Lagt til að leggja niður prestakallið í Saurbæ eftir að fjölskylda prestsins flutti úr prestbústaðnum vegna veikinda

Lagt er til að leggja niður Saur­bæj­ar­presta­kall, fremur en að gera við prest­bú­stað­inn. Ekkert sam­ráð verið haft við Kristinn Jens Sig­ur­þórs­son sókn­ar­prest eða sókn­ar­nefndir vegna máls­ins. Tillagan verður tekin fyrir á kirkju­þingi sem hefst á morgun.

Leggja niður prestakallið
Leggja niður presta­kallið Kristinn Jens sókn­ar­prestur í Saurbæ á Hval­fjarð­ar­strönd hefur ekki heyrt í neinum full­trúa á kirkju­þingi, þar sem taka á fyrir til­lögu um að afleggja presta­kallið og þar með stöðu hans. Mynd: Þjóðkirkjan

Fyrir kirkju­þing hefur verið lögð til­laga um að leggja niður Saur­bæj­ar­presta­kall á Vest­ur­landi og afleggja þar með búsetu á prest­setr­inu Saurbæ á Hval­fjarð­ar­strönd. Ástæðan, sem sett er fram í grein­ar­gerð með til­lög­unni er sú að ellegar bíður kirkju­mála­sjóðs umtals­verður kostn­aður. Glímt hefur verið við myglu í prest­bú­staðnum í Saurbæ um ára­bil, án þess að tek­ist hafi að kom­ast fyrir hana að fullu. Er nú svo komið að sókn­ar­prest­ur­inn, Kristinn Jens Sig­ur­þórs­son, hefur flutt úr prest­bú­staðnum, með tíma­bundnu leyfi bisk­ups, þar eð hann telur að hús­næðið sé heilsu­spill­andi. Í stað þess að ráð­ast í frek­ari fram­kvæmdir til að kom­ast fyrir myglun eða byggja hrein­lega nýjan prest­bú­stað hefur nú verið lagt til að leggja Saur­bæj­ar­presta­kall niður. Þing­maður for­dæmir fram­göngu þjóð­kirkj­unnar í mál­inu.

Kristinn Jens tók við emb­ætti í Saurbæ árið 1996 og hefur búið á jörð­inni síðan þá og þjónað presta­kall­inu. „Þetta á sér langa sögu. Strax þegar við komum í húsið árið 1996 bentum við á að það væri senni­lega raki í kjall­ar­anum og með jöfnu milli­bili frá þeim tíma hefur verið farið í end­ur­bætur á hús­inu. Það var síðan árið 2013 sem við átt­uðum okkur á því, fjöl­skyldan, að senni­lega stæði bág­borið heilsu­far okkur í tengslum við þennan raka,“ segir Kristinn Jens en fjöl­skyldan hefur meðal ann­ars glímt við astma, melt­ing­ar­sjúk­dóma og ýmis önnur veik­indi.

Verulegar framkvæmdir ekki skilað árangri

Gerð var úttekt á hús­inu og ráð­ist í fram­kvæmdir 2014 sem stóðu til árs­ins 2015 með hléum. Kristinn Jens og hans fjöl­skylda þurftu að flytja úr hús­inu í fjóra mán­uði á þeim tíma á meðan að á fram­kvæmdum stóð. Árið 2015 var húsið afhent Kristni Jens að nýju og flutti fjöl­skyldan inn á ný. „Við finnum upp úr þessu að okkar heilsu­far verður heldur skárra, þrátt fyrir að við vitum að það taki nokkuð langan tíma að jafna sig eftir að hafa búið við langvar­andi búsetu við myglu. Svo haustið 2016 fæ ég aftur flensu og þá er ég jafn slæmur eða verri en ég hafði nokkru sinni verið.“

Kristinn Jens segir að þá hafi hann, í októ­ber 2016, óskað eftir því við Odd Ein­ars­son, fram­kvæmda­stjóra Kirkju­ráðs, að fá nýja mæl­ingu á myglu í hús­inu og jafn­framt að annar aðili en áður hafði komið að verk­inu yrði feng­inn til starfans. Nið­ur­staða Odds var hins vegar sú að fá tvö fyr­ir­tæki til mæl­inga, Verkís, sem áður hafði haft yfir­um­sjón með mæl­ingum og end­ur­bótum á prest­setr­inu, og verk­fræði­stof­una Eflu. Bæði fyr­ir­tækin gerðu sínar mæl­ingar árið 2017 og komust að mjög mis­mun­andi nið­ur­stöðu. Í til­felli Verkís fannst mygla og raki í tveimur sýnum en í til­felli Eflu mæld­ist mygla í öllum sýnum sem tekin voru, á öllum hæðum húss­ins, og mik­inn raka á sumum stöðum, að sögn Kristins Jens. „Samkvæmt nið­ur­stöðu Eflu var við­gerðum sem gerðar höfðu verið í kjall­ara mjög ábóta­vant og þar mæld­ist mik­ill raki og mygla ennþá. Ráðast þyrfti í aðgerðir og Efla lagði fram aðgerð­ar­á­ætlun í þeim efnum. Stað­reyndin er hins vegar sú að í frek­ari aðgerðum í Saurbæ, nú á þessu ári, hefur nán­ast ein­göngu verið fylgt til­lögum Verkís en aðgerð­ar­á­ætlun Eflu að mestu verið hunsuð.“

Kristinn Jens og fjöl­skylda fluttu á Akranes í jan­úar á þessu ári. Hann fékk síðan prest­bú­stað­inn á ný afhentan 31. júlí í sumar en tók við honum með fyr­ir­vara og hefur enn ekki flutt þar inn á nýjan leik. Hann segir að hann hafi fengið leyfi bisk­ups Íslands til að búa tíma­bundið utan sókn­ar­innar, en sam­kvæmt lögum er prestum almennt skylt að hafa aðsetur og lög­heim­ili á prest­setri þar sem þau eru lögð til.

Vilja afleggja prestakallið til að losna við kostnað

Nú hefur hins vegar verið lögð fram umrædd til­laga fyrir kirkju­þing sem hefst á morgun að leggja niður Saur­bæj­ar­presta­kall og þrjár sóknir þess verði færðar undir Garða­presta­kall á Akranesi. Í grein­ar­gerð með til­lög­unni segir: „Ein meg­in­á­stæða þess að til­laga þessi er flutt á þessu kirkju­þingi, er sú að mjög miklir fjár­hags­legir hags­munir eru í húfi ef ekk­ert er að gert. Nánar til­tekið er um að ræða útlagðan við­bót­ar­kostnað kirkju­mála­sjóðs að fjár­hæð tæp­lega fimm millj­ónir króna á ári, vegna stöðu mála.“ Þá segir í til­lög­unni að Kristni Jens verði tryggt prests­emb­ætti í Garða­presta­kalli með breyt­ing­unum.

Enginn haft samband við prestinn

Kristinn Jens segir að eng­inn hafi haft sam­band við sig varð­andi þessa til­lögu og hann hafi frétt af henni fyrir til­viljun síð­ast­liðið sunnu­dags­kvöld. Þá viti hann að ekki hafi verið haft sam­ráð við sókn­ar­nefndir neinna þeirra þriggja sókna sem séu undir Saur­bæj­ar­presta­kalli. Ekki hafi heldur verið rætt við sókn­ar­prest­inn á Akranesi, ekki starf­andi prest þar og ekki sókn­ar­nefnd Garða­presta­kalls heldur. Það hafi því ekki verið haft sam­ráð við neinn þeirra sem málið snerti. „Það hefur eng­inn kirkju­þings­full­trúi haft sam­band við mig eða rætt þetta við mig. Það hefur eng­inn heyrt af þessu.

„Á Saurbæ hefur verið prest­setur í 800 ár, þar sat Hall­grímur Pét­urs­son sem prestur og þar orti hann sína Pass­íu­sálma.“

Yrði af þessu yrðu breyt­ingar á mínum högum, án míns vilja. Ég yrði í fyrsta lagi ekki lengur sókn­ar­prestur heldur bara starf­andi prestur í sam­ein­uðu presta­kalli. Svo má ekki gleyma því að ég er einn af síð­ustu prest­unum sem er ævi­ráð­inn, sam­kvæmt hinum gömlu lögum um opin­bera starfs­menn. Um mig gilda því önnur lög og önnur ákvæði en um venju­lega emb­ætt­is­menn í dag. Til­færsla á mér í emb­ætti er háð því að ég lækki ekki í mínum lög­kjörum og partur af mínum lög­kjörum eru kirkju­jörðin Saurbær og hlunn­indi þar auk búsetu á prest­setr­inu. Þau kjör verða því ekki af mér tekin, eða ígildi þeirra.“

Kristinn Jens segir að í ofaná­lag myndi þessi gjörn­ingur hleypa öllu starfi í sóknum Saur­bæj­ar­presta­kalls í upp­nám. „Þar er það mál manna að þetta sé algjört virð­ing­ar­leysi gagn­vart þeim. Á Saurbæ hefur verið prest­setur í 800 ár, þar sat Hall­grímur Pét­urs­son sem prestur og þar orti hann sína Pass­íu­sálma. Það er ekki verið að sýna sög­unni mikla virð­ingu með þessu, ekki frekar en sókn­ar­börnum eða mér.“

Þingmaður fordæmir framgöngu þjóðkirkjunnar

Haraldur Bene­dikts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokksin, er búsettur á Reyn undir Akra­fjalli og er í sókn­ar­barn í Saur­bæj­ar­presta­kalli. Hann skrif­aði færslu á Facebook í dag þar sem hann kall­aði vinnu­brögð, aðferð­ar­fræði og fram­göngu yfir­valda þjóð­kirkj­unnar í mál­inu for­kast­an­leg. Sjá má færslu Haraldar hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár