Úrskurðarnefnd: Ráðherra þarf ekki að afhenda lögfræðiálitin

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið þarf ekki að afhenda lög­fræði­á­lit sem aflað var þegar Lilja D. Alfreðs­dóttir ákvað að stefna konu til að fá úrskurði kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála hnekkt. Þetta er nið­ur­staða úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál.

Lilja D. Alfreðsdóttir er mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja D. Alfreðs­dóttir er mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál hefur stað­fest synjun mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins á beiðni Kjarnans um aðgang að þeim lög­fræði­á­litum sem Lilja D. Alfreðs­dótt­ir, mennta- og menn­ing­ar­mála, afl­aði í aðdrag­anda þess að hún ákvað að höfða mál á hendur Haf­­dísi Helgu Ólafs­dótt­­ur, skrif­­stofu­­stjóra í for­­sæt­is­ráðu­­neyt­inu.

Kæru­­nefnd jafn­­rétt­is­­mála úrskurð­aði fyrr á þessu ári að Lilja hefði brotið jafn­­rétt­is­lög með því að snið­­ganga Hafdísi Helgu í emb­ætti ráðu­­neyt­is­­stjóra í ráðu­neyt­in­u.

Þegar greint var frá á RÚV þann 24. júní síð­ast­lið­inn að Lilja ætl­aði að stefna Haf­dísi Helgu, með það fyrir augum að fá úrskurð kæru­nefnd­ar­innar ógild­an, kom fram að sú ákvörðun hefði verið tekin eftir að ráð­herr­ann hefði aflað sér lög­fræði­á­lita sem bent hefðu á laga­lega ann­­marka í úrskurði kæru­­nefnd­­ar­inn­­ar. Úrskurð­­ur­inn byði upp á laga­­lega óvissu í tengslum við það ferli sem unnið sé eftir við skipan emb­ætt­is­­manna. Þeirri laga­ó­vissu vildi Lilja eyða. Stefna Lilju gegn Hafdísi Helgu var þing­fest í dag í hér­aðs­dómi Reykja­víkur.

Kjarn­inn óskaði eftir því í byrjun að fá umrædd lög­fræði­á­lit sem stefnan byggir á afhent, en var synjað.

Undanþegin upplýsingarétti almennings

Ráðu­neytið vís­aði í þriðja tölu­lið sjöttu greinar upp­lýs­inga­laga þegar það synj­aði Kjarn­anum um aðgang að lög­fræði­á­lit­unum þar sem segir að bréfa­skipti við sér­fróða aðila í tengslum við rétt­ará­grein­ing eða til afnota í dóms­máli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað séu und­an­þegin upp­lýs­inga­lögum.

Kjarn­inn kærði þá nið­ur­stöðu til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál sem komst að þeirri nið­ur­stöðu í síð­ustu viku að Lilja þyrfti ekki að afhenda álitin.

Í nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar segtir að hún hafi kynnt sér gögn máls­ins en um sé að ræða tvær lög­fræði­legar álits­gerðir, dag­settar 3. og 8.júní 2020. „. Í lög­fræði­á­lit­unum er fjallað um meinta ann­marka á úrskurði kæru­nefnd­ar­innar en fyrir liggur að höfðað hefur verið dóms­mál til ógild­ingar úrskurð­ar­ins. Úrskurð­ar­nefndin telur sam­kvæmt fram­an­greindu að ekki leiki vafi á því að heim­ilt sé að und­an­þiggja umbeðin gögn upp­lýs­inga­rétti almenn­ings á grund­velli[...]upp­lýs­inga­laga Verður þá að leggja áherslu á að ekki verður annað ráðið af efni þess­ara lög­fræði­á­lita en að þeirra hafi verið gagn­gert aflað við athugun á hugs­an­legri máls­höfðun til ógild­ingar á úrskurði kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála.“

Þar segir enn fremur að þótt almenn­ingur kunni að hafa hags­muni af því að geta kynnt sér slík gögn, og kær­andi í mál­inu gegni því hlut­verki sem starfs­maður fjöl­mið­ils að miðla upp­lýs­ingum um opin­ber mál­efni, hafi lög­gjaf­inn við setn­ingu upp­lýs­inga­laga „tekið skýra afstöðu til þess að slík gögn skuli vera und­an­þegin upp­lýs­inga­rétti almenn­ings.“

Braut jafn­rétt­islög

Greint var frá því í byrjun júní að Lilja hefði brotið jafn­­­rétt­is­lög við skipun Páls Magn­ús­­­sonar í emb­ætti ráðu­­­neyt­is­­­stjóra í fyrra, sam­­­kvæmt úrskurði kæru­­­nefndar jafn­­­rétt­is­­­mála. Haf­­­dís Helga hefði verið van­metin í sam­an­­burði við Pál. Hæf­is­­nefnd mat ekki Haf­­dísi Helgu í hópi þeirra fjög­­urra sem hæf­­astir voru taldir í starf­ið.

Páll, sem var skip­aður í emb­ættið síðla árs í fyrra, hefur um ára­bil gegn trún­­­­að­­­­ar­­­­störfum fyrir Fram­­­­sókn­­­­ar­­­­flokk­inn en hann var vara­­­þing­­­maður Fram­­­sókn­­­ar­­­flokks­ins í tvö kjör­­­tíma­bil í kringum árið 2000 og aðstoð­­­ar­­­maður Val­­­gerðar Sverr­is­dóttur ráð­herra Fram­­­sókn­­­ar­­­flokks­ins.

Í kjöl­far frétta um nið­­ur­­stöðu kæru­­nefnd­­ar­innar fjöll­uðu fjöl­miðlar um for­­mann hæf­is­­nefnd­­ar­innar sem tók um ráðn­­ingu ráðu­­neyt­is­­stjór­ans. For­­maður hennar er lög­­fræð­ing­­ur­inn Einar Hugi Bjarna­­son, sem Lilja hefur á tveggja og hálfs starfs­­tíma sínum í ráðu­­neyt­inu, valið til margra trún­­að­­ar­­starfa. Ráðu­­neytið hefur á þeim tíma greitt Ein­­ari Huga alls 15,5 millj­­ónir króna fyrir lög­­fræð­i­ráð­­gjöf og nefnd­­ar­­setu á vegum ráðu­­neyt­is­ins.

Í áður­nefndri frétt RÚV, frá 24. júní, var rakið að í lögum um kæru­­nefnd jafn­­rétt­is­­mála segi að úrskurðir hennar séu bind­andi gagn­vart máls­að­il­um, en þeim sé heim­ilt að bera úrskurði hennar undir dóm­stóla. Til þess þurfi ráð­herr­ann, Lilja, að höfða mál á hendur kær­and­an­um, Haf­­dísi Helg­u.

Lög­­­maður Haf­­dísar Helgu, Áslaug Árna­dótt­ir, sagði við RÚV að þessi ákvörðun ráð­herr­ans hefði komið á óvart. „ Ég veit ekki til þess að þetta hafi verið gert áður, að ráð­herra hafi höfðað mál per­­són­u­­lega gegn aðila sem kærir ákvörðun ráð­herra til kæru­­nefnd­­ar­inn­­ar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár