Húsnæðisfrumvarp var dregið til baka í lok apríl og ólíklegt að annað komi fram á vorþingi

Frumvarp Eyglóar Harð­ar­dóttur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, um stofn­styrki til félags­legra leigu­í­búða var dregið til baka í lok apríl síð­ast­lið­ins og hefur síðan verið í skoðun að setja fram nýtt frum­varp um málið með tals­vert breyttri útfærslu.

Þó er ósenni­legt að lokið verði við útfærslu á nýju frum­varpi á þessu þingi. Þetta kemur fram í svari fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn til ráðu­neyt­is­ins vegna þeirra tveggja frum­varpa Eyglóar sem hafa verið í kostn­að­ar­mati hjá fjár­mála­ráðu­neyt­inu und­an­farnar sjö vikur. Annars vegar var um að ræða frum­varp um stofn­styrki til félags­legra leigu­í­búða og hins vegar frum­varp um breytt húsa­leigu­bóta­kerfi, þannig að hús­næð­is­bætur séu greiddar til fólks úr sama kerfi óháð því hvort það leigir eða á hús­næði. Kostn­að­ar­grein­ingar úr fjár­mála­ráðu­neyt­inu hefur verið beðið um tals­vert skeið, enda hefur Eygló Harð­ar­dóttir talað um að það verði að klára hús­næð­is­málin á þessu þingi og jafn­vel halda sum­ar­þing til þess að klára þau. Hún hefur líka sagt að málin geti verið inn­legg inn í kjara­deilur.

Engin niðurstaða um breytingar á kerfinu


Í svari fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að við frum­grein­ingu á frum­varp­inu hafi vaknað marg­vís­leg álita­efni sem tekin hafi verið til skoð­unar og gerðar fyr­ir­spurnir um til vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins. „Á því stigi féll vel­ferð­ar­ráðu­neytið frá því undir lok apríl síð­ast­lið­inn að leggja fram það frum­varp í þeirri mynd og hefur síðan haft til skoð­unar að setja fram annað frum­varp um mál­efnið með tals­vert breyttri útfærslu,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins. Í kjöl­far þess að frum­varpið var dregið til baka seg­ist fjár­mála­ráðu­neytið hafa greint vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu frá því að til að fá umsögn um breytt frum­varp frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu þyrfti að senda inn nýtt erindi þess efnis.

Þá segir fjár­mála­ráðu­neytið að mál­efni félags­legra leigu­í­búða séu til umfjöll­unar í sam­ráðs­nefnd um hús­næð­is­mál, „og liggur ekki fyrir nið­ur­staða að svo stöddu um hvort eða hvernig breyt­ingar stjórn­völd kunna að gera á fyr­ir­komu­lagi þeirra mála. Þótt vera megi að sett verði fram stefnumið um mála­flokk­inn á næst­unni má telja ósenni­legt úr því sem komið er að lokið verði við útfærslu á nýju frum­varpi um þennan mála­flokk ásamt umsögn um fjár­hags­á­hrif til fram­lagn­ingar á vor­þing­inu.“

Hitt frumvarpið kláraðist í gær


Hitt frum­varpið sem hefur verið til umsagnar í fjár­mála­ráðu­neyt­inu varðar breytt kerfi húsa­leigu­bóta. Í svari fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að vinnsla á þeirri umsögn hafi tekið nokkurn tíma, „m.a. þar sem skorti mjög á talna­legar grein­ingar á grund­velli og áhrifum frum­varps­ins sem þurfti því að vinna fyrir umsögn­ina. Af þeirri ástæðu hefur sú umsögn orðið óvenju umfangs­mikil sam­an­tekt.“ Sú umsögn var þó til­búin og send til vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins í gær, og er nú til skoð­unar þar. „Næsta skref varð­andi það frum­varp er þá vænt­an­lega að þau mál­efni verði tekin til umræðu í rík­is­stjórn.“

Nýbúin að segjast bjartsýn á að málin komi fram


Sem fyrr segir hefur Eygló Harð­ar­dóttir tjáð sig mikið um hús­næð­is­frum­vörpin öll, en tvö frum­vörp hennar til við­bótar voru lengi í vinnslu og voru að lokum tekin inn í þingið með afbrigðum eftir að frestur til að leggja fram mál á vor­þingi var lið­inn.

Eygló tjáði sig síð­ast um þessi mál í útvarps­þætt­inum Sprengisandi um helg­ina. Þá sagð­ist hún bjart­sýn á það að frum­vörpin tvö myndu koma fram, að sam­staða muni nást um þau og að þau hljóti braut­ar­gengi í þing­inu. Hún sagði líka að frum­vörpin tvö gætu orðið mik­il­vægur hluti af lausn þeirra hörðu kjara­deilna sem nú geisa á vinnu­mark­aði. „Ég held að þau geti verið mjög mik­il­vægur hluti af lausn­inni,“ sagði Eygló um helg­ina. Þá var hins vegar búið að draga annað frum­varpið til baka úr fjár­mála­ráðu­neyt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár