Niðursveifla á Wall Street - Amazon fallið um 200 milljarða dala

Hlutabréfa­vísitölur í Banda­ríkjunum hafa fallið um 10 prósent frá hámarki á þessu ári, og er nú öll ávöxtun ársins farin, sé mið tekið af meðaltali.

Hlutabréfa­vísitölur í Banda­ríkjunum hafa fallið um 10 prósent frá hámarki, á þessu ári, sé mið tekið af meðaltali helstu hlutabréfa­vísitala.

Niður­sveifla hefur haldið áfram á mörkuðum í dag, og var lækkunin skörp. Nasdaq vísitalan lækkaði um rúmlega 2 prósent í dag og S&P 500 vísitalan lækkaði um 1,7 prósent.

Hagvöxtur í Banda­ríkjunum mælist nú 3,5 prósent og er drifinn áfram af einka­neyslu, en vöxtur í fjár­festingu hefur verið að dragast saman, samkvæmt því sem fram kemur í umfjöllun Wall Street Journal.

Ástæðan fyrir tölu­verðum titringi á mörkuðum að undan­förnu er talin vera óvissa vegna hækkandi vaxta og viðskipta­tollastríðs Kína og Banda­ríkjanna. Stýri­vextir eru nú 2,25 prósent í Banda­ríkjunum og gera spár seðla­bankans ráð fyrir að þeir hækki áfram á næsta ári.

Sum fyrirtæki hafa lækkað töluvert og má nefna Amazon sem dæmi, en markaðs­virði þess hefur fallið um 200 milljarða Bandaríkja­dala, rúmlega 20 prósent, á undan­förnum 5 vikum.

Microsoft er nú orðið verðmeira en Amazon, og er því næst verð­mætasta fyrirtæki heimsins á eftir Apple.

Verðmæti Amazon lækkaði um tæplega 8 prósent í dag, og er nú rúmlega 800 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 96 þúsund milljörðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár