Hvar er spennan mest?

Forseta­kosningar fara fram á morgun í Banda­ríkjunum. Gríðarleg spenna er fyrir kosningunum, og flestar kannanir sýna jafna stöðu.

Mjótt er á munum í mörgum ríkjunum fyrir kosningarnar sem fara fram á morgun í Banda­ríkjunum. Hillary Clinton, fram­bjóðandi Demókrata, og Donald J. Trump, fram­bjóðandi Repúblikana, reyna allt til að fá fólk á kjörstað og kjósa sig. Trump hefur lagt áherslu á að halda marga stóra fundi síðustu daga, til að ná að tala til margra í einu.

Hillary hvetur alla til að kjósa, og hefur lagt áherslu á það að undan­förnu að valið standi á milli hennar, og síðan valkosts sem þýði upplausn í bandarísku þjóð­félagi.

FBI staðfesti í gær, að ekkert í tölvu­póstum Hillary, gæfi tilefni til þess að saksækja hana, en umræða um tölvu­póstana og rannsókn FBI hefur haft verulega skaðleg áhrif á framboð hennar undan­farna daga.

Samkvæmt mælingum FiveThirtyEight, sem vegur saman skoðana­kannanir vítt og breitt um Banda­ríkin, er stuðningurinn við Hillary nú 48,3 prósent en við Trump 45,4 prósent. Stuðningurinn við Gary Johnson mælist 4,8 prósent. Vefurinn telur um 65 prósent líkur á að Hillary vinni, en 35 prósent að Trump vinni.

Spennan er sérstak­lega mikil í fjórum ríkjum Banda­ríkjanna, þar sem kannanir hafa sýnt afar jafna stöðu undan­farna daga. Það eru Nevada, Flórída, Norður-Karólína og Ohio.

Samkvæmt FiveThirtyEight eru nú 49,5 prósent líkur á að Hillary sigri í Nevada en 50,5 prósent að Trump sigri. Í Flórída eru nú sagðar 47,8 prósent líkur á að Hillary sigri, en 52,2 prósent að Trump sigri. Í Norður-Karólínu og Ohio hefur munurinn verið lítill lengi en líkurnar í þessum tveimur ríkjum eru einnig Trump megin, samkvæmt FiveThirtyEight, en fyrir aðeins tveimur vikum voru líkur með Hillary í öllum þessum ríkjum. Mestur er munurinn í Ohio, en 65 prósent líkur er nú taldar á sigri Trump þar en 35 prósent líkur á sigri Hillary.

Helstu vígi Hillary núna eru á vestur- og austur­ströndinni, en þar er staða hennar sterk og líklegt að í flestum ríkjum þar muni hún sigra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár