Enn pattstaða í viðræðum við ESB, vilja að Ísland borgi milljarða

Viðræður Íslands, Noregs og Liechtenstein, ríkj­anna þriggja sem eru aðilar að samn­ingnum um Evrópska efna­hags­svæðið (EES), við Evr­ópu­sam­bandið (ESB) vegna greiðslna í Þró­un­ar­sjóð EFTA hafa enn ekki skilað neinum árangri.

Greiðsl­urnar eru oft kall­aðar aðgöngu­mið­inn að innri mark­aði Evrópu, það gjald sem EES-löndin þrjú greiða fyrir auka­að­ild sína að þessum stærsta útflutn­ings­mark­aði sínum án þess að vera full­gildir með­limir Evr­ópu­sam­bands­ins.

Frá árinu 1994, þegar EES-samn­ing­ur­inn gekk í gildi, hefur þurft að end­ur­semja um þennan aðgöngu­miða á fimm ára fresti. Síðasta sam­komu­lag rann út 30. apríl 2014 og því má segja að samn­ingar hafi verið lausir í tæpt ár. Ástæðan: Evr­ópu­sam­bandið hefur farið fram á allt að þriðj­ungs­hækkun á fram­lögum í sjóð­inn.

Miðað við þær kröfur myndi Ísland þurfa að greiða um 6,5 millj­arða króna í sjóð­inn næstu fimm árin, en á tíma­bil­inu 2009-2014 greiddum við 4,9 millj­arða króna. Ekkert EFTA-ríkj­anna þriggja sem greiða í sjóð­inn eru til­búin til að ganga að þessum kröfum og taka á sig hækk­anir af þess­ari stærð­argráðu. Og Evr­ópu­sam­bandið, að minnsta kosti enn sem komið er, vill ekki gefa neitt eftir.

Samningurinn runninn út


Samið er til fimm ára í senn um fram­lögin. Síðast náði sam­komu­lagið yfir tíma­bilið frá 1. maí 2009 til 30. apríl 2014. Það sam­komu­lag er því á enda runnið fyrir tæpu ári síðan. Við­ræð­urnar um það sam­komu­lag voru fjarri því að vera dans á rósum. Þær gengi raunar það erf­ið­lega að ekki samd­ist fyrr en tæpu ári eftir að fyrra sam­komu­lag var útrunnið, eða á fyrri hluta árs 2010.

Þá var samið um að fram­lög Íslands, Noregs og Liecthenstein myndu hækka um 33 pró­sent á milli tíma­bila en að tvö síð­ar­nefndu ríkin myndu taka meiri hluta hækk­un­ar­innar á sínar herðar vegna þeirrar stöðu sem var uppi í íslensku efna­hags­lífi eftir banka­hrunið haustið 2008. Heim­ildir Kjarnans herma að kröfur Evr­ópu­sam­bands­ins um hækkun séu að sam­bæri­legri stærð­argráðu og um samd­ist síð­ast.

Utan­rík­is­ráðu­neytið leiðir við­ræð­urnar við Evr­ópu­sam­bandið fyrir hönd Íslands. Gunnar Bragi Sveins­son er utan­rík­is­ráð­herra.

Utanríkisráðuneytið leiðir viðræðurnar við Evrópusambandið fyrir hönd Íslands. Gunnar Bragi Sveinsson er utanríkisráðherra.
Utan­rík­is­ráðu­neytið leiðir við­ræð­urnar við Evr­ópu­sam­bandið fyrir hönd Íslands. Gunnar Bragi Sveins­son er utan­rík­is­ráð­herra.

Samkvæmt síð­asta sam­komu­lagi greiddu EES-ríkin tæpan millj­arð evra, um 150 millj­arða króna á verð­lagi dags­ins í dag, í sjóð­inn. Þar af greiða Norðmenn tæp­lega 95 pró­sent upp­hæð­ar­innar. Til við­bótar felur sam­komu­lagið um greiðslur EES-ríkj­anna til Evr­ópu­sam­bands­ins í sér að Norðmenn greiða til hliðar í sér­stakan Þró­un­ar­sjóð Noregs. Alls borg­uðu Norðmenn tæpa 125 millj­arða króna í hann á tíma­bil­inu. Þeir greiddu því um 260 millj­arða króna fyrir aðgöngu sína að innri mark­aðnum. Ljóst er að þorri þeirrar fjár­hags­legu byrðar sem greiðsl­urnar orsaka lenda á Norð­mönnum. Ástæður þessa eru ein­faldar. Þegar upp­haf­lega var samið um greiðsl­urnar þá var ákveðið að fram­lag hverrar þjóðar fyrir sig myndi reikn­ast út frá lands­fram­leiðslu og höfða­tölu. Norðmenn eru lang­rík­asta og lang­fjöl­menn­asta EFTA-ríkið sem á aðild að EES-samn­ingnum og borgar þar af leið­andi lang mest.

Greiðslur Íslands aukist um 70 prósent


Greiðslur Íslands voru mun lægri, þótt þær hafi farið ört hækk­andi. Frá árinu 1994, þegar EES-samn­ing­ur­inn gekk í gildi, og fram til 1. maí 2009 greiddum við sam­tals 2,9 millj­arða króna á verð­lagi árs­ins 2010. Þrátt fyrir að Íslandi hafi verið sýnt skiln­ingur í síð­asta samn­ingi þá juk­ust greiðslur lands­ins samt sem áður gríð­ar­lega og voru 4,9 millj­arðar króna á árunum 2009-2014. Þar af er áætlað að við greiddum um 1,4 millj­arða króna í sjóð­inn í fyrra, á árinu 2014. Aðgöngu­mið­inn að innri mark­aði Evr­ópu­sam­bands­ins er því að hækka mjög hratt í verði. Greiðslur Íslands á síð­ust fimm árum eru 70 pró­sent hærri en greitt var í sjóð­inn fimmtán árin þar áður.

Viðræður hófust í byrjun árs 2014


Viðræður um nýtt sam­komu­lag hófust snemma á síð­asta ári. Fyrsti form­legi fundur EFTA-ríkj­anna og full­trúa Evr­ópu­sam­bands­ins vegna þess var 22. jan­úar síð­ast­lið­inn. Síðan þá hafa tveir aðrir form­legir fundir verið haldnir, sá síð­asti á vor­mán­uðum. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur þok­ast mjög lítið í átt nýju sam­komu­lagi. Munurinn á þessum við­ræðum og þeim sem hafa átt sér stað áður vegna fram­lag­anna eru þær að nú eru Norðmenn jafn harðir í afstöðu sinni gegn því að greiða meira og Íslend­ingar .

Þriðji fundur í við­ræðum um nýjan samn­ing fór fram í Brussel í síð­ustu viku. Honum lauk án nið­ur­stöðu. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans stendur yfir störu­keppni milli samn­ings­að­ila.

Þriðji fundur í viðræðum um nýjan samning fór fram í Brussel í síðustu viku. Honum lauk án niðurstöðu. Samkvæmt upplýsingum Kjarnans stendur yfir störukeppni milli samningsaðila.
Þriðji fundur í við­ræðum um nýjan samn­ing fór fram í Brussel í síð­ustu viku. Honum lauk án nið­ur­stöðu. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans stendur yfir störu­keppni milli samn­ings­að­ila.

Þriðji fundur í við­ræðum um nýjan samn­ing fór fram í Brussel í síð­ustu viku. Honum lauk án nið­ur­stöðu. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans stendur yfir störu­keppni milli samn­ings­að­ila. Það er ekki óal­gengt að slík staða komi upp þegar verið er að end­ur­semja um fram­lög í sjóð­inn, en nú hefur hún staðið yfir í mun lengri tíma en áður.

Heim­ildir Kjarnans herma að það langt sé enn á milli samn­ings­að­ila að tölu­vert sé í land að samn­ings­að­ilar nái saman. Kröfur Evr­ópu­sam­bands­ins um auknar greiðslur séu ein­fald­lega enn mun hærri en Ísland, Noregur og Liecthenstein sætti sig við.

Gæti sett tilurð EES-samningsins í uppnám


Vert er að taka fram að minni hópar á vegum við­ræð­enda hafa fundað í milli­tíð­inni, enda hanga önnur atriði á samn­ingnum en bara fram­lög í sjóð­inn. Þar ber helst að nefna ákveðna inn­flutn­ings­kvóta á fiski inn á mark­aði í Evr­ópu­sam­band­inu sem eru bæði Íslandi og Noregi mjög fjár­hags­lega mik­il­vægir.

Í raun er eng­inn form­legur loka­frestur sem ljúka þarf við­ræð­unum fyrir. Flækju­stígið mun hins vegar aukast eftir því sem sam­komu­lagið dregst og erf­ið­ara verður að fram­kvæma úthlut­anir úr sjóðnum. Þá er auð­vitað sá mögu­leiki fyrir hendi að ekki tak­ist að semja. Þá er EES-samn­ing­ur­inn í upp­námi.

Mikilvægasti viðskiptasamningur Íslands


EES-samn­ing­ur­inn er mik­il­væg­asti við­skipta­samn­ingur sem Ísland hefur gert. Hann veitir Íslandi nokk­urs­konar auka­að­ild að innir mark­aði Evrópu án tolla og gjalda á flestar vörur. Um 80 pró­sent af útflutn­ingi okkar fer til Evrópu, að lang­mestu leyti til landa sem til­heyra innri mark­að­inum, og um 60 pró­sent af því sem við flytjum inn koma þaðan.

Van­kost­irnir við EES-samn­ing­inn eru síðan þeir að Ísland und­ir­gekkst að taka upp stóran hluta af reglu­verki Evr­ópu­sam­bands­ins án þess að geta haft nokkur áhrif á mótun þess. Í Evr­ópu­stefnu sitj­andi rík­is­stjórnar er lögð áhersla á að efla hags­muna­gæslu Íslands innan EES og stór­efldu sam­starfi við Norðmenn á þeim vett­vangi. Þessari stefnu eigi að fram­fylgja meðal ann­ars með því að koma sjón­ar­miðum Íslands á fram í lög­gjaf­ar­starfi Evr­ópu­sam­bands­ins strax á fyrstu stigum mála. Það er ljóst að slík hags­muna­gæsla mun kosta tölu­vert fé, enda nauð­syn­legt að fjölga veru­lega starfs­fólki í Brussel, aðal­bæki­stöð Evr­ópu­sam­bands­ins, til að fram­fylgja henni.

Hvað er Þróunarsjóður EFTA og hverja styrkir hann?


Þró­un­ar­sjóður EFTA var settur upp sem hluti af EES-samn­ingnum, sem gekk í gildi 1. jan­úar 1994. EFTA-ríkin Ísland, Noregur og Liecthenstein greina í hann eftir stærð og lands­fram­leiðslu hvers þeirra. Yfir­lýstur til­gangur hans er að vinna gegn efna­hags­legri- og félags­legri mis­munum í þeim ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins sem þiggja aðstoð úr sjóðnum.

Styrkir eru greiddir út á grund­velli áætl­anna sem styrkt­ar­löndin gera. Á síð­asta samn­ings­tíma­bili runnu greiðslur úr sjóðnum til 15 Evr­ópu­sam­bands­landa sem upp­fylltu skil­yrði til að þiggja þær. Stærstu heild­ar­styrkirnir fóru til Póllands (267 millj­ónir evra) og Rúmeníu (191 milljón evra). Önnur ríki sem fengu greiðslur eru Bulgaría, Kýpur, Tékkland, Eistland, Grikk­land, Ung­verja­land, Lettland, Litháen, Malta, Portúgal, Slóvakía, Slóvenía og Spánn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár