Nýjar þyrlur Landhelgisgæslunnar kallaðar „fljúgandi líkkistur“

Eftir mann­skæð slys hefur þyrlum, af þeirri teg­und sem Land­helg­is­gæslan hefur ákveðið að kaupa, verið lagt í Noregi og Bret­landi. Sama bil­unin hefur valdið í það minnsta fjórum slysum frá 2009. Tvö slysanna kost­uðu sam­tals 29 manns lífið.

Norðmenn vilja ekki sjá þyrlur sem Landhelgisgæslan fær
Norðmenn vilja ekki sjá þyrlur sem Land­helg­is­gæslan fær Almennt van­traust er í Noregi og Bret­landi á þyrlum af þeirri gerð sem Land­helg­is­gæslan mun fá til notk­unar um næstu ára­mót. Bilanir í gír­kössum þyrln­anna hafa valdið mann­skæðum slysum. Mynd: Wikimedia Commons

Vantrú ríkir bæði í Noregi og Bret­landi í garð björg­un­ar­þyrlna af þeirri teg­und sem Land­helg­is­gæsla Íslands mun fá til að end­ur­nýja flug­flota sinn um næstu ára­mót. Þrettán manns lét­ust þegar þyrla sömu teg­undar fórst í Noregi 2016 og sextán lét­ust þegar þyrla frá sama fram­leið­anda fórst við Skotlands­strendur árið 2009. Bilun í gír­kössum þyrln­anna olli slys­unum.

Spaðarnir losnuðu af

Þyrlurnar sem Land­helg­is­gæslan fær um ára­mótin eru af gerð­inni H225 Super Puma og eiga að leysa af hólmi tvær leigu­þyrlur gæsl­unnar sem eru af eldri Super Puma gerð. Þyrla af sömu teg­und fórst í slysi við eyna Turøy, skammt vestur af Bergen, 29. apríl 2016 með þeim afleið­ingum að þrettán manns létu lífið. Slysið varð með þeim hætti að þyrlu­spað­arnir losn­uðu af og var ástæðan sú að bilun kom upp í gír­kassa vél­ar­innar.

Þrettán lét­ustBilun í gír­kassa olli því að spað­arnir á H225 Super …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár