Töfrar leikhússins

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um Dansandi ljóð þar sem Leikhús­listakonur 50+ voru í samstarfi við Þjóð­leikhúsið.

Leikhúslistakonur 50+ í samvinnu við Þjóðleikhúsið: Dansandi ljóð

Ljóð: Gerður Kristný

Leik­stjórn: Edda Þórarins­dóttir

Tónlist: Margrét Kristín Sigurðar­dóttir

Leikmynd og búningar: Helga Björnsson

Höfundur sviðs­hreyfinga: Ingibjörg Björns­dóttir og Ásdís Magnúsdóttir.

Hárgreiðsla og förðun: Guðrún Þorvarðar­dóttir og Kristín Thors.

Lýsing og tækni­stjórn: Magnús Thorlacius

Leikkonur: Bryndís Petra Brgadóttir, Helga E. Jóns­dóttir, Júlía Hannam, Margrét Kristín Sigurðar­dóttir, Rósa Guðný Þórs­dóttir, Sólveig Hauks­dóttir, Vilborg Halldórs­dóttir og Þórey Sigþórs­dóttir.

Það er löngu orðin staðreynd, að Leikhús­listakonur 50+ hafa lyft grettis­taki þegar kemur að því að miskunnar­laus leikhús­bransinn sendi ekki hæfileika­fólk og reynslu­bolta í ótímabæra útlegð. Það er hreinlega eins og það séu álög á leikhús­listakonum að dæmast úr samfélagi leik­hússins um leið og einhverjum aldri er náð og eiga þangað aldrei aftur­kvæmt. Þetta er mikil sóun á hæfi­leikum og þekkingu. Það þarf ekki nema horfa á andlit þeirra átta leik­kvenna sem flytja Dansandi ljóð til að átta sig á að í þessum konum öllum er að finna kunnáttu, leikni og þjálfun sem er hreinlega skaði fyrir leikhúsið að missa. Sjáið andlitin, geislandi af þeirri fegurð sem lífið, meðlæti og mótlæti færir hverjum einstaklingi – hvaða sögur gætu ekki þessi andlit sagt, ef leikhús­stofnanirnar bara leyfðu það!

 

Dansandi ljóð ber einmitt vott um þetta: hér tala raddir kvenna úr þeim heimi, sem ljóð­skáldið Gerður Kristný hefur skapað og það er enginn smáheimur það, allt frá sköpun til hinstu kveðju­stundar spannar hann og er haganlega lagaður af leik­stjóranum, Eddu Þórarins­dóttur, sem hefur auk þess skapað stíl­hreina og heillandi fallega sýningu með aðstoð hreyfinga Ingibjargar Björns­dóttur og Ásdísar Magnúsdóttur, einfaldrar leik­myndar og búninga Helgu Björnsson og skemmtilegri hárgreiðslu Guðrúnar Þorvarðar­dóttur og förðun Kristínar Thors. Auk þess er á stundum notast við grímur sem styrkja blæ sýningarinnar: hér er ákveðið ritúal á ferðinni, við fáum innsýn í heim kvenna sem af örlæti, elsku og kærleika miðla okkur sinni sýn; hér er líkt og átta nornir spinni sinn vef og umvefji hann okkur og geri okkur að banda­mönnum sínum, en rétt eins og þessar átta nornir birtast okkur hver með sinni rödd og fasi eru þær þó eins og ein, rödd Konunnar sem er frum­krafturinn í mannlegu lífi. Það er einfald­lega fallegt og hrífandi.

Um ljóð Gerðar Krist­nýjar þarf ekki að fara mörgum orðum. Þau hafa fyrir löngu unnið sér þann sess að fátækleg orð þess sem hér skrifar fá engu þar við bætt. Þau eru til þess að njóta þeirra, það er auðvelt og sjálfsagt að gangast á vald þeirra og láta þau í senn umlykja sig og fylla. Það er ekki lítill unaður fólginn í því að verða eitt með ljóðum Gerðar Krist­nýjar og Edda leik­stjóri hafði raðað þeim í rökrétta og eðlilega frásögn.

Ekki kann ég skil á því hvort fjallað hefur verið sérstak­lega um hversu vel ljóð Gerðar Krist­nýjar fara í munni, en sé svo má vel nefna það einu sinni enn. Ljóðin hennar eru ákaflega fýsisk, líkamleg, og ekki síst þar sem fæðist hljóðið sem ber þau áfram, frá einstaklingi til einstaklings, frá manneskju til manneskju.

Og hér er líka að finna einn megin­styrk sýningarinnar Dansandi ljóð: hver einasta leikkona á sviðinu hafði fullkomið vald á framsögn og talanda og það var hreinasta unun að heyra hvert orð, skilja hverja hugsun án þess að nokkur misbrestur væri þar á. Hér er komin sértæk ástæða af hverju íslensku leikhúsi ber að hafa leikhús­listakonur 50+ í vinnu: þær kunna að tala! Þær hafa vald á talfærunum, vita hvernig á að beita þeim til að koma á framfæri ekki bara orðunum sem slíkum og hljóðunum, heldur hugsuninni sem undir býr og tilfinningunni af þeim sprettur.

Það eru töfrar leik­hússins sem eru að verki þegar áhorfandi og áheyrandi sér og heyrir persónu úr öðrum tíma og öðru rúmi tjá sig þannig að það hríslast um mann hrollur, sælu eða óhugnaðar eftir atvikum, bara af því hvernig röddin hljómar. Það eru nákvæmlega þessir töfrar sem gefa leik­húsinu tilvistar­rétt. Og með því að hafna kröftum þessara reyndu kvenna er leikhúsið að fyrirgera tilvistar­rétti sínum. Hver vill sitja undir útblæstri leikara sem geta ekki skamm­laust komið frá sér texta eða skilningi?

Dansandi ljóð er öðrum þræði ritúal eins og nefnt var. Það hvílir helgur blær yfir sýningunni sem er hvergi ýktur eða ofgerður, ávallt hófsamur, fagur og mátulega hlaðinn hátíðleik eins og ritúali ber. Þess gætti ekki síst í leikmynd og búningum og uppsetningu hárs, sem hér gaf öllum flytjendum viðkunnanlegan heildarblæ.

En hér er eiginlega eina spurningin sem skylt er að velta fyrir sér, einfald­lega vegna þess að sýningin býr hugsanlega yfir mögu­leikum sem ekki hefur verið færi á að nýta, sennilega vegna skorts á fé og tíma: ljóð Gerðar Krist­nýjar búa yfir frásögn, það er óvéfengjanlegt. En skyldi vera að hægt væri að búa þeim dramatískan búning, þar sem hver hinna sjö leik­kvenna fengi hreint og beint persónu að skapa, sem ásamt öðrum persónum fleytti sögunni áfram fram borinni af vilja og átökum milli persónanna? Skýrt skal tekið fram að þessi spurning er ekki sett fram af því Dansandi ljóð séu ófullgerð sýning – það er öðru nær! – heldur einungis til að vekja athygli á því, að ljóð Gerðar Krist­nýjar virðast búa yfir þeim krafti sem veitt persónu af holdi og blóði líf, og því nær talmáli sem þau eru fram sögð, þeim mun áhrifa­ríkari verða þau. Hér má því ætla að unnt sé að vinna enn frekar með ljóð hennar og í höndum Eddu og hennar hóps væri gaman að sjá hvort slík þróun sé yfir höfuð möguleg.

Ekki verður svo skilið við Dansandi ljóð en vikið sé að tónlistinni. Hún féll að öllu leyti vel að efni og formi sýningarinnar og ekki varð betur fundið en gætti áhrifa frá meðal annars ómstríðum tónum Kurt Weill og Hans Eisler – gaman að því. Tónlist, texti og túlkun myndaði í meðförum listrænna stjórn­enda markvissa og meðvitaða heild og það er í raun ekkert eftir en óska Dansandi ljóðum margra og góðra lífdaga og vona að sem flestir rati í Þjóðleikhús­kjallarann til að leyfa ljóðum Gerðar Krist­nýjar og gjörningi Eddu og leikhús­listakvenna 50+ hríslast um sig og veita sér sýn inn í margræðan heim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár