Leiksigur Pálma – annars þunnur þrettándi

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um Útsendingu í leik­stjórn Guðjóns Davíðs Karls­sonar í Þjóð­leikhúsinu.

Útsending
Útsend­ing Mynd: Hörður Sveinsson

Þjóðleikhúsið: Útsending

Höfundur leikrits: Lee Hall; byggt á kvikmynda­handriti eftir Paddy Chayefsky

Þýðing: Kristján Þórður Hrafnsson

Leik­stjórn: Guðjón Davíð Karlsson

Leikmynd Egill Eðvarðsson

Búningar: Helga I. Stef­ánsdóttir

Lýsing: Halldór Örn Óskarsson

Tónlist: Eðvarð Egilsson

Hljóðmynd: Aron Þór Arnarsson, Kristján Sigmundur Einarsson og Eðvarð Egilsson

Myndbönd og grafík: Ólöf Erla Einars­dóttir

Leikarar: Pálmi Gestsson, Birgitta Birgis­dóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Steinunn Ólína Þorsteins­dóttir, Hall­grímur Ólafsson, Ólafía Hrönn Jóns­dóttir, Atli Rafn Sigurðarson, Sigurður Sigurjónsson, Arndís Hrönn Egils­dóttir, Örn Árnason, Snæfríður Ingvars­dóttir, Arnar Jónsson, Edda Arnljóts­dóttir, Baldur Trausti Hreinsson, Hildur Vala Baldurs­dóttir og Gunnar Smári Jóhannesson.

Leik­húsinu og leik­listinni á ekkert mannlegt að vera óviðkomandi. Stefnur og straumar í mannlegri hegðun, breytingar í lífs­háttum og lífs­áherslum – allt á þetta erindi upp á þær fjalir sem sýna okkur heiminn, svo vísað sé í orð meistara Shakespeares – leik­listin er sú listgrein sem segir okkur mann­fólkinu söguna af okkur sjálfum, hún er sá spegill sem við eigum að geta borið okkur við.

Þegar litið er til verkefna­vals undan­farinna ára hjá Þjóð­leikhúsinu verður það ekki beinlínis sakað um að bregða upp þeim spegli sem við eigum að geta borið okkur við. Leik­gerðir eftir kvik­myndum hafa verið býsna áberandi, og nú síðast er boðið uppá leikgerð eftir Lee Hall, þess sama og gerði leikgerð eftir kvik­myndinni Shakespeare in love sem hér kallaðist Shakespeare verður ástfanginn; Lee Hall var fyrst kynntur hér á landi með söng­leiknum Billy Elliott, sem sýndur var í Borgar­leikhúsinu.

Útsending er leikgerð uppúr tæplega fimmtíu ára gamalli kvikmynd, Network, sem vann til þó nokkurra óskars­verðlauna á sínum tíma, m.a. fyrir besta handrit, sem samið var af Paddy Chayefsky og kvik­myndin hefur síðar hlotið ýmsa vegsemd. Árið 2000 var hún valin til varð­veislu í United States National Film Registry sem menningar­lega, sögulega og fagur­fræðilega fram­úrskarandi listaverk. Tveimur árum síðar hlaut hún viðurkenningu fyrir að hafa lagt nýja línu hvað varðar bandaríska afþreyingu og árið 2005 var handritið valið af báðum samtökum rithöfunda í Banda­ríkjunum sem eitt af tíu bestu handritum í sögu kvikmynda þar vestra og árið 2007 var henni skipað í 64. sæti á lista yfir 100 bestu bandarísku kvik­myndirnar. Þetta er allt seinni tíma upphefð; á sínum tíma hlutu leikarar og handrits­höfundur bæði óskars­verðlaun, Golden Globe verðlaun og BAFTA verðlaun, auk þess sem leik­stjórinn, Sidney Lumet, og aðrir aðstand­endur hlutu fjölda tilnefninga.

Öll þessi upphefð hefði átt að vekja grun­semdir verkefna­vals­nefndar Þjóð­leikhússins. Ef eitthvert listaverk er talið svo amerískt að það eigi alla þessa upphefð skilið þar vestra er það mikið álitamál hvort það eigi erindi á svið íslensks þjóð­leikhúss. Í þessu tilviki er um að ræða kvikmynd sem segir sögu sjónvarps í ákveðnum tíma og á ákveðinni stund: Banda­ríkin um miðjan áttunda áratug síðastliðinnar aldar. Í sögu Banda­ríkjanna hafa ákveðnir hlutir gerst, sem beinlínis varða sjónvarp og viðhorf manna til þess: Víetnam­stríðinu var nýlokið og var það að mati margra beinlínis vegna þess að það var komið í sjónvarps­tækin heima í stofu almennings. Þá var það vegna gagn­rýninnar fjöl­miðlunar að sjálfur Bandaríkja­forseti neyddist til að segja af sér til að forðast réttarhöld sem hefðu nokkuð örugglega leitt til hneisulegrar afsagnar hvort eð er – sjónvarp á þessum tíma var að vinna sér sess sem trúverðugur miðill og það er alveg hárrétt sem Howard Beale segir í einni af lykil­senum Útsendingar, að það sem við vitum um umheiminn er fengið úr sjónvarpi. Honum óar við því og sjálfsagt eigum við að hafa af þessu nokkrar áhyggjur líka – en hér má skoða málið frá tveimur hliðum.

Fjölmiðla­fræðingurinn Marshall McLuhan staðhæfði eitt sinn – og mér vitanlega hefur enginn andmælt þeirri stað­hæfingu – að „the Media is the Message“; með því átti hann við að fjöl­miðillinn sjálfur mótaði og væri boðskapurinn sem áhorf­andinn tæki til sín. Það snýst ekki aðeins um hvað fjöl­miðillinn segir um umheiminn (líkt og Howard Beale hafði áhyggjur af) heldur einnig hvernig – þ.e. að allt væri brotið niður í þær smáu einingar sem hentuðu miðlinum en sem breyttu þekkingunni og afskræmdu hana þannig að hún aftengdist raun­veru­leikanum og yrði allt annar raun­veruleiki. Þetta sést ekki síst í því sem á okkar tímum kallast „fake news“, þar sem fjöl­miðillinn er látinn ganga erinda annarra hagsmuna en þeirra sem halda fram stað­reyndum og sýna raunheima eins og þeir eru. Er nema von að menn eins og Howard Beale fari villur vega í slíkum heimi. Heimi, sem þeir geta hvorki höndlað né skilið.

Þetta hygg ég hefði verið skynsamlegt að listrænir stjórn­endur Útsendingar hefðu haft í huga og látið marka sýninguna meira en raunin var. Í Network – Útsendingu – gengur höfuð­persónan Howard Beale af göflunum, öllum er ljóst að hann ruglast í ríminu við að neyðast til að horfast í augu við þann persónu­lega harmleik að missa vinnuna og þar með missa fótanna. Þar með verður Útsending náskyld gríska harm­leiknum sem er í sjálfu sér góðra gjalda vert, en áhorf­andanum er færður sá boðskapur að vilji maður líkt og Howard blessaður gagnrýna kerfið, fylgir því sá böggull skammrifi að maður verður fyrst geðveikur, síðan skotinn til bana af hryðju­verkamanni, sem birtist líkt og Deus ex machina til að hnykkja á þeim boðskap. Er þá ekki beinlínis verið að segja að manni sé hollast að taka ekki mark á fjöl­miðlum en láta það eiga sig að gagnrýna þá, hvað þá reyna að breyta þeim – þeir eru slík skrímsli að það er ógerlegt án þess illa fari.

Það er einkennileg tilfinning að sjá leikmynd Egils Eðvarðs­sonar á sviði Þjóð­leikhússins. Hún er í sjálfu sér glæsileg, trúverðug og þjónar vel tilgangi sínum, en hún er engu að síður líkt og aðskota­hlutur á sviði Þjóð­leikhússins, passar engan veginn inn í leik­húsbygginguna og stingur algerlega í stúf við arkitektúr og útlit Þjóð­leikhússins. Hefði kannski verið heppilegra að finna annað rými fyrir sýninguna? Þunga­miðja leik­myndarinnar er myndverið, þar sem saman sitja upptöku­stjórar og aðrir starfs­menn útsendingarinnar og til þess að samræður manna á milli fái notið sín gagnvart áhorf­endum þurfa leikarar að færa sig fram á sviðsbrún og ræða saman þar; þetta gerir að verkum að sumar sviðs­hreyfingarnar eru ankannalegar, það þarf að færa samtölin fram á sviðsbrún til að þau nái til áhorfenda. Annar kostur, sem nokkuð er beitt, er að sýna samtöl á stórum skjá sem hangir fyrir ofan og blasir við áhorf­endum; sú lausn er í sjálfu sér ágæt svo langt sem hún nær, en það tekst þó ekki að skapa heild­stæða listræna lausn sem hentar sýningunni.

Sem fyrr segir er Network tæplega hálfrar aldar gömul saga og hér er farin sú leið að halda sögunni „í períóðu“ – búningar eru 1976-ish og ekkert er gert í texta eða í leik til að færa söguna til nútíma; hins vegar er tækni­búnaðurinn allur – sjónvarps­skjáir, mynda­tökuvélar og annað af því tagi – úr nútíma og það er stílbragð sem gengur ágætlega upp.

Sagan í Útsendingu er næsta einföld. Howard Beale er þátta­stjórnandi í frétta­þætti sem líður fyrir að áhorfið minnkar og á endanum er honum sagt upp eftir tuttugu og fimm ára starf. Hann fyrtist við og hótar því að svipta sig lífi í beinni útsendingu og allt í einu er þáttur hans orðinn miðpunktur athyglinnar og Howard fær að halda áfram á skjánum. Hann fer að tjá sig um heims­málin, grimmdina, hræsnina og blekkinguna í þjóð­félaginu og hvetur á endanum fólk til að rísa upp. Á sama tíma leitar samstarfs­kona hans hófanna við hryðju­verkafólk sem gengur á endanum inn í myndver og kálar Howard.

Í kynningar­efni Þjóð­leikhússins er sagt að hér sé á ferðinni spennandi leikrit sem veki fjölda spurninga um vald fjölmiðla og áhrif þeirra á líf fólks. Eiginlega er eina spurningin sem vaknar þegar horft er á Útsendingu er afhverju í ósköpunum er verið að taka þessa bandarísku hálfrar aldar gamla sögu til sýningar?

Það virðist nokkuð augljóst að verkefna­vals­nefnd Þjóð­leikhússins hefur verið að horfa á aðsóknar­tölur Breska Þjóð­leikhússins, en sýning þess ku hafa verið á fjölunum bæði í London og New York og auk þess unnið til fjölda verðlauna. En hér á sviði hins íslenska Þjóð­leikhúss verður úr heldur þunn súpa sem segir íslenskum áhorf­endum lítið, enda fjölmiðla­heimur okkar Íslendinga talsvert frábrugðinn fjölmiðla­heimi í hinum ensku­mælandi heimi. Það er staðreynd, sem hefði mátt taka með í reikninginn þegar verið var að velta fyrir sér hversu sniðugt það væri að taka Útsendingu til sýningar. Þá hefðu menn kannski komist að þeirri niður­stöðu að það væri hreint ekkert sniðugt að taka Útsendingu til sýningar!

Ekki verður hjá komist að segja eitthvað um frammistöðu leikara og þá einkum Pálma Gests­sonar í hlutverki Howards Beals. Skemmst frá að segja þá vinnur Pálmi leiksigur – svo langt sem það nær. Hann býr yfir frábærri tækni og beitir henni hér til fulls, hvert smáatriði túlkunar hans er svo gríðar­lega vel unnið að aðdáun vekur. Það hefði vissulega verið betri kostur að gáfur þessa frábæra leikara hefðu fengið að njóta sín í sögu sem eitthvert erindi ætti til íslenskra leikhús­áhorfenda en það er eins og Pálmi sé yfir það hafinn, leikur hans er sterkari en sjálf sagan sem verið er að segja, aflmeiri en sjálft Þjóð­leikhúsið – Pálmi nær að gæða Howard því lífi að hann kemur okkur við og örlög hans varða okkur einhvers. Það er ekki lítill leiksigur í sögu sem að öðru leyti hrærir vart við áhorf­endum og sem, þegar öllu er á botninn hvolft, hefur ekkert að segja íslenskum áhorf­endum og á ekkert erindi upp á fjalir Þjóð­leikhúss okkar.

Það hefur lítið upp á sig að gera grein fyrir frammistöðu annarra leikenda og aðstand­enda sýningarinnar. Eiginlega er bara að vona að þessi sýning hverfi sem fyrst af fjölunum og að Pálmi Gestsson fái raun­verulegt hlutverk að bíta í.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár