Örvæntingarfullir repúblikanar reyna að stöðva Trump

Hópur bandarískra repúblikana reynir nú í örvæntingu að koma í veg fyrir að Donald Trump verði fram­bjóðandi flokksins í forseta­kosningunum í nóvember.

Í dag og á morgun verða haldnir fundir í undir­búnings­nefndinni sem ákveður starfs­reglur flokks­þings repúblikana sem hefst á mánudag. Þótt fátt virðist geta komið í veg fyrir að Donald Trump verði fram­bjóðandi flokksins í barátt­unni um Hvíta húsið eru margir repúblikanar mjög ósáttir við framboð hans. Þeir mega vart til þess hugsa að Trump geti hugsanlega orðið næsti forseti Banda­ríkjanna.

Donald Trump hefur, í forkosningum flokksins, tryggt sér stuðning 2472 kjörmanna á flokks­þinginu, samkvæmt núgildandi reglum. Það eru þessar reglur sem örvæntingar­fullir fulltrúar í undir­búnings­nefnd flokks­þingsins vilja breyta á þann veg að kjör­mennirnir verði ekki bundnir af niður­stöðum forkosninganna. Slík breyting hefði í för með sér að fulltrúar á flokks­þinginu gætu valið annan einstakling sem fram­bjóðanda flokksins í forseta­kosningunum í haust.

Þótt þetta hljómi kannski ekki beinlínis lýðræðis­lega og slík atburðarás þyki ef til vill eiga betur heima í sjónvarps­þáttum á borð við „House of Cards“ (Spilaborg) er rétt að hafa í huga að Repúblikana­flokkurinn er í raun félag. Það þýðir að félags­menn geta bæði sett, og breytt reglum félagsins. Þess vegna væri það ekki ólöglegt þótt reglunum um val forseta­fram­bjóðanda yrði breytt á flokks­þinginu.

Þeir sem berjast gegn framboði Donald Trump hafa með sér samtök „Free the Delegates“ og einn félagi í samtökunum höfðaði mál til að láta á það reyna hvort hann væri bundinn af úrslitum forkosninganna. Niður­staða dómarans var að þessi félagi, sem er í hópi kjörmanna, væri ekki bundinn af forkosningunum þegar að því kemur að flokks­þingið útnefni forseta­fram­bjóðanda.

Í áður­nefndri undir­búnings­nefnd sitja 112 fulltrúar. Ekki er talið líklegt að meirihluti nefndar­manna styðji breytingar á starfs­reglum flokks­þingsins. En, ef fjórðungur nefndar­manna, tuttugu og átta, styðja slíkar breytingar hefði það í för með sér að allir fulltrúar á flokks­þinginu yrðu að kjósa um það hvort reglunum skuli breytt. Ef slík breyting yrði samþykkt á flokks­þinginu gætu fulltrúarnir kosið annan einstakling sem fram­bjóðanda flokksins í forseta­kosningunum.

Stuðnings­menn Donald Trump reyna hvað þeir geta að sjá til þess að þessar hugmyndir um breytingar á kosninga­reglunum verði ekki að veruleika. Þeir segja að ef fulltrúar á flokks­þinginu snúi baki við Donald Trump myndi það kljúfa Repúblikana­flokkinn. Bandarískir fjöl­miðlar segja að ef svo færi að Donald Trump yrði ekki fram­bjóðandi repúblikana jafngilti það því að kjarnorku­sprengju hefði verið varpað á flokkinn, sem myndi sundrast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár