Ráðuneytið tekur ekki undir með Landsvirkjun

Umhverf­is­ráðu­neytið telur það rangt sem Lands­virkjun heldur fram að Kjalöldu­veitu hafi verið raðað „beint í vernd­ar­flokk“ ramma­á­ætl­unar án umfjöll­unar. Þá telur það verndun heilla vatna­sviða, sem Lands­virkjun hefur gagn­rýnt, stand­ast lög.

Efsti hluti Þjórsár yrði virkjaður yrði Kjalölduveita að veruleika.
Efsti hluti Þjórsár yrði virkj­aður yrði Kjalöldu­veita að veru­leika. Mynd: Skjáskot/Landsvirkjun

Umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neytið tekur ekki undir þá afstöðu Lands­virkj­unar að ákvörðun verk­efn­is­stjórnar 3. áfanga ramma­á­ætl­unar hvað varðar virkj­un­ar­kost­inn Kjalöldu­veitu hafi verið ólög­mæt. Telur ráðu­neytið full­yrð­ingar fyr­ir­tæk­is­ins, sem fram eru settar í umsögn við þings­á­lykt­un­ar­til­lögu að ramma­á­ætlun, um að Kjalöldu­veita hafi ekki fengið „lög­mæta skoðun fag­hópa“, ekki stand­ast skoðun. Þar af leiði séu full­yrð­ingar Lands­virkj­unar um að stjórnin hafi ákveðið „ein­hliða að ekki skyldi fjallað um virkj­un­ar­kost­inn“ og að honum hafi verið „raðað beint í vernd­ar­flokk án umfjöll­unar fag­hópa“ einnig rangar. Að mati ráðu­neyt­is­ins hlaut virkj­un­ar­kost­ur­inn full­nægj­andi umfjöllun.

Þings­á­lykt­un­ar­til­laga að þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar er nú komin til þing­legrar með­ferðar í fjórða sinn á rúm­lega fimm árum. Núgild­andi ramma­á­ætlun, þar sem virkj­ana­hug­myndir eru flokk­aðar í nýt­ingar-, bið- og vernd­ar­flokk, er frá árinu 2013 og er því orðin níu ára gömul. Verk­efn­is­stjórnir næstu tveggja áfanga hafa lokið störfum og stjórn þess fimmta þegar hafið störf.

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks er að finna lof­orð um að lokið verði við þriðja áfang­ann. Því er hins vegar bætt við í sömu setn­ingu að fjölga eigi kostum í bið­flokki. Hægt er að hreyfa við flokk­un­inni svo lengi sem Orku­stofnun hefur ekki gefið út virkj­ana­leyfi fyrir kosti í nýt­ing­ar­flokki eða svæði í vernd­ar­flokki hafi verið frið­lýst.

Um 80 kostir í jarð­varma, vatns­afli og vind­orku eru flokk­aðir í þrennt í til­lög­unni sem nú er til umfjöll­unar í umhverfis- og sam­göngu­nefnd Alþingis, og byggir hún alfarið á nið­ur­stöðu verk­efn­is­stjórnar áætl­un­ar­innar sem skil­aði af sér loka­skýrslu í ágúst árið 2016.

Lands­virkjun telur hins vegar ákvörðun verk­efn­is­stjórn­ar­innar um að raða Kjalöldu­veitu í vernd­ar­flokk ekki í sam­ræmi við lög. Stjórnin hafi tekið stjórn­valds­á­kvörðun sem hún er ekki bær að lögum til að taka með því að raða kost­inum „beint í vernd­ar­flokk án umfjöll­unar fag­hópa“. Var það gert á þeim rökum að Kjalöldu­veita væri breytt útfærsla Norð­linga­öldu­veitu sem væri þegar í vernd­ar­flokki, að sama vatna­svið, Þjórs­ár­ver, væri undir í báðum til­vikum.

Lands­virkjun óskar eftir því að Kjalöldu verði raðað í bið­flokk í með­förum Alþingis.

Fjallað um kostinn samkvæmt vel skilgreindri aðferðafræði

Nú um miðjan mars var óskað eftir afstöðu umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­is­ins til tveggja kafla í umsögn Lands­virkj­unar við þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una. Annars vegar um að afmörkun land­svæða væri ekki í sam­ræmi við lög og hins vegar um lög­mæti ákvörð­unar verk­efn­is­stjórnar um flokkun Kjalöldu­veitu.

Hvað varðar það síð­ar­nefnda rök­styður ráðu­neytið svar sitt, sem birt hefur verið á vef Alþingis, m.a. með vísan til bréfa for­manna fag­hópa verk­efn­is­stjórn­ar­innar frá árinu 2015. Þar kemur fram að þeir hafi tekið Kjalöldu til umfjöll­unar og metið hann sam­kvæmt við­ur­kenndri og vel skil­greindri aðferða­fræði. Rifjað er upp að fjöldi virkj­un­ar­kosta sem Orku­stofnun sendi verk­efn­is­stjórn­inni til umfjöll­unar hafi verið slíkur að hvorki tími né fjár­hagur hefðu nægt til að fjalla um þá alla.

Verk­efn­is­stjórnin óskaði hins vegar eftir því að fag­hóp­arnir legðu mat á hvort líta bæri á Kjalöldu­veitu sem nýjan kost eða hvort þar væri fyrst og fremst um að ræða nýja útfærslu á Norð­linga­öldu­veitu.

Fag­hóp­arnir fóru yfir þau gögn sem fylgdu Kjalöldu­veitu, hver út frá sinni aðferða­fræði og skil­uðu að þeirri með­ferð lok­inni nið­ur­stöðum sínum til verk­efn­is­stjórnar.

„Í ljósi ofan­greinds og fyr­ir­liggj­andi gagna getur ráðu­neytið ekki tekið undir þá afstöðu Lands­virkj­unar að ákvörðun verk­efn­is­stjórnar hvað varðar Kjalöldu­veitu hafi verið ólög­mæt.“

Víðtæk áhrif friðunar vatnasviða

Í umsögn Lands­virkj­unar um til­lögu að ramma­á­ætlun 3 kemur einnig fram að fyr­ir­tækið telji verk­efn­is­stjórn­ina ekki hafa heim­ild til að setja heil vatna­svið í vernd­ar­flokk og þar með alla virkj­un­ar­kosti á við­kom­andi vatna­sviði eins og gert var varð­andi kosti fyr­ir­tæk­is­ins í Skjálf­anda­fljóti ann­ars vegar og í Skaga­firði hins vegar. Þegar virkj­un­ar­hug­mynd­irnar voru hann­aðar og lagðar inn í ramma­á­ætlun hafi ekki verið gert ráð fyrir að áhrifin yrðu svo víð­tæk. Gera verði kröfu um að ákvarð­anir sem hafa slík áhrif séu byggðar á skýrum laga­á­kvæðum.

Ráðu­neytið bendir á í svari sínu að sam­kvæmt lögum um verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun sé það hlut­verk verk­efn­is­stjórnar að vinna drög að til­lögum um flokkun virkj­un­ar­kosta og afmörkun virkj­unar- og vernd­ar­svæða í sam­ræmi við flokk­un­ina. Þá segi einnig í lög­unum að verk­efn­is­stjórn fjalli um virkj­un­ar­kosti og þau land­svæði sem við­kom­andi virkj­un­ar­kostir hafa áhrif á að hennar mati. „Það kemur því skýrt fram í lög­unum að það er verk­efn­is­stjórnar að meta hvaða land­svæði virkj­un­ar­kostur hefur áhrif á og gera til­lögur að afmörkun virkj­unar- og vernd­ar­svæða,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins sem vísar m.a. í grein­ar­gerð frum­varps­ins þar sem segir að virkj­un­ar­svæði í vatns­afli mið­ist almennt við allt vatna­svið fall­vatns­ins ofan þeirrar virkj­unar sem nýtir fallið neðan virkj­unar en að hins vegar kemur til álita að vernda heil vatna­svið.

„Verk­efn­is­stjórnin hefur því heim­ildir til að afmarka svæðin eins og hún telur nauð­syn­legt, þ.m.t. heil vatna­svið eða vatna­svið að hluta og leggja til að þau svæði verði sett í vernd­ar­flokk,“ segir í svari umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­is­ins. „Með vísan til ofan­greinds getur ráðu­neytið ekki tekið undir það mat Lands­virkj­unar að afmörkun land­svæð­anna sé ekki í sam­ræmi við lög um verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun.“

Þeir virkj­ana­kostir sem Lands­virkjun áformar að virkja næst eru allir í nýt­ing­ar­flokki sam­kvæmt núgild­andi ramma­á­ætlun. Þetta eru Hvamms­virkjun í Þjórsá (93 MW), virkj­anir á veitu­leið Blöndu (28 MW) og stækkun Þeista­reykja­virkj­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár