Eygló: Fjármagn tryggt fyrir byggingu 2.300 félagsíbúða

Fjár­mögnun hefur verið tryggt til byggingar 2.300 félagslegra íbúða á næstu fjórum árum, að sögn Eyglóar Harðar­dóttur, félags- og húsnæðis­mála­ráðherra. Greint er frá þessu í Morgun­blaðinu í dag. Frumvörp Eyglóar um húsnæðismál er að finna á þing­málaskrá fyrir komandi þing, en fjögur frumvörp hennar náðu ekki fram að ganga á síðasta þingi. Þau þarf því að leggja fram aftur á nýju þingi.

Frum­vörpin fjögur til laga voru um húsnæðis­bætur, um húsnæðissamvinnufélögu, um breytingu á húsa­leigulögum og um húsnæðismál. Hið síðastnefnda fjallaði um stofn­styrki til félags­legs húsnæðis, sem hefur verið tryggt samkvæmt ráðherra.

Fjármála­ráðuneytið greindi Kjarnanum frá því þann 15. maí að frumvarp um stofn­styrki hefði verið dregið til baka úr kostnaðar­mati í ráðuneytinu og ekki væri von á því að það yrði lagt fram aftur á þessu þingi, verið væri að skoða mjög breytta útgáfu af því frumvarpi. Fjármála­ráðuneytið sagði að við greiningu á frum­varpinu hafi vaknað mörg álitaefni og í kjölfarið hafi velferðar­ráðuneytið hætt við að leggja fram frum­varpið. Samkvæmt þing­málaskrá verður það nú lagt fram á ný.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár