Þegar gengið er inn í apótek Lyfju í Lágmúlanum blasir við væntanlegum viðskiptavini löng röð ýmissa fæðubótarefna, vítamína og sumt er ekki hægt að kalla annað en kukl. Ekki tók langan tíma fyrir Svan að finna ýmsar vörur sem lofuðu fram úr ermunum.
„Flest fæðubótarefnin, sem eru til sölu í apótekunum, eru með efnum sem hafa einhverja lífefnafræðilega eiginleika og hafa þannig mögulega áhrif á einhver tiltekin efnaskiptaferli í líkamanum, til dæmis lífræn efni úr plöntum sem geta haft áhrif á boðefni í heilanum. Efnin og áhrif þeirra á líkamann eru mismikið rannsökuð og það skiptir máli að það sem sagt er um ágæti þeirra á umbúðunum fari ekki fram úr því sem vitnisburður rannsókna segir til um. Sé um getgátur um að ræða á að orða að þannig að það sé ljóst, en það vill loða við að of miklu sé lofað eða kynning sett fram sem staðreynd,“ …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.























































Athugasemdir