Talað um að lækka mögulega skatta en engu lofað

Engar almennar skattkerfis­breytingar eru útfærðar í nýjum stjórnar­sáttmála ríkis­stjórnarinnar. Forsætis­ráðherra segir að horft verði til þess að lækka skatta á þá tekju­lægstu eða til að bæta samkeppnis­stöðu fyrir­tækja ef svigrúm gefist.

Talað er um að horft verði til bæði skatta­lækkana og frekari eflingu almanna­þjónustunnar í nýjum stjórnar­sáttmála ríkis­stjórnarinnar, sem kynntur var í dag. Hvað skattana varðar er þó ekki settar fram nein útfærð stefna um breytingar. Það á að sjá til hvernig fram vindur í ríkis­fjármálum.

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra segir við Kjarnann að ef svigrúm verði til einhverra skatta­lækkana komi á kjör­tímabilinu verði þær í þágu þeirra tekju­lægstu í eða til þess að bæta samkeppnis­stöðu fyrir­tækja.

„Það er talað um það að við ætlum ekki að fara í niður­skurð heldur munum við horfa til þróunar ríkis­fjármála og eftir því sem þróun þeirra leyfir verði horft til þess að efla almanna­þjónustuna annars vegar og lækka skatta ef svigrúm er til, þannig að það nýtist hinum tekju­lægstu eða styrki samkeppnis­stöðu fyrir­tækja,“ sagði forsætis­ráðherra í samtali við Kjarnann á Kjarvals­stöðum fyrr í dag, en þar var stjórnar­sáttmálinn kynntur á blaðamanna­fundi.

Í sátt­málanum segir að horft verði sérstak­lega til skatt­breytinga hjá litlum og meðal­stórum fyrir­tækjum, ef af einhverjum breytingum þá verður.

„Það er ekki verið að lofa neinu, þetta hlýtur að hanga í raun og veru á því hvernig gengur,“ segir Katrín.

Niðurskurður ekki á dagskrá

Katrín segir það ef til vill vera „stóru tíðindin“ hvað efnahagsmál varðar að ríkis­stjórnin sé ekki að boða niður­skurð í almanna­þjónustunni og á henni er að heyra að hún sé þokkalega bjartsýn á þróun ríkis­fjármála.

„Við erum að koma miklu betur út úr árinu en þegar fjármála­áætlun var samþykkt á sínum tíma. Það vekur manni bjartsýni um að við séum að ná þessum markmiðum um að vaxa út úr kreppunni.“

Um efnahags­mála­stefnu ríkis­stjórnarinnar er fjallað á fyrstu síðum stjórnar­sáttmálans, undir yfir­skriftinni Við ætlum að vaxa til meiri velsældar. Þar segir auk annars að ríkis­stjórnin muni „stuðla að því að skatt­kerfið standi undir samneyslu og gegni tekju­jöfnunar­hlutverki, reglur skattkerfsins séu skýrar og réttlátar og að framkvæmd þeirra sé skilvirk og gagnsæ.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár