Bræður á spena Flokks heimilanna

Bræð­urnir Kristján Snorri og Eyjólfur Vestmann Ing­ólfs­synir yfir­tóku stjórn­mála­flokk sem Pétur Gunn­laugs­son og Arn­þrúður Karls­dóttir voru í fram­boði fyrir. Þeir hafa und­an­farin ár lifað á rík­is­styrkjum til flokks­ins. Kristján hefur stefnt Pétri fyrir meið­yrði.

Eyjólfur og Kristján
Eyjólfur og Kristján Bræð­urnir, sem hafa verið bornir þungum sökum, á góðri stund í Ástralíu.

Bræð­urnir Kristján Snorri og Eyjólfur Vestmann Ing­ólfs­synir hafa und­an­farin ár lifað á rík­is­styrkjum sem stjórn­mála­sam­tökin Flokkur heim­il­anna fær úr rík­is­sjóði. Flokk­ur­inn var stofn­aður af Séra Halldór Gunn­ars­son í Holti, en útvarps­fólkið Arn­þrúður Karls­dóttir og Pétur Gunn­laugs­son voru meðal þeirra sem fóru fram fyrir flokk­inn. Var Pétur for­maður, áður en bræð­urnir yfir­tóku flokk­inn í kjöl­far kosn­inga.  Flokk­ur­inn fékk um 3 pró­sent atkvæða sem þýðir að hann á rétt á 40 millj­ónum króna yfir núver­andi kjör­tíma­bil. Þetta kom fram í meið­yrða­máli Krist­jáns Snorra gegn Pétri en aðal­með­ferð fór fram í síð­ustu viku. Meint meið­yrði Péturs snú­ast um orð sem hann lét falla á Eyjunni en þar sagði hann að Kristján Snorri hefði ekki borgað skuldir flokks­ins en þess í stað farið á heims­meist­ara­mót í fót­bolta í Brasilíu.  

Í kjöl­far alþing­is­kosn­ing­anna 2013 hefur Flokkur heim­il­anna fengið um 19 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði. Bræð­urnir Kristján Snorri og Eyjólfur Vestmann Ing­ólfs­synir, sem með fjand­sam­legri yfir­töku tóku yfir stjórn flokks­ins í kjöl­far kosn­ing­anna, eru tveir af þremur stjórn­ar­mönnum. Er Kristján for­maður og hefur flokk­ur­inn borgað einka­fyr­ir­tæki hans, Hel­stirni ehf., millj­ónir fyrir ráð­gjafa­þjón­ustu og húsa­leigu. Eyjólfur, bróðir hans, fékk tæpar þrjár millj­ónir í aft­ur­virk laun, og fær að auki 250 þús­und krónur í laun á mán­uði sem fram­kvæmd­ar­stjóri, þrátt fyrir að flokk­ur­inn hafi ekk­ert starfað síðan í kosn­ing­unum 2013.  

Útvarpsmaður og lögmaður
Útvarps­maður og lög­maður Pétur eru mjög ósátt við stjórn flokks­ins og rekstur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár