Midway, Tsúsjíma, Trafalgar og flotinn ósigrandi

Hverjar eru örlaga­rík­ustu sjóorr­ustur sög­unnar? Hér segir af nokkrum þeirra.

Japanski flotinn siglir til fundar við þann rússneska við Tsjúsjima.
Japanski flot­inn siglir til fundar við þann rúss­neska við Tsjú­sjima. Það var gíf­ur­legt sál­fræði­legt högg fyrir hina hroka­fullu stór-Rússa að bíða háðu­legan ósigur fyrir Asíu­mönnum sem þeir töldu sér óæðri að öllu leyti.

Flug­véla­móð­ur­skip úr banda­ríska flot­anum er komið að Írans­ströndum ásamt fylgd­ar­skipum sínum. Það er partur af ógn­unum Banda­ríkja­for­seta í garð klerka­stjórn­ar­innar í Íran. Komi til átaka af ein­hverju tagi, þá er ljóst að þessi eina deild banda­ríska flot­ans er langtum öfl­ugri en sam­ein­aður íranski flot­inn og því mun vart koma til eig­in­legrar sjóorr­ustu.

Hún mun alt­ént ekki skipta miklu máli – nema nátt­úr­lega fyrir þá sem taka þátt í henni.

En hverjar eru afdrifa­rík­ustu og mik­il­væg­ustu sjóorr­ustur sög­unnar? – þá í þeim skiln­ingi að úrslit þeirra skiptu mjög miklu máli og höfðu mikil áhrif á örlög þeirra ríkja sem þar tefldu fram skipum sínum.

Ég fór í her­skipa­bæk­urnar mínar og bjó til lista yfir tíu afdrifa­rík­ustu sjóorr­ust­urnar. Hér eru þær sem lentu í sætum 7–10.

10Midway 1941

4.–7. júní 1941, Japan gegn Bandaríkjunum

Japanir hugð­ust leggja undir sig mikil lönd við suð­vest­an­vert Kyrrahaf …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár