Big Short-miðlarinn veðjar á brúðkaupslán

Greg Lippman rekur vogunar­sjóð sem veðjar nú á að hávaxta­skammtímalán til brúðkaupa­halds muni gefa vel af sér.

Greg Lippman, sem hagnaðist verulega á því að veðja á hrun fasteigna­markaðarins í Banda­ríkjunum árið 2007 og 2008, er kominn í nýja tegund viðskipta. Sértæk brúðkaupslán.

Lippman er ein aðal­söguhetjan í bókinni The Big Short, eftir Michael Lewis, en kvikmynd eftir bókinni kom út í fyrra, og var tilnefnd til Óskars­verðlauna í fjölmörgum flokkum. Ryan Gosling leikur Lippman í myndinni, en hann var áður starfs­maður Deutsche Bank og byggði bankinn upp skort­stöðu gegn fasteigna­markaðnum í Banda­ríkjunum sem nam fimm milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 650 milljörðum króna. Hann þurfti að berjast fyrir því að ná sínu fram og voru fjölmargir sem efuðust stórkost­lega um að hann hefði rétt fyrir sér. Fáir trúðu því að skuldabréfavafningarnar sem veðjað var gegn, væru jafn verð­litlir og þeir reyndust vera.

Veðmálið gekk upp

Að lokum fór svo, hagnaðurinn var gífur­legur af viðskiptunum. Sjálfur fékk hann bónus­greiðslu upp á 47 milljónir Bandaríkja­dala, eða sem nemur 6,1 milljarði króna, þegar búið var að framkvæma síðustu viðskiptin. Gott gengi Lippman leiddi til þess að hann hætti störfum hjá Deutsche Bank og stýrir nú vogunar­sjóði, LibreMax Capital LLC.

Sjóðurinn hefur nú samþykkt að fjármagna lán fyrir­tækisins Promise Financial, sem veitir lán til brúðkaups­halds í gegnum netið, samkvæmt fréttum Bloomberg. Meðaltals­kostnaður við brúðkaup í Banda­ríkjunum er áætlaður 30 þúsund Bandaríkja­dali, eða um 3,9 milljónir króna. Markaðurinn er stór og stöðugur, þar sem tölur um giftingar liggja fyrir og kort­lagning markaðarins út frá því nokkuð fyrir­sjáanleg. Stofn­endur Promise Financial, hinn 29 ára gamli Josh Jersey og hinn þrítugi Bradley Valderstarren, segja að þessi þjónusta sé ekki síst til þess fallin að koma til móts við aukna eftir­spurn eftir lánum sem bera hærri vexti en hefð­bundin íbúðalán, enda eru lánin til brúðkaupa­halds til skemmri tíma og ekki veitt gegn sérstökum veðum.

Allur pakkinn

Hámarkslán fyrir­tækisins eru 10 þúsund Bandaríkja­dalir, eða sem nemur 1,3 milljónum króna, og geta vextir á ári verið frá 6,99 prósent upp í allt að 30 prósent. Lánin er síðan sniðin að ákveðinni þjónustu, til dæmis ljósmynda- og veislu­þjónustu. Allur pakkinn sem brúðhjónin óska eftir.

Flestir lántakar Promise Financial eru með gott lánshæfi (Credit Score) en hafa ekki safnað fyrir þeirri upphæð sem þarf til að gera stóra daginn í takt við óskir brúðhjóna.

LibreMax Capital horfir til þess, að sértækar lánveitingar, eins og til brúðkaups­halds, muni vaxa nokkuð á næstunni og færast frá bönkum til smærri fyrir­tækja, ekki síst sem starfa eingöngu á netinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár