Tveir starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Vestmannaeyjum eru í haldi lögreglunnar í Eyjum á meðan rannsakað er hvort þeir hafi átt aðild að andláti sjúklings á stofnuninni.
Haft er eftir Jóni Gunnari Þórhallssyni yfirlögregluþjóni í viðtali við Morgunblaðið að tveir sakborningar séu í málinu og að ekki hafi verið farið fram á gæsluvarðhald „á þessari stundu“.
Samkvæmt sama miðli er annar aðilanna hjúkrunarfræðingur. Þar segir að rannsóknin beinist að því hvort lyfjagjöf hafi orsakað andlátið. Skýrslutökur eru yfirstandandi.
Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur ekkert gefið út um málið að öðru leyti og ekki heldur Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.

















































Athugasemdir