Ísland enn og aftur eftirbátur annarra ríkja í EES

Íslenskt stjórn­völd eiga enn eftir að inn­leiða reglur frá Evr­ópu­sam­band­inu og segir í frammi­stöðu­mati ESA að nauð­syn­legt sé fyrir stjórn­völd að grípa til aðgerða.

Ísland stendur sig enn og aftur verst í því að inn­leiða EES til­skip­anir sem EFTA ríkin hafa skuld­bundið sig til að inn­leiða í lög innan tíma­marka. Þetta kemur fram í frammi­stöðu­mati frá ESA, eft­ir­lits­stofnun EFTA, sem birt­ist í haust.

Í mat­inu segir að Ísland þurfi að grípa til aðgerða til þess að laga mik­inn inn­leið­ing­ar­halla.

Í frétt Kjarnans sem birt­ist í febr­úar á þessu ári segir að eftir að frammi­staða Íslands í því að inn­leiða reglur frá Evr­ópu hafði batnað stöðugt frá nóv­em­ber 2013 til nóv­em­ber 2015 hafi frammi­staðan versnað í tveimur frammi­stöðu­mötum í röð. Hún stendur nú í stað.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans til ESA segir að næsta frammi­stöðu­mat muni birt­ast rétt eftir ára­mót. Jafn­framt sé áhersla ESA ekki á ein­hver sér­stöð mál heldur á mik­il­vægi þess að inn­leiða regl­urnar innan þeirra tíma­marka sem hafa veirð sett.

Nú eru aftur 18 til­skip­anir sem Ísland hefur ekki inn­leitt innan tíma­marka, sem gerir inn­leið­ing­ar­halla upp á 2,2 pró­sent, sami halli og við síð­ustu könnun. Hin ríkin í EFTA, Liechten­stein og Nor­eg­ur, standa sig mun bet­ur. Inn­leið­ing­ar­halli Nor­egs er 0,2 pró­sent og Liechten­stein er með 1,2 pró­sent halla.

Upp­taka EES gerða er grund­völlur fyrir aðgengi Íslands og hinna EES ríkj­anna að innri mark­aði Evr­ópu­sam­bands­ins. Það að Ísland standi sig svona illa í inn­leið­ingum þýðir að íslenskir rík­is­borg­ar­ar, og rík­is­borg­arar innan alls EES svæð­is­ins, njóta ekki að fullu kosta innri mark­að­ar­ins.

Í þar síð­asta frammi­stöðu­mati ESA, frá því um mitt síð­asta ár, var inn­leið­ing­ar­hall­inn 2 pró­sent. Þá sagði ESA: „Þegar EES-­­­ríki inn­­­­­leiðir ekki til­­­­­skipun innri mark­að­­­ar­ins á réttum tíma fá ein­stak­l­ingar og fyr­ir­tæki ekki notið þeirra rétt­inda sem hún felur í sér. Íslensk fyr­ir­tæki kunna til dæmis að úti­­­lok­­­ast frá aðgangi að innri mark­að­inum ef sam­ræmdar tækn­i­­­legar reglur eru ekki inn­­­­­leidd­­­ar. Því lengur sem inn­­­­­leið­ing dregst, því alvar­­­legri geta afleið­ing­­­arnar orð­ið.“

ESA hefur ítrekað sagt að Ísland þurfi að standa sig miklu betur til að standa við skuld­bind­ingar sínar gagn­vart inn­­­leið­ingu á lögum og reglum EES samn­ing­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár