Útvarpsstjóri sækir um stöðu Þjóðleikhússtjóra

Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóri segir að sig langi „að fá aftur að taka þátt í leik­hús­töfr­unum“

Sækir um stöðu Þjóðleikhússtjóra
Sækir um stöðu Þjóð­leik­hús­stjóra Magnús Geir vill færa sig frá Rík­is­út­varp­inu og aftur inn í leik­hús­heim­inn. Mynd: Rúv

Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóri er einn umsækj­enda um stöðu Þjóð­leik­hús­stjóra en umsókn­ar­frestur um stöð­una rennur út í dag. Magnús Geir til­kynnti starfs­fólki Rík­is­út­varps­ins þetta í morgun.

Magnús Geir segir í tölvu­pósti til starfs­fólks að hann sé ótrú­lega stoltur af þeim árangri sem náðst hafi á síð­ustu miss­erum í rekstri Rík­is­út­varps­ins. „Þrátt fyrir að vera ánægður í starfi og að allt gangi hér vel, þá á leik­húsið samt alltaf rosa­lega stóran sess í hjarta mínu,“ skrifar Magnús Geir um leið og hann til­kynnir að hann hafi sóst eftir starfi Þjóð­leik­hús­stjóra sem skipað verður í frá og með næstu ára­mótum.

„Ég trúi því að ég hafi heil­mikið fram að færa í það starf og mig langar mikið að fá aftur að taka þátt í leik­hús­töfr­unum. Þá hef ég að und­an­förnu fengið hvatn­ingar frá leik­hús­fólki sem ég tek mark á og þykir vænt um,“ skrifar Magnús Geir einnig og bætir við að hann voni að sam­starfs­fólk hans skilji og virði ákvörð­un­ina.

Magnús Geir er leik­hús­fræð­ingur frá Uni­versity of Wales og stýrði Leik­fé­lagi Akur­eyrar á árunum 2004 til 2008. Þá tók hann við stöðu leik­hús­stjóra Borg­ar­leik­húss­ins sem hann stýrði allt þar til hann tók við stöðu útvarps­stjóra árið 2014.

Viðbót kl. 13:00
Kristín Eysteins­dóttir borg­ar­leik­hús­stjóri hefur einnig sótt um stöðu Þjóð­leik­húss­stjóra. Þá er Ari Matth­í­as­son, núver­andi leik­hús­stjóri, á meðal umsækj­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár