Erfitt að vinna gegn orkuverðshækkunum

Vonir standa til um að nýtt samkomulag á milli Evrópu­sambandsins og Banda­ríkjanna um viðskipti á jarðgasi ásamt meiri olíu­framleiðslu vestan­hafsmuni lægja öldurnar á orku­mörkuðum. Hins vegar er framtíðar­þróunin bundin mikilli óvissu.

Heims­markaðsverð á olíu og jarðgasi hefur tekið miklum sveiflum í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu. Verðið hækkaði skarpt á fyrstu dögum stríðsins, en hefur svo lækkað aftur að hluta til, eftir að Banda­ríkin og aðrir orku­fram­leiðendur tilkynntu að þau ætluðu að framleiða meiri olíu og selja jarðgas til Evrópu­ríkja.

Þrátt fyrir það virðast verðsveiflurnar ekki vera á undan­haldi, en sérfræðingar telja að orku­verðið geti hækkað enn frekar í fram­tíðinni vegna flösku­hálsa og óvissu um áframhald stríðsins.

Meiri útflutningur og framleiðsla

BBC greindi frá því síðastliðinn föstudag að Banda­ríkin hefðu náð samkomu­lagi náð við Evrópu­sambandið um aukinn útflutning á jarðgasi. Samkvæmt því munu Banda­ríkin, ásamt öðrum ríkjum,flytja um 15 milljarða rúmmetra af jarðgasi aukalega til Evrópu í ár, til viðbótar við 22 milljarða rúmmetra sem sambandið flutti inn frá þeim í fyrra.

Samningurinn er kærkominn fyrir Evrópu­sambandið, sem stefnir að því að draga úr þörf sinni á innflutningi gass frá Rússlandi vegna innrásarinnar. Aukinn innflutningur á jarðgasi frá öðrum löndum er liður í þeirri áætlun, en sambandið hyggst einnig ætla að auka fjár­festingar sínar í grænum orku­gjöfum.

Bandaríkja­stjórn hefur einnig þrýst á olíu­fyrirtæki þar í landi að auka fram­leiðslu sína eftir að heims­markaðs­verðið á hráolíu fór upp í methæðir fyrr í mánuðinum. Önnur olíu­framleiðslu­lönd, líkt og Sameinuðu arabísku fursta­dæmin og Sádi Arabía, hafa einnig tilkynnt að þau munu bregðast við þessum verð­hækkunum með meiri fram­leiðslu.

Líkt og sést á mynd að ofan hefur heims­markaðsverð hráolíu, ásamt verð á jarðgasi á evrópskum mörkuðum, lækkað nokkuð á allra síðustu dögum. Þó er verðið enn langt frá því sem það var í byrjun árs.

Flöskuhálsar og óvissa um stríðið

Þó er óvíst hversu mikil áhrif þessi viðbrögð munu hafa á orkuverð til lengri tíma. Líkt og kemur fram í frétt BBC jafn­gildir umsaminn auka­innflutningur Evrópu­sambandsins á jarðgasi frá Banda­ríkjunum í ár einungis tíu prósentum af því magni jarðgass sem það flytur inn frá Rússlandi.

Til lengri tíma stefna Banda­ríkin þó að auka gasútflutning sinn enn meira, en efasemdir eru uppi um hversu mikið þau geta aukið fram­leiðslu sína.

Svipaðar efasemdir eru uppi um fram­leiðslu Banda­ríkjanna á olíu, en samkvæmt frétt Financial Times eru flösku­hálsar byrjaðir að myndast í olíu­framleiðslu þar í landi. Miðillinn segir flösku­hálsana vera margþætta, erfitt hafi reynst að fá rétt aðföng fyrir fram­leiðsluna í tæka tíð, en einnig séu vandamál með að finna starfs­fólk.

Aðrir sérfræðingar hafa einnig bent á að verðið gæti hækkað enn meira vegna óvissu um framgang stríðsins til lengri tíma. Nadia Wiggen, orku­sérfræðingur hjá norska fyrri­tækinu Pareto, segist í samtali við Dagens Næringsliv telja að fjár­festar hafi ekki að fullu tekið slíka óvissu með inn í reikninginn.

Samkvæmt Wiggen gæti stríðið varað mun lengur en vonir standa um þessa stundina og gæti það hækkað verðið á olíu og jarðgasi á næstu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár