Fórnarlamb íslenska læknisins: „Loksins kom réttlætið“

Læknirinn Emma Caroline Fernandez, sem starfaði á Selfossi, var dæmd í vikunni fyrir að ráðast á konu í Ungverja­landi. Þolandinn kvaðst hafa verið orðin úrkula vonar.

Konan sem íslenski læknirinn Emma Caroline Fernandez hefur verið dæmd fyrir hafa ráðist á í Ungverja­landi segist mjög ánægð með niður­stöðu dómsins í samtali við Stundina. Fórnar­lambið, Funkebi Brambaifa, starfar sem læknir í heima­landi sínu, Nígeríu, og náði Stundin tali af henni rétt í þessu en hún frétti af niður­stöðu dómsins í gær. „Auðvitað er ég glöð. Þetta var komið á þann stað að ég hélt að enginn myndi gera neitt af því ég er svört. Ég var búin að gefast upp, því þetta gerðist árið 2012. Núna er árið 2016 og þetta er eiginlega smá yfir­þyrmandi, en loksins kom réttlætið,“ segir Funkebi.

Emma var á miðvikudag dæmd í fimm ára skilorðs­bundið fangelsi fyrir alvarlega líkams­árás en að sögn lögmanns hennar, Ingibjargar Ólöfu Vilhjálms­dóttur, hefur dóminum verið áfrýjað. Emma var dæmd fyrir að hafa árið 2012 byrlað Funkebi svefnlyf og barið hana í fram­haldinu tvívegis í höfuðið með hamri. 

Ekki náðist í Emmu við vinnslu fréttir en þegar Stundin ræddi við hana í október vildi hún ekki tjá sig um málið utan þess að hún lýsti sig saklausa.

Málið hefur verið nokkurn tíma í vinnslu út í Ungverja­landi en Emma tjáði ekki yfir­mönnum sínum við lyflækninga­deild Heilbrigðis­stofnunar Suður­lands um alvarleika brotsins. Hún starfaði við lækningar allt fram til síðastliðins október­mánaðar þegar greint var frá málinu í íslenskum fjöl­miðlum. Þá fór hún í launað leyfi. Hjörtur Kristjánsson, framkvæmda­stjóri lækninga við HSU, segir í samtali við Stundina að hún hafi verið ráðin tíma­bundið til áramóta og hafi hún ekki sóst eftir starfinu að nýju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár