Forseti ASÍ segist hafa fengið nafnlaus bréf með hjálparbeiðnum frá starfsfólki Play

Drífa Snædal forseti Alþýðu­sambandsins segir í pistli í dag að henni hafi undan­farnar vikur og mánuði borist nafnlaus bréf frá starfs­mönnum Play, sem óttist afleiðingar af því að koma fram undir nafni, með ábendingum um slæman aðbúnað.

Drífa Snædal forseti Alþýðusambands Íslands.
Drífa Snædal for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir frá því í dag að starfs­fólk flug­félagsins Play hafi undan­farnar vikur og mánuði ítrekað sent henni óskir um liðsinni og ábendingar um „slæman aðbúnað“ hjá flug­félaginu. Í pistli sem hún birtir á vef ASÍ segir að henni hafi borist nafnlaus bréf frá fólki sem óttist afleiðingar af því að koma fram undir nafni.

„Starfs­fólkið er í erfiðri stöðu, það vill vinna við flug og hefur metnað fyrir því að nýtt flugfélag geti starfað á íslenskum markaði. En það vill líka sanngjörn kjör og að stéttar­félagið starfi að hagsmunum starfs­fólksins, ekki atvinnu­rekendanna,“ skrifar Drífa.

Hún segir að auki að framganga Play sé flug­félaginu „til skammar“ og að á meðan ekki sé tekið á henni grafi það undan öllum vinnu­markaðnum og sé ógn við réttindi launa­fólks almennt. Hún segir einnig að stéttar­félag starfs­manna Play, flug­stéttar­félagið ÍFF, sé ekki „raun­verulegt stéttar­félag.“

Drífa segir í pistli sínum að þegar hún byrjaði að vinna fyrir verkalýðs­hreyfinguna hefði hún varla trúað því að á íslenskum vinnu­markaði „væru hópar sem væri búið að svipta rödd sinni, þyrðu ekki að koma fram og greina frá aðstæðum sínum og væru kúgaðir til að vinna fyrir laun undir lágmarks­launum.“

„Síðan er ég reynslunni ríkari og hef ítrekað hitt fólk sem hefur ekki rödd og eina vonin er að stéttar­félögin leggi lið og ljái rödd og styrk, sem þau gera daglega,“ skrifar Drífa.

Hún segir að hins vegar taki steininn úr „þegar heilt flugfélag er byggt á grunni kjara undir lágmarks­launum og býður ódýr fargjöld á grunni þess að hafa „ódýrara starfs­fólk“.

„Þessi saga Play hefur verið rakin áður og miðstjórn ASÍ og formanna­fundur ályktað og hvatt til sniðgöngu á félaginu þar til það gerir réttmætan kjara­samning. Hið svokallaða stéttar­félag sem samið var við er ekki raun­verulegt stéttar­félag, fólkið sem vinna átti eftir samningunum tók ekki þátt í gerð þeirra og félagið, ÍFF, er ekki sjálfstætt frá atvinnu­rekandanum. Tilraunir hafa verið gerðar til að ná alvöru kjara­samningum við Play og þeim gefinn kostur á að ganga til samninga við félag sem raun­verulega er skilgreint sem félag flug­freyja, hefur reynslu af kjara­samningum og hefur sýnt það að það standi við bakið á sínum félags­mönnum þegar í harðbakkann slær. Play hefur því miður ekki gripið slíkt tækifæri,“ segir Drífa í pistli sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár