Vísað á einkarekna læknisþjónustu

Spænskum manni, sem búsettur er hér á landi, var tvisvar á stuttu tímabili ráðlagt að leita til einka­rekinnar lækna­stöðvar, frekar en að fá meðferð við sjúkdómi sínum á Land­spítalanum.

Af Landspítalanum
Af Land­spít­al­anum Mikið álag hefur verið á Land­spít­al­anum að und­an­förnu. Mynd: Kristinn Magnússon

Spænskum manni, sem leitaði á bráða­móttöku Land­spítalans í byrjun síðustu viku vegna blæðingar, var tjáð að hann ætti ekki að leita þangað.

Frá þessu greinir El Faro de Reykjavík, sem er frétta­miðill á spænsku sem fjallar um íslensk málefni. Maðurinn, sem vildi ekki koma fram undir nafni, lýsti því að honum hafi verið bent á að leita til sérfræðings vegna meina sinna. Þar sem sérfræðingurinn taki ekki á móti bráða­tilfellum og það geti tekið nokkrar vikur að fá hjá honum tíma hafi maðurinn neitað frá að hverfa og krafist þess að láta lækni á bráða­móttökunni skoða sig.

Að lokum komst hann að. Tekin var hjá honum blóðprufa sem leiddi í ljós að hann þurfti á frekari aðstoð læknis að halda. Var honum þá tjáð að hann þyrfti að leita til sérfræðings á einka­rekinni stofu, þar sem „það væri vaninn á Íslandi“. Þremur vikum fyrr hafði hann fengið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár