Dagur: Nauðsyn­legt að hætta skot­grafa­hernaði varðandi ferðamáta

Borgar­stjórinn segir að nauðsyn­legt sé að kom­ast „út úr þeim skot­grafa­hernaði að líta á að ein­hver einn ferðamáti skuli ráða“. Hann vill að Borgar­línunni verði flýtt.

Dagur B. Eggertsson
Dagur B. Egg­erts­son Mynd: Birgir Þór

Dagur B. Eggertsson borgar­stjóri telur að horfa ætti til þess að flýta fram­kvæmd­um við Borg­ar­línu og aðrar sam­göngu­bæt­ur. Við nú­ver­andi aðstæður í efna­hags­líf­inu sé slíkt kjörið. Þetta kemur fram í viðtali í Morg­un­blaðinu í dag.

Mikill tími fór í það að ræða ýmis þingmál tengd samgöngum á Alþingi síðustu vikur þess í júní. Þingmenn Miðflokksins leiddu þá umræðu með málþófi og sáu þeir sérstak­lega athugvert við fyrir­hugaða Borgar­línu.

Þann 29. júní var þó samþykkt þingmál sem færir Borgar­línu nær því að verða að veruleika, en 46 þingmenn allra flokka nema Miðflokksins og Flokk fólksins samþykktu lög sem heimila stofnun opinbers hluta­félags um uppbyggingu samgöngu­innviða á höfuð­borgar­svæðinu sem verður í sameign ríkisins og sveitar­félaganna á höfuð­borgar­svæðinu.

Borgar­stjórinn segir í samtali við Morgun­blaðið að með því að auka vægi al­menn­ings­sam­gangna í um­ferðinni þá rýmk­ist um aðra um­ferð á sam­gönguæðum höfuðborg­ar­svæðis­ins. Einka­bíll­inn fái meira rými, en einnig sé skapað svig­rúm fyr­ir þá sem ganga, hlaupa eða fara leiða sinn­ar á reiðhjóli. Deili­bíl­ar eigi sömu­leiðis að vera sjálf­sagður sam­göngu­kost­ur.

Í fram­tíðinni verði ferðavenj­ur flestra meiri blanda ólíkra kosta en nú. „Því er okk­ur nauðsyn­legt að kom­ast út úr þeim skot­grafa­hernaði að líta á að ein­hver einn ferðamáti skuli ráða,“ seg­ir Dag­ur.

­Borg­ar­línan er heiti á sam­starfs­verk­efni sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um afkasta­mikið almenn­ings­sam­göngu­kerfi. Búið er að kort­leggja helstu sam­göngu­ása á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem þetta nýja sam­göngu­kerfi mun liggja. Borg­ar­línan mun teygja sig í gegnum öll sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og vera allt að 57 kíló­metrar að lengd. Ekki verða allir kíló­metr­arnir lagðir í einu heldur verður verk­efnið áfanga­skipt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár