Nýr utanríkisráðherra kannast ekki við kosningaloforð Framsóknarflokksins

Lilja Alfreðs­dóttir, nýr utan­ríkis­ráðherra á vegum Framsóknar­flokksins, sagði á Alþingi að flokkurinn hefði ekki lofað þjóðar­atkvæða­greiðslu um viðræður við Evrópu­sambandið, þótt formaður flokksins hafi ítrekað boðað þjóðar­atkvæða­greiðslu.

Lilja Alfreðsdóttir
Lilja Alfreðs­dóttir Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, til­nefndi hana sem ráð­herra sam­kvæmt reglum flokks­ins, við brott­hvarf sitt úr for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Lilja er dóttir Alfreðs Þor­steins­sonar, borg­ar­full­trúa Fram­sókn­ar­flokks­ins til margra ára. Mynd: Pressphotos

Lilja Alfreðs­dóttir, nýr utan­ríkis­ráðherra, hélt því fram í óundirbúnum fyrir­spurnum á Alþingi í gær að Framsóknar­flokkurinn hefði aldrei lofað þjóðar­atkvæða­greiðslu um aðildar­viðræður við Evrópu­sambandið. 

„Kosningar um þetta mál eru ekki ráðgerðar og ég sé ekki að það muni gefast tími til þess. Ég kannast heldur ekki við að sá flokkur sem ég er að representera hér hafi lofað slíkum kosningum,“ sagði Lilja.

Sigmundur ítrekaði vilja til þjóðaratkvæðis

Lilja tók við embætti eftir brott­hvarf Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar úr forsætis­ráðherra­stóli, sem staðinn var að ósannindum í tengslum við aflandsfélag hans og eiginkonu hans og kröfur í þrotabú bankanna, en hann leiddi ákvarðana­töku og stefnu­mótum gagnvart kröfu­höfunum og þar með sjálfum sér og eiginkonu sinni, án þess að láta uppi um það.

„Að sjálfsögðu kemur til þjóðar­atkvæða­greiðslu“

Sigmundur Davíð ítrekaði hins vegar margsinnis í kosninga­baráttunni 2013 og eftir hana vilja sinn til að halda slíka þjóðar­atkvæða­greiðslu.

Sigmundur var spurður á blaðamanna­fundi við myndun nýrrar ríkis­stjórnar hvort hægt væri að treysta loforðinu.

Getum við treyst því að það verði þjóðar­atkvæða­greiðsla um áfram­haldandi viðræður?

Sigmundur Davíð: „Að sjálfsögðu kemur til þjóðar­atkvæða­greiðslu en menn hljóta við ákvörðun um tíma­setningu slíks að taka inn í reikninginn aðstæður.“

Sagði stefnuna skýra

Lilja sagði einnig á þingi að stefna stjórnar­flokkanna hafi verið skýr. Flokkarnir höfðu ekki á stefnu­skránni að sækja um aðild að Evrópu­sambandinu, en fulltrúar og leiðtogar beggja þeirra tóku ítrekað fram að þeir vildu halda þjóðar­atkvæða­greiðslu um hvort aðildar­viðræðunum yrði fylgt áfram eða ekki.

Söfnun myndbanda: Lára Hanna Einars­dóttir.

„Stefna stjórnar­flokkanna var mjög skýr fyrir kosningar,“ sagði Lilja í gær.

„Ég hef alltaf gert ráð fyrir því að þessi atkvæða­greiðsla fari fram,“ sagði Sigmundur í kosninga­sjónvarpi Stöðvar 2 í apríl 2013.

„Ég hef margoft tekið fram að mér þætti mjög gott og æskilegt ef hægt væri að halda þessa þjóðar­atkvæða­greiðslu á fyrri hluta kjör­tímabilsins,“ sagði Bjarni Benediktsson, leiðtogi hins stjórnar­flokksins í sömu kappræðum. „Í Evrópu­sambands­málinu munum við standa við það sem við höfum ályktað, um að fram fari þjóðar­atkvæða­greiðsla,“ sagði Bjarni einnig í viðtali við Stöð 2.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár