­þoli staf­ræns ofbeldis í Kast­ljós­inu í des­em­ber árið 2015. Hún gagn­rýnir harð­lega ummæli Óttars Guð­munds­sonar geð­læknir  sem hann lét falla í Síð­deg­is­út­varpi Rásar 2 um staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi. Meðal þess sem Óttar sagði um þolendur var: „Þá veit hún [brota­þol­andi] ekk­ert sitt rjúk­andi ráð að hafa verið svikin og því um líkt, en nátt­úr­lega getur hún engum um kennt nema sjálfri sér, því það bera allir ábyrgð á því sem þeir setja á netið sjálfir.“

Um leið og Júlía gagn­rýnir nálgun Óttars þakkar hún honum fyrir að setja á ný kraft í umræð­una um staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár