Ætla ekki að leggja niður gistináttaskatt til frambúðar

Stefnt er að því að fram­lengja niður­fellingu á gistinátta­skatti í tvö ár í viðbót, og innheimta hann ekki aftur fyrr en 2024. SAF vill að hann verði aflagður með öllu en fjármála- og efnahags­ráðuneytið telur ekki tilefni til þess.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Fjármála- og efnahags­ráðuneytið telur ekki tilefni til að leggja niður gistinátta­skatt til frambúðar. Þetta kemur fram í minnis­blaði sem ráðuneytið hefur sent Alþingi með samantekt um umsagnir sem bárust um bandorm vegna fjár­laga­frumvarps ársins 2022 og viðbrögð þess við þeim.

Í band­orminum – frumvarpi til breytinga á ýmsum lögum vegna fjár­laga­frumvarps næsta árs – er lagt til að gistinátta­skattur, sér­stakt gjald sem leggst ofan á hverja selda ein­ingu næt­ur­gist­ing­ar, verði ekki inn­heimtur fyrr en árið 2024.

Skatt­ur­inn var fyrst tek­inn upp árið 2012 og hefur þann til­gang að afla tekna til að stuðla að upp­bygg­ingu, við­haldi og verndun fjöl­sóttra ferða­manna­staða, frið­lýstra svæða og þjóð­garða. Skatt­ur­inn er nú 300 krónur fyrir hverja selda ein­ingu næt­ur­gist­ingar á Íslandi. Áður en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á í upp­hafi árs 2020 hafði verið gert ráð fyrir því að skatt­ur­inn skil­aði yfir 1,2 millj­örðum króna í rík­is­sjóð.

En svo kom veiran og lét á sér kræla. Skatt­ur­inn var felldur niður tíma­bundið í einum af fyrstu aðgerða­pökk­unum til þess að mæta efna­hags­legum áhrifum veirunn­ar. Skatt­ur­inn átti hins vegar að óbreyttu að taka gildi á ný þann 1. jan­úar 2022, en það mun ekki ger­ast, sam­kvæmt fyr­ir­ætl­unum rík­is­stjórn­ar­inn­ar.

Ríkið verður af 1,9 milljörðum næstu tvö ár

Samtök ferða­þjónustunnar (SAF) lögðu til í umsögn sinni um frum­varpið að gistinátaskattur yrði felldur niður til frambúðar.

Í umsögn samtak­anna sögðu þau að engin rök mæli með endur­upptöku skattsins. „Gistinátta­skattur er slæm leið til innheimtu gjalds af ferða­mönnum af ýmsum ástæðum, m.a. vegna þess hve ójafnt hann leggst á seljendur gistingar og skekkir því samkeppni. Af sömu ástæðum leggst gistinátta­skattur einnig ójafnt á ferðamenn og uppfyllir því alls ekki markmið löggjafans með álagningu skattsins.“

Í minnis­blaði fjármála- og efnahags­ráðuneytisins segir að með fram­lengdri frestun á endur­upptöku skattsins lækki skatt­tekjur ríkis­sjóðs um 860 milljónir króna á næsta ári og 1.030 milljónir króna á árinu 2023. Því er verið að færa þeim sem eiga undir venju­legum kringum­stæðum að borga hann tæplega 1,9 milljarða króna í skatta­afslátt á tveggja ára tímabili.

í stjórnar­sáttmála ríkis­stjórnarinnar kemur fram að samhliða endur­reisn ferða­þjónustunnar verði fyrir­komulag gjaldtöku í greininni tekið til skoðunar. „Horft verði til þess að breikka skatt­stofninn og tryggja jafnræði aðila á markaði. Þá verði unnið að breytingum á fyrir­komulagi gistinátta­skatts í samvinnu við greinina og sveitar­félögin með það að markmiði að sveitar­félögin njóti góðs af gjald­tökunni. Með vísan til þessa og þar sem lögð er til fram­lenging á niður­fellingunni um tvö ár í frum­varpinu telur ráðuneytið ekki tilefni til frekari breytinga að svo stöddu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár