Stjórnsýslunefndir hunsa tilmæli umboðsmanns

„Það kemur fyrir að stjórn­völd séu þannig ekki fyllilega sátt við afstöðu umboðs­manns í einstökum málum og fari ekki að tilmælum hans,“ segir í ársskýrslu umboðs­manns Alþingis.

Tryggvi Gunnarsson er umboðsmaður Alþingis.
Tryggvi Gunn­ars­son er umboðs­maður Alþingis.

„Þrátt fyrir að stjórn­völd bregðist almennt vel við fyrir­spurnum umboðs­manns sem og tilmælum og ábendingum eru þó undan­tekningar frá því. Virðist það einkum eiga við um þau stjórn­völd sem ráðherra fer ekki með almennar yfir­stjórnunar- og eftirlits­heimildir gagnvart og eru nefnd sjálfstæð stjórn­völd eða stjórn­sýslu­nefndir.“

Þetta kemur fram í skýrslu umboðs­manns Alþingis fyrir árið 2014 þar sem fjallað er um starfsemi embættisins. 

„Það kemur fyrir að stjórn­völd séu þannig ekki fyllilega sátt við afstöðu umboðs­manns í einstökum málum og fari ekki að tilmælum hans. Í því sambandi legg ég áherslu á að þrátt fyrir að slík stjórn­völd falli ekki undir yfir­stjórnunar- og eftirlits­heimildir ráðherra falla störf þeirra ekki fyrir utan eftirlits­heimildir umboðs­manns. Hinar ýmsu úrskurðar­nefndir í stjórn­sýslunni gegna þannig mikilvægu eftirlits- og réttar­öryggis­hlutverki við meðferð kærumála og fara með hlutverk sem væri almennt annars falið ráðherra á viðkomandi málefna­sviði,“ segir í skýrslunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár