Breyting á lyfjalögum eftir fjögurra ára bið

Íslensk stjórn­völd hafa staðið sig illa í að inn­leiða EES til­skip­anir en til stendur að inn­leiða eina slíka eftir ára­mót.

Samkvæmt þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar stendur til að leggja fram á vor­þingi frum­varp til laga um breyt­ingu á lyfja­lögum vegna inn­leið­ingar á EES-reglum. Regl­urnar eiga að koma í veg fyrir að fölsuð lyf kom­ist í umferð en rúm fjögur ár eru síðan til­skip­unin var tekin upp í EES-samn­ingnum.

Stefnt er að því að leggja frum­varpið fram á Alþingi í jan­úar. Frumvarp um heild­ar­end­ur­skoðun lyfja­laga verður ekki aftur á móti ekki lagt fram á þessu þingi en stefnt er að því að gera það næsta haust.

Þetta kemur fram í svari vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Frum­varpið felur í sér inn­leið­ingu á til­skipun Evr­ópu­þings­ins og ráðs­ins frá 8. júní 2011 um breyt­ingu á til­skipun um Banda­lags­reglur um lyf sem ætluð eru mönnum að því er varðar að koma í veg fyrir ólög­lega inn­komu fals­aðra lyfja í lög­lega aðfanga­keðju.

Með til­skipun­inni er meðal ann­ars kveðið á um nýjar reglur í tengslum við fram­leiðslu virkra efna sem ætlað er til fram­leiðslu lyfja, miðlun lyfja, örygg­is­þætti á lyfja­um­búðum og sam­eig­in­legt kenni­merki fyrir net­apó­tek.

Ísland á eftir hinum EES-löndunum

Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, sýndi mál­inu áhuga í pistli í Morg­un­blað­inu í byrjun des­em­ber þar sem hann benti á trassa­skap íslenskra stjórn­valda við að inn­leiða reglur EES og að það myndi koma niður á fyr­ir­tækum og við­skipum hér á landi. Þá gagn­rýndi félag atvinnu­rek­enda harð­lega þennan seina­gang.

Eins og fram kom í frétt Kjarnans þann 11. des­em­ber þá stendur Ísland sig enn og aftur verst í því að inn­­­leiða EES til­­­skip­­anir sem EFTA ríkin hafa skuld­bundið sig til að inn­­­leiða í lög innan tíma­­marka. Þetta kom fram í frammi­stöðu­mati frá ESA, eft­ir­lits­stofnun EFTA, sem birt­ist í haust. Í mat­inu segir að Ísland þurfi að grípa til aðgerða til þess að laga mik­inn inn­leið­ing­ar­halla.

Ísland hefur ekki inn­­­leitt 18 til­skip­anir innan tíma­­marka, sem gerir inn­­­leið­ing­­ar­halla upp á 2,2 pró­sent, sami halli og við síð­ustu könn­un. Hin ríkin í EFTA, Liechten­­stein og Nor­eg­­ur, standa sig mun bet­­ur. Inn­­­leið­ing­­ar­halli Nor­egs er 0,2 pró­sent og Liechten­­stein er með 1,2 pró­sent halla.

Stjórnvöld svöruðu ekki ESA

Í grein Ólafs er saga máls­ins rakin en árið 2011 sam­þykkti Evr­ópu­sam­bandið til­skipun sem inni­heldur reglur til að koma í veg fyrir að fölsuð lyf kom­ist í umferð. Í grein­inni segir að slíkar fals­anir fær­ist í vöxt og séu aug­ljós ógn við öryggi sjúk­linga og lög­lega starf­semi á lyfja­mark­aði.

Sam­eig­in­lega EES-nefndin ákvað í októ­ber 2013 að bæta til­skip­un­inni við EES-samn­ing­inn. Íslandi bar þá að inn­leiða hana eins fljótt og hætt væri. Þann 17. sept­em­ber árið eftir sendi ESA Íslandi form­legar athuga­semdir í bréfi þar sem til­skip­unin hafði ekki verið inn­leidd í íslensk lög. Bréfi ESA var ekki svarað, sam­kvæmt Ólafi.

Jafn­framt segir hann að fjórum mán­uðum síðar, eða 14. jan­úar 2015, hafi ESA sent íslenskum stjórn­völdum svo­kallað rök­stutt álit, þar sem gerð var grein fyrir því að yrði til­skip­unin ekki inn­leidd yrði höfðað mál fyrir EFTA-dóm­stólnum. Vel­ferð­ar­ráðu­neytið, sem ber ábyrgð á mál­inu, hafi ekki heldur svarað þessu bréfi ESA innan til­skil­ins tveggja mán­aða frests.

Ísland dæmt brotlegt við EES-samninginn

ESA höfð­aði þá mál fyrir EFTA-dóm­stólnum þann 16. des­em­ber 2015. Daginn eftir sendi vel­ferð­ar­ráðu­neytið út til umsagnar drög að frum­varpi til heild­ar­end­ur­skoð­unar á lyfja­lögum en með því átti meðal ann­ars að inn­leiða þessa og fleiri Evr­óputil­skip­anir sem varða lyfja­mál. Það eina sem íslenska ríkið færði fram sér til varnar fyrir dóm­stólnum var að til­skip­unin yrði inn­leidd í kringum 1. júní 2016.

Lyfja­laga­frum­varpið var hins vegar ekki lagt fram á Alþingi fyrr en í apríl, það komst ekki í 1. umræðu fyrr en 12. maí og vel­ferð­ar­nefnd sendi það til umsagnar hags­muna­að­ila 18. maí, með umsagn­ar­fresti til 6. júní. Málið var ekki afgreitt frá þing­nefnd­inni áður en þingi var frestað 8. júní 2016. Það var ekki lagt fram aftur á síð­ustu tveimur þingum. Þetta kemur enn fremur fram í grein Ólafs.

Málalok fyrir EFTA-dóm­stólnum urðu þau að Ísland var dæmt brot­legt við EES-samn­ing­inn og til að greiða máls­kostn­að­inn. Það var í júlí í fyrra. Meira en fjórum árum eftir að til­skip­unin var tekin upp í EES-samn­ing­inn hefur hún enn ekki verið inn­leidd í íslensk lög. Á þessu verður þó breyt­ing núna þar sem til stendur, eins og fram kom fyrr í frétt­inni, að leggja frum­varpið fram á vor­þingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár