Tapaði meiðyrðamáli og gert að greiða 800 þúsund krónur

Haukur S. Magnússon, fyrr­verandi ritstjóri Grapevine, stefndi blaða­manni Stundarinnar vegna fréttar þar sem tilefni brott­hvarfs hans úr ritstjóra­stóli var áréttað.

Haukur Magnússon
Haukur Magn­ús­son Rit­stjóri Grapevine sagði í síð­asta leið­ara að honum hefði „loks­ins tek­ist að segja upp“. Sann­leik­ur­inn var sá að honum hafði verið gert að láta af störfum eftir að þrír kven­kyns lær­lingar kvört­uðu undan honum. Í kjöl­far fréttar þess efnis krafð­ist Haukur tveggja millj­óna króna frá blaða­manni Stund­ar­innar. Mynd:

Haukur S. Magnússon, fyrr­verandi ritstjóri Reykjavik Grapevine, þarf að greiða 800 þúsund krónur í máls­kostnað, eftir að hann tapaði meiðyrða­máli gegn blaða­manni Stundarinnar. Dómur í máli Hauks gegn Áslaugu Karen Jóhanns­dóttur blaða­manni féll í Héraðs­dómi Reykja­víkur í gær. 

Forsaga málsins er sú að Haukur skrifaði leiðara í Reykjavík Grapevine, þar sem hann gaf til kynna að hann léti af starfi ritstjóra að eigin frumkvæði. Sann­leikurinn var hins vegar sá að Hauki hafði verið gert að hætta eftir að þrír lærlingar, sem störfuðu undir Hauki, sendu bréf á útgáfu­félagið og kvörtuðu undan áreitni af hans hálfu.

Stundin birti frétt þess efnis í febrúar 2016 og brást Haukur við með því að senda kröfu á blaðamann Stundarinnar, í gegnum lögmann sinn, Vilhjálm H. Vilhjálmsson, þar sem farið var fram á að Áslaug Karen greiddi honum tvær milljónir króna. Tæpu ári síðar barst stefna á grund­velli þess að umfjöllunin væri ólögmæt og flokkaðist undir brot gegn hegningar­lögum.

Dómari í málinu komst að þeirri niður­stöðu að fylgt hafi verið eðlilegu verklagi í frétta­mennsku við vinnslu fréttarinnar.

Áslaug Karen var sýknuð af kröfum Hauks og var Hauki gert að greiða 800 þúsund krónur í máls­kostnað.

„Ekki liggur annað fyrir en að stefnda hafi fylgt eðlilegu verklagi í frétta­mennsku við vinnslu fréttarinnar. Hún ræddi við tvo heimildar­menn og hafði undir höndum tvö af þeim þremur bréfum sem bárust útgáfu Reykjavík Grapevine. Þá segir í fréttinni að stefnda hafi séð önnur samskipti konunnar við stefnanda og að hún hafi fengið stað­festingu frá Stíga­mótum um að hún hafi leitað þangað. Að lokum leitaði hún upplýsinga frá útgáfu­fyrirtæki Reykjavík Grapevine um hvort bréfin hefðu borist og valdið því að stefnandi hafi látið af starfi ritstjóra. Þegar litið er til framan­greindra atriða og þau metin heild­stætt, einkum að teknu tilliti til þess erindis sem fréttin átti til almennings, fram­setningar hennar og aðdrag­anda, auk vinnu­bragða stefndu við gerð fréttarinnar, telur dómurinn að með hinum umstefndu ummælum hafi stefnda ekki farið út fyrir mörk leyfilegrar tjáningar í fjöl­miðlum samkvæmt 73. grein stjórnar­skrárinnar. Því ber að hafna öllum kröfum stefnda,“ segir í dóms­úrskurðinum.

Í dómnum segir einnig að ummælin, sem stefnt var fyrir, hafi komið fram í umfjöllun þar sem því var haldið fram að yfirmaður hafi þurft að víkja úr starfi eftir að þrír undirmenn hans höfðu sakað hann um kynferðis­lega áreitni. „Sú umfjöllun tengist almennri þjóðfélags­umræðu, sem hefur verið áberandi síðustu ár, um þá erfið­leika sem þolendur kynferðis­ofbeldis geta af ýmsum ástæðum átt með að stíga fram og tilkynna brotið. Umfjöllunin, þar á meðal lýsing á efni þeirra ásakana sem undir­mennirnir báru á stefnanda, var því liður í þjóð­félagslegri umræðu og átti erindi til almennings.“

Fyrirvari vegna hagsmuna: Í fréttinni fjallar Stundin um sér tengdan aðila, blaðamann Stundarinnar, og dómsmál sem varðar Stundina beint.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár