Fangelsismálastofnun þarf 400 milljónir annars þarf að loka fangelsum

Fang­els­is­mála­stofnun þarf 150 millj­ónir króna á fjár­auka­lögum til að láta enda ná saman í ár. Stofn­unin þarf auk þess 250 millj­ónir króna í við­bót­ar­út­gjöld á næsta ári. Fáist ekki þetta fé mun fang­els­inu á Sogni og hluta Litla Hrauns verða lokað.

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra fer með fangelsismál í ríkisstjórn Íslands.
Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra fer með fang­els­is­mál í rík­is­stjórn Íslands. Mynd: Eyþór Árnason

Verði fram­lög til fang­els­is­mála ekki aukin um 200 millj­ónir króna á næsta ári, ásamt því að felld verði niður 50 milljón króna hag­ræð­ing­ar­krafa á Fang­els­is­mála­stofnun rík­is­ins, mun afleið­ing­arnar verða þær að opna fang­els­inu á Sogni verði lokað frá og með næstu ára­mótum, húsi 3 í lok­aða fang­els­inu á Litla Hrauni verði lokað allt næsta ár, boð­un­ar­listi mun lengj­ast, fyrn­ingar refs­inga aukast, starfs­fólk mun þreyt­ast, starfs­á­nægja þess mun skerð­ast og örygg­is­mál fang­elsa verða áfram í ólestri. Þá þarf einnig 150 millj­ónir króna til stofn­un­ar­innar á fjár­auka­lögum í ár til að endar nái saman vegna rekst­urs fang­elsa á árinu 2022. Samtals vantar því 400 millj­ónir króna í rekstur Fang­els­is­mála­stofn­unar vegna áranna 2022 og 2023 ef ekki á illa að fara.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í sam­eig­in­legu minn­is­blaði dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins og Fang­els­is­mála­stofn­unar til fjár­laga­nefndar.

Verði fang­els­inu að Sogni, sem er annað tveggja opinna fang­elsa í land­inu, lokað munu tólf starfs­menn missa vinn­una og 21 fang­elsis­pláss hverfa. Þar á meðal öll pláss fyrir konur að afplána í opnu fang­elsi hér­lendis. Verði Húsi 3 á Litla Hrauni lokað allt næsta ár myndi það þýða að fjórir til fimm starfs­menn myndu missa vinn­una og 23 fang­elsis­pláss myndu hverfa. Alls myndi fang­elsis­plássum því fækka um 44 ef fjár­magn fæst ekki.

317 bíða eftir því að afplána

Í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins voru 279 karlar og 38 konur á biðlista eftir afplánun í fang­elsi. Sam­an­lagt voru því 317 manns að bíða eftir að afplána dóma sem þeir höfðu verið dæmdir til að sitja af sér. Ljóst má vera að sá listi myndi lengj­ast veru­lega ef ofan­greind fang­elsis­pláss tap­ast.

Ell­efu konur voru í afplánun í lok sept­em­ber­mán­að­ar. Sex þeirra voru í fang­els­inu á Hólms­heiði, þrjár á Sogni og tvær voru að afplána utan fang­elsa.

Umboðs­maður Alþingis birti í sept­em­ber skýrslu þar sem stóð að mögu­lega væri til­efni til að taka ólíka stöðu karla og kvenna í fang­elsum lands­ins til sér­stakrar skoð­un­ar. Skýrslan var gerð í kjöl­far þess að umboðs­maður fór í óvænta eft­ir­lits­ferð á Kvía­bryggju þar sem 20 karlar afplána dóma. Var það mat hans að Kvía­bryggja væri eft­ir­sókn­ar­vert fang­elsi sam­an­borið við önn­ur, en um svo­kallað opið fang­elsi er að ræða. Eina opna úrræðið sem býðst konum er hins vegar Sogn, sem þykir ekki jafn eft­ir­sókn­ar­vert. Auk tveggja opinna fang­elsa eru tvö lokuð fang­elsi á Íslandi: áður­nefnt fang­elsi á Hólms­heiði og Litla-Hraun.

Ráðherra vill fjölga föngum á Kvíabryggju

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra tjáði sig um fram­tíð­ar­sýn sína í þessum málum í ummælum við stöðu­upp­færslu Þor­bjargar Sigríðar Gunn­laugs­dóttur, þing­manns Við­reisnar, í gær.

Þar sagði hann ástandið í fang­elsum lands­ins alvar­legt en hann væri að bregð­ast við með marg­vís­legum hætti. Hann vilji meðal ann­ars nýta Sogn fyrir þá sem eru frels­is­sviptir á vegum heil­brigðis- og félags­mála­ráðu­neyta í stað hefð­bund­inna fanga og ef það verði ekki gert vill hann selja Sogn. „Á sama tíma eigi að byggja upp 2 x 30 fanga ein­ingar á Kvía­bryggju. Í rekstri þýðir það að við fjölgum rýmum í opnum fang­elsum um 50% (úr 40 í 60) en þurfum senni­lega ekki að fjölga, í þeim úrræðum, fanga­vörðum sem í dag eru 21 á 2 stöðum.“

Þá greindi Jón frá því að hann hefði haft frum­kvæði að því að Páll Winkel, for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­unar, hefði ásamt fjár­mála­stjóra dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins verið kall­aðir á fund fjár­laga­nefndar á mánuu­dag til að gera grein fyrir alvar­legri stöðu mála. „Á sama tíma vinnur fjár­mála­ráðu­neytið með til­lögur mínar (sem þá verða von­andi lagðar fyrir fjár­laga­nefnd) um aukið fram­lag í fjár­auka­lögum til rekstrar á þessu ári og um aukið rekstr­arfé til að geta sóma­sam­lega staðið að rekstri á næsta ári. M.a. með því að fjölga fanga­vörðum og auka þjón­ustu við fanga m.a. vegna heim­sókna fjöl­skyldna þeirra og fleira má nefna.“

Þá minnti Jón á að fram­kvæmdir fyrir meira en tvo millj­arða króna ættu að fara af stað á Litla Hrauni fljót­lega á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár